Bændablaðið - 21.10.2021, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202144
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Kynbótaeinkunnir reyndra nauta í notkun haustið 2021
Nafn og nr. Mjólk Fitu% Prótein% Afurðir Prót.úth. Frjósemi Frumutala Gæðaröð Skrokkur Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Heild Hæð dætra
Kláus 14031* T 119 104 106 122 104 106 104 106 99 99 102 99 119 116 112 5,4
Risi 15014 T 115 107 98 120 105 93 112 109 101 97 106 106 118 109 111 5,3
Köngull 15019* 95 119 114 102 111 100 113 86 95 126 102 108 109 116 108 5,5
Steinar 15042* T 106 103 105 107 102 102 104 108 104 114 103 120 106 107 108 5,2
Mikki 15043* N 106 114 112 109 98 113 95 99 107 128 100 117 113 112 111 5,2
Tanni 15065 T 114 106 98 113 102 110 134 82 100 136 106 104 100 107 114 5,2
Knöttur 16006 N 102 115 120 114 86 102 114 118 109 122 102 116 121 100 113 5,8
Álmur 16007* 115 99 106 118 107 96 88 111 104 99 91 121 129 97 108 5,1
Bikar 16008* N 118 96 94 115 107 103 99 106 106 134 113 121 133 100 116 5,2
Jarfi 16016 N 111 99 105 114 98 107 119 121 98 136 130 110 120 103 117 5,2
Skírnir 16018* N 108 107 116 117 100 109 94 109 102 112 105 112 117 100 111 5,7
Róður 16019* N 112 114 129 120 86 97 98 82 107 108 112 101 113 100 111 5,7
Dalur 16025* 107 95 97 102 92 102 110 110 104 106 102 120 122 100 107 5,0
Kári 16026* 101 108 105 100 93 99 119 105 99 136 106 114 120 100 110 5,0
Höttur 16028 111 108 116 116 106 105 104 114 100 123 116 106 86 100 110 4,5
Jónki 16036* N 124 103 96 133 112 99 86 97 104 96 108 111 88 100 111 5,2
Númi 16038* 102 98 106 97 101 100 115 98 101 122 123 108 115 100 108 5,1
Herkir 16069 112 105 102 112 107 96 109 105 102 117 108 98 118 100 109 5,2
Skýrinar: N = nautsfaðir, T = tilkynna nautkálfa,
*getur gefið hyrnd afkvæmi
Nýtt kynbótamat var keyrt núna
í september að loknu ágústupp-
gjöri. Að þessu sinni var um ræða
keyrslu á mati fyrir afurðir, frumu-
tölu og frjósemi sem byggir núna
á öðrum eiginleikum en áður var.
Núna eru notuð gögn úr sæðingum
í stað bils milli burða. Þannig er
frjósemiseinkunn núna samsett
einkunn úr bili frá fyrstu sæðingu
til burðar, bili frá fyrstu sæðingur
til síðustu sæðingar og fanghlut-
falli við 1. sæðingu hjá kvígum.
Þessi breyting byggir á meistara-
verkefni Þórdísar Þórarinsdóttur
við Landbúnaðarháskóla Íslands
og hafði hún veg og vanda af vinnu
við innleiðingu þessa mats.
Fagráð í nautgriparækt gerði litl-
ar breytingar á reyndum nautum í
dreifingu að þessu sinni enda var
um verulegar breytingar að ræða í
sumar. Reyndum nautum í dreifingu
fækkar nú um eitt og verða 18.
Bjarki 15011 og Sjúss 15048 fara
úr dreifingu en notkun á þeim var
orðin lítil og til dreifingar kemur nýtt
naut úr 2016 árgangi, Herkir 16069.
Þessi árgangur ætlar að verða einn sá
allra öflugasti sem komið hefur fram
á sjónarsviðið en meðal 20 hæstu
nauta í heldareinkunn nú eru fjögur
fædd 2016, þar af eru tvö alhæstu
nautin. Efstir standa Jarfi 16016 sem
er með 117, Bikar 16008 með 116,
Knöttur 16006 er með 113 og Skírnir
16018 er með 111.
Þau naut sem voru í dreifingu
standa mjög vel við fyrra mat og
bæta heldur í. Við skulum byrja á
því að líta aðeins nánar á þau naut
sem áfram verða í dreifingu.
