Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Síða 5

Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Síða 5
1. gr. LÖG UM ENDUR- HÆFINGU Tilgangur laga þessara er að stuðla að þjálf- un og endurhæfingu fólks með varanlega skerta starfshæfni, svo að það geti sem bezt séð sér farborða með eigin vinnu. Aðstoða skal þær stofnanir, sem annast endurhæfingu, og koma á fót þeim rannsóknar-, endurhæfingar- og vinnustöðvum, sem nauðsynlegar eru, með þeim hætti, sem nánar greinir í lögum þessum. 2. gr. Félagsmálaráðherra skipar sjö menn í end- urhæfingarráð, þar af sex eftir tilnefningu eftirtalinna aðila, einn frá hverjum: Öryrkja- bandalags íslands, Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasambands íslands, Sambands íslenzkra sveitarfélaga, Læknafélags íslands og menntamálaráðuneytisins. Ráðherra skipar einn mann án tilnefningar. Skal hann hafa staðgóða þekkingu á endurhæfingarmálum. Hann skal og vera formaður ráðsins. Kostnaður við starfrækslu endurhæfingar- ráðs greiðist úr ríkissjóði. 3. gr. Hlutverk endurhæfingarráðs skal vera: a. að semja áætlun um þörf endurhæfingar- stöðva og vinnustöðva fyrir fólk með varan- lega skerta starfshæfni. Skal ! áætlun þess- ari gerð grein fyrir stærð stofnananna, stað- setningu þeirra, verksviði og búnaði. Við samningu áætlunarinnar skal taka tillit til nýjunga í endurhæfingarmálum og stefna að því, að ráðstafanir til endurhæfingar svari jafnan sem bezt kröfum tímans. b. að hafa eftirlit með endurhæfingarstofnun- um og vinnustöðvum fvrir öryrkja. c. að vinna að því, að verkaskipting slíkra stofnana verði sem hagkvæmust. d. að útvega þeim, sem þarfnast endurhæfing- ar og þjálfunar, sbr. 13. gr., rúm á stofnun við sitt hæfi og atvinnu að þjálfun lokinni, sbr. 15. gr. e. að stunda upplýsingastarfsemi og hvetja þá, sem ekki geta séð sér farborða vegna skertr- ar starfshæfni, til þess að leita þjálfunar og þeirrar meðferðar, sem við á, svo að þeir geti fengið starf við sitt hæfi. SJÁLFSBJÖRG 5

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.