Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 8
TÓLFTA ÞINGIÐ
12. þing Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra, var haldið í Hótel Höfn, Siglu-
firði, dagana 13.—15. júní s. 1.
Setningarathöfnin hófst með því, að
lúðrasveit Sigluf jarðar lék og Kvennakór
Siglufjarðar söng. Þá flutti sóknarprest-
urinn, séra Kristján Róbertsson, ávarp,
bauð þingfulltrúa velkomna til Siglufjarð-
ar og árnaði samtökunum allra heilla í nú-
tíð og framtíð. Síðan flutti Theodór A.
Jónsson, formaður landssambandsins,
ávarp og setti þingið.
Eftir að kjörbréf höfðu verið athuguð,
skýrði formaður frá stofnun tveggja nýrra
félagsdeilda. Sú fyrri var stofnuð í Stykk-
ishólmi 9. maí, stofnfélagar 13. Seinni
deildin var stofnuð á Akranesi 10. maí,
stofnfélagar 49. Voru nýju deildirnar sam-
þykktar inn í landssambandið með dynj-
andi lófataki.
Þingforsetar voru kjörnir: Jón Þ. Buch,
Húsavík, og Eggert Theodórsson, Siglu-
firði. — Þingritarar: Dagur Brynjúlfsson,
Reykjavík, Pétur Þorsteinsson, Reykjavík,
Vigfús Gunnarsson, Reykjavík, Valgerð-
ur Guðjónsdóttir, ísafirði, Þorgerður Þórð-
ardóttir, Húsavík, og Pálína Snorradóttir,
Hveragerði.
Þingið sátu 55 fulltrúar frá 11 félögum.
Fluttar voru skýrslur stjórnar og fram-
kvæmdastjóra og ennfremur skýrslur
allra félaganna, en þau eru 12, með um
1050 virka félaga.
t'Jr skýrslu stjómar og
framkvæmdastjóra.
Skrifstofa landssambandsins flutti á
8 SJÁLFSBJÖRG