Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Page 4
andlegs eðlis, verður æ meira um starfs-
greinar, sem fatlaðir geta rækt til hlítar
og þá vitanlega fyrir fullt kaup. Mönnum
hættir oft til að líta svo á, að fatlaður mað-
ur sé óhæfur til allrar vinnu, og því gengur
fötluðu fólki verr en skyldi að fá atvinnu.
Það sannar ekkert, þótt fatlaður maður
verði að gefast upp í starfi, vegna þess að
það svarar ekki til starfsgetu hans eða
hæfni. Allt er undir því komið að fundin
séu störf, sem samsvara getu og kröftum
hvers einstaks.
Mér finnst sérstök ástæða til að vekja
athygli á seinni málsgrein 16. greinar
endurhæfingarlaganna. Hún er á þessa
leið: „Þeir, sem notið hafa endurhæfingar,
skulu að öðru jöfnu eiga forgangsrétt til
atvinnu hjá ríki og bæjarfélagi". Hér er
kveðið á um, að eðlilegt sé að ríki og bæj-
arfélög veiti gott fordæmi með því að láta
öryrkja, að öðru jöfnu, ganga fyrir störf-
um.
Þótt æskilegt sé, að sem flestir fatlaðir
Ávarp .................................. bls. 3
Lög um endurhæfingu .................... — 5
Tólfta þingið .......................... — 8
Vísnahornið ............................ — 12
Lag eftir Sigfús Halldórsson ...........— 13
(Höfundur hefur jafnframt skrifað nóturnar)
Jökull Jakobsson: Munnmælasaga ......... — 14
Evert Taube: Valsinn hans Kalla káta .... — 17
Haukur Þórðarson: Um atvinnumál öryrkja — 18
Het Dorp ............................... — 24
Greiður aðgangur fyrir fatlaða .........— 26
Bréf til Pálínu frænku .................— 27
Félagsmálarabb ......................... — 32
fái starf á frjálsum vinnumarkaði, eru þó
alltaf nokkrir, sem þess eiga ekki kost.
Öryrkjafélögin hafa í mörg ár rekið vinnu-
stofur. Rekstur þeirra hefur gengið mis-
jafnlega. Þær hafa verið reknar með halla,
sem viðkomandi félögum hefur oft verið
ofraun að standa undir. Samkvæmt lögun-
um er hallanum skipt jafnt á milli þriggja
aðila, atvinnuleysistryggingasjóðs, lífeyr-
isdeildar Tryggingarstofnunar ríkisins og
rekstraraðila. Starfræksla vinnustofanna
er því væntanlega tryggð með hinum nýju
lögum. Jafnframt má gera ráð fyrir að
vinnustofum fjölgi næstu ár.
Þjóðin er fámenn og þarf á kröftum
hvers einstaklings að halda til að beizla
og hagnýta auðlindir landsins og skapa
með því skilyrði til aukins menningarlífs
og félagslegs öryggis. Takmarkið hlýtur
því að vera, að hver einasti þjóðfélagsþegn
eigi þess kost að fá starf við sitt hæfi.
Að lokum vil ég hvetja alla til að kynna
sér endurhæfingarlögin.
@ @ @ @ © %
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar......— 34
Sálræn vandamál í sambandi við likamlega
fötlun ..................................... — 36
Hjálpartæki ................................ — 40
Konráð Þorsteinsson: Frásögn ................— 41
Vinningaskrá ............................... — 44
Stafaþraut ................................. — 45
Sjálfsbjörg ................................ — 46
Forsíða: Endurhæfing.
Ljósm.: Guðmundur Örn Ingólfsson.
Aðrar innlendar myndir tóku
Trausti Sigurlaugsson og Sigurður Guðmundsson.
4 SJÁLFSBJÖRG