Kláus 14031, f. Hjarði 06029,
mf. Laski 00010. Kláus gefur sér-
lega mjólkurlagnar kýr með góð
efnahlutföll í mjólk. Þær eru einnig
ákaflega skapgóðar en aðrir þættir
liggja nærri meðaltali. Kláus var
nautsfaðir og undanfarið hafa verið
keyptir kálfar undan honum. Hann
styrkti stöðu sína sem slíkur, hækk-
aði um eitt stig nú eftir að hafa hækk-
að um tvö stig í sumar og er með 112
í heildareinkunn.
Risi 15014, f. Laufás 08003,
mf. Hjarði 06029. Risi var nauts-
faðir og nú er verið að kaupa kálfa
undan honum á stöð. Hann er með
jákvætt mat fyrir flesta þætti en hvað
öflugastur hvað afurðagetu snertir,
einkum mjólkurmagn og fituhlutfall.
Þá er júgurgerð dætranna góð, spen-
ar fremur stuttir, mjaltir góðar og
skapið framúrskarandi. Dætur Risa
eru stórar kýr, nokkuð sem gott er
að hafa í huga við notkun hans. Risi
tekur ákveðið stökk, hækkar um þrjú
stig og er með heildareinkunn upp
á 111.
Köngull 05019, f. Toppur 07046,
mf. Bambi 08049. Köngull er öflugt
efnahlutfallanaut, júgurgerð dætra
með afbrigðum góð og spenar vel
gerðir en stuttir. Köngull hækkar
um eitt stig og er með 108 í heildar-
einkunn.
Steinar 15042, f. Bambi 08049,
mf. Gæi 09047. Steinar var í hópi
nautsfeðra og því er þess að vænta
að undan honum verði keyptir kálf-
ar á stöð á næstu misserum. Dætur
hans flagga stórgóðri júgurgerð,
mjög góðum mjöltum og skapi. Aðrir
eiginleikar liggja nær meðaltalinu en
allir jákvæðu megin línunnar. Benda
má á að Steinar gefur hæfilega þykka
spena, það er ekki of granna. Steinar
lækkar um tvö stig og er með 108 í
heildareinkunn.
Mikki 15043, f. Sandur 07014,
mf. Bambi 08049. Mikki er efnahlut-
fallanaut auk þess sem dætur hans
státa af úrvalsgóðri júgurgerð og
góðum mjöltum og skapi. Hafa þarf
í huga að hann gefur granna spena.
Mikki verður áfram nautsfaðir og
með 111 í heildareinkunn eftir að
hækka um eitt stig.
Tanni 15065, f. Sandur 07014,
mf. Koli 06003. Tanni gefur mjólkur-
lagnar og ákaflega júgurhraustar kýr
með úrvalsgóða júgurgerð en spenar
eru langir og grannir. Tanni hækkar
enn, um tvö stig í sumar og þrjú stig
núna og er því kominn í hóp þeirra
allra öflugustu. Hann er með 114 í
heildareinkunn og þar sem hann var
um tíma nautsfaðir bíðum við sona
hans á stöð í vetur.
Knöttur 16006, f. Bolti 09021,
mf. Bambi 08049. Knöttur kom
inn sem sem nautsfaðir síðast
liðinn vetur og stendur við fyrra
mat. Knöttur er efnahlutfallanaut
auk þess sem dætur hans eru júgur-
hraustar með úrvalsgóða júgurgerð,
góðar mjaltir og gott skap. Knöttur
verður áfram notaður sem nautsfað-
ir og er með 113 í heildareinkunn
sem skipar honum í röð þeirra allra
sterkustu.
Álmur 16007, f. Klettur 08030,
mf. Glæðir 02001. Álmur kom til
notkunar í sumar en dætur hans eru
miklar mjólkurkýr með góð verð-
efni í mjólk auk þess sem mjaltir og
skap er með því besta sem gerist.
Hins vegar er júgurgerð ekki nema
meðalgóð þar sem verulega skortir á
að júgurband sé nógu greinilegt auk
þess sem spenar eru nokkuð gleitt
settir. Það þarf því að vanda til pör-
unar með Álmi en hann hefur kosti
sem vert er að sækja í. Hann lækkar
um eitt stig en stendur eftir sem áður
með góða einkunn eða 108.
Bikar 16008, f. Bambi 08049, mf.
Vindill 05028. Bikar hækkaði um tvö
stig í sumar og nú bætir hann enn í, er
kominn í 116 í heildareinkunn. Hann
er því næstefstur allra nauta og skák-
ar þar föður sínum, Bamba 08049.
Dætur Bikars er miklar mjólkurkýr
með úrtökugóða júgurgerð og sérlega
góðar mjaltir og skap. Það kemur því
ekki á óvart að Bikar skipar sér áfram
í hóp nautsfeðra.
Jarfi 16016, f. Bambi 08049,
Stíll 04041. Styrkleikar Jarfa liggja
í mikilli júgurhreysti, frábærri júgur-
gerð, góðum mjöltum og geysigóðu
skapi auk þess sem dætur hans skora
hátt í gæðaröð. Rétt er að hafa bak
við eyrað að spenar eru grannir en
gríðarvel settir. Heildareinkunn hans
hækkar um ein þrjú stig og stendur
nú í 117. Það þýðir að Jarfi er efstur
allra nauta í heildareinkunn í dag.
Skírnir 16018, Gustur 09003, mf.
Síríus 02032. Skírnir stökk fram á
sjónarsviðið í sumar sem nautsfaðir
sem hann verður áfram. Þarna er á
ferðinni naut sem gefur góðar mjólk-
urkýr með há efnahlutföll í mjólk,
góða júgur- og spenagerð auk mjög
góðra mjalta og skaps. Hann heldur
sinni stöðu og er með heildareinkunn
upp á 111.
Róður 16019, f. Keipur 07054,
mf. Lykill 02003. Róður sýndi styrk
sinn og megin strax í sumar þegar
hann kom til notkunar sem nauts-
faðir. Dætur hans eru góðar mjólk-
urkýr með há efnahlutföll í mjólk,
sérstaklega prótein sem er gríðarhátt.
Dæturnar skarta prýðisgóðri júgur-
gerð, fremur stuttum spenum og
góðu skapi en meðalmjöltum. Hann
stendur við sitt góða mat og er með
heildareinkunn upp á 111.
Dalur 16025, f. Bambi 08049,
mf. Aðall 02039. Dalur lækkar
aðeins í mati, um tvö stig, og stend-
ur nú í 107. Eigi að síður er þarna
á ferðinni gott naut sem gefur kýr
í góðu meðallagi hvað afurðagetu
snertir, júgurgerðin er góð en sér-
staklega er júgurbandið greinilegt.
Spenar eru vel settir og fremur
þykkir, nokkuð sem má notfæra sér
gagnvart kúm með granna spena.
Þá eru mjaltir og skap úrvalsgott
hvoru tveggja.
Kári 16026, f. Gustur 09003,
mf. Sandur 07014. Kári styrkir sína
stöðu verulega en hann hækkar um
þrjú stig og stendur í 110 í heildar-
einkunn. Afurðageta dætra hans er
að vísu ekki nema um meðallag en
hann er í notkun á grunni mikill-
ar júgurhreysti og framúrskarandi
júgurgerðar þar sem hann skorar
það hátt að hann nartar í hælana á
Jörfa. Þá eru mjaltir stórgóðar sem
og skapið. Þarna er því á ferðinni
naut sem hefur upp á allt að bjóða
nema aukið mjólkurmagn.
Höttur 16028, f. Flekkur 08029,
mf. Glæðir 02001. Höttur lækkar um
eitt stig en eftir sem áður er mat hans
mjög gott, heildareinkunn 110. Dætur
hans eru miklar mjólkurkýr með hátt
próteinhlutfall í mjólk auk þess sem
júgurgerðin er úrvalsgóð. Hann gefur
nokkuð granna en vel setta spena en
skapið er undir meðallagi. Þá verður
ekki horft framhjá því að dætur hans
eru lágfættar sem gerir pörun hans
vandasamari en ella. Hann hefur þó
mikla kosti fram að færa sem ekki
verður horft framhjá.
Jónki 16036, f. Gói 08037, mf.
Flói 02029. Jónki bætir verulega í,
hækkar um þrjú stig eða upp í 111
og er nú tekinn í hóp nautsfeðra.
Þarna er á ferðinni naut sem gefur
gríðarmiklar mjólkurkýr með góðar
mjaltir en júgurgerð undir meðallagi.
Þar skortir einkum á festu og að þau
séu nógu vel borin en júgurbandið er
greinilegt og það skiptir miklu máli.
Jónki breikkar einnig val varðandi
skyldleika verandi sonur Góa 08037.
Númi 16038, f. Gustur 09003,
mf. Þollur 99008. Númi dalar eilítið
eða um tvö stig og stendur í 108 í
heildareinkunn. Þetta góða mat
byggir á meðalmikill afurðagetu
dætra, mikilli júgurhreysti sem og
frábærri júgurgerð. Spenar eru hins
vegar stuttir og grannir og því hentar
Númi tæpast nema á kýr með spena
í grófari kantinum. Dætur Núma eru
einnig mjög skapgóðar með góðar
mjaltir.
Nýtt reynt naut í notkun
Að þessu sinni kemur aðeins eitt
nýtt naut í hóp reyndra nauta en
það er Herkir 16069 frá Espihóli í
Eyjafirði, sonur Gusts 09003 og 909
Baldadóttur 06010. Dætur Herkis
eru góðar mjólkurkýr með verð-
efnahlutföll í mjólk yfir meðallagi.
Þetta eru fremur stórar kýr, boldjúpar
og útlögugóðar með nokkuð beina
yfirlínu og í góðu meðallagi há-
fættar. Malirnar eru nokkuð grannar,
hallandi og þaklaga. Fótstaða er
sterkleg og gleið. Júgurgerðin er
góð, festa mikil og júgrin vel borin
en júgurband ekki áberandi. Spenar
eru hæfilegir hvað lengd og þykkt
varðar og vel settir. Mjaltir eru í
meðallagi og mjaltagallar fátíðir.
Skap þessara kúa er mjög gott og
skapgallaðir gripir fáséðir. Herkir er
með heildareinkunnina 109.
Nautsfeður
Að undanförnu hefur Nautastöðin
einkum verið að kaupa kálfa undan
Pipar 12007, Hæl 14008, Kláusi
14031 og Risa 15014.
Á næstu misserum verður sjón-
um einkum beint að kálfum undan
Steinari 15042, Mikka 15043, Tanna
15065, Knetti 16006, Bikar 16008
og Jarfa 16016. Synir Skírnis 16018,
Róðurs 16019 og Jónka 16036 munu
svo fylgja í kjölfarið. Þeim tilmælum
er beint til manna að láta sæða kýr á
nautsmæðraskrá og efnilegar kvíg-
ur með einhverju eftirtalinna nauta;
Mikka 15043, Knetti 16006, Jarfa
16016, Skírni 16018, Róðri 16019
eða Jónka 16036.
Full ástæða er til að vekja athygli
á góðum árangri bænda í Stóra-
Dunhaga í Hörgárdal, tvö reynd
naut í notkun á sama tíma og báðir
nautsfeður. Til hamingju, Stóru-
Dunhagabændur, og hafið þökk fyrir.
Nautsmæður
Á nautsmæðraskrá í Huppu (með
rautt flagg) eru kýr með a.m.k. 107
í heildareinkunn, 90 fyrir fituhlutfall
og 100 fyrir mjaltir. Þegar tilkynnt
er um nautkálf undan væntanlegri
nautsmóður eru aðrir þættir vegnir
og metnir svo sem afurðir og frjó-
semi.
Á skrá yfir efnilegar kvígur (með
grænt flagg) eru kvígur sem eru með
a.m.k. 108 í heildareinkunn, 90
fyrir fituhltfall og 100 fyrir mjaltir.
Þegar tilkynnt erum nautkálf undan
kvígu eru aðrir þættir skoðaðir og
beðið fyrstu mælingar, kýrsýnis og
ákveðinnar reynslu áður en ákvörðun
um framhaldið er tekin.
Eldri matadorar
Nautaskrá bíður nú útgáfu og von-
andi tekst að koma henni út öðru
hvoru megin við næstu mánaðamót.
Þar verður að finna ítarlegri upplýs-
ingar um þessi naut ásamt fleira efni
en meðal annars verður gerð ítarlegri
grein fyrir breytingum á kynbóta-
mati fyrir frjósemi. Áhugamenn um
nautgriparækt hafa því eitthvað til
að hlakka til en þegar sól lækkar á
lofti gefst oft meiri tími til þess að
glugga í blöð og bækur.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Nautaárgangurinn 2016 er að verða einn sá allra öflugasti
Jónki 16036. Herkir 16069.