Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Qupperneq 11
2. Endurskoðuð verði 13. grein almanna-
tryggingalaganna og lögð verði sér-
stök áherzla á, að breytt verði tekju-
viðmiðun greinarinnar.
3. Tryggður verði bótaréttur barna, sem
eru svo fötluð að framfærandi þarf
miklu til að kosta vegna fötlunar
þeirra.
4. Tekjumat á störfum húsmæðra, með
tilliti til réttar þeirra á sjúkradag-
peningum, verði stórhækkað frá þvi,
sem nú er.
5. Þingið skorar á Heilbrigðis- og trygg-
ingarmálaráðuneytið að gefa út hand-
hægan bækling um réttindi og skyldur
öryrkja.
6. Bótaupphæðir fylgi vísitölu fram-
færslukostnaðar eins og hún er á
hverjum tíma.
7. Unnið verði að því, að fötluðum hús-
mæðrum verði veittur styrkur til
kaupa á nauðsynlegum heimilistækj-
um.
8. Endurskoðuð verði 26. grein almanna-
tryggingalaganna um gjaldskyldu ör-
orkulífeyrisþega.
9. Elli- og örorkulífeyrir verði aðskilinn.
Á sunnudag sátu þingfulltrúar hádegis-
verðarboð bæjarstjórnar Sigluf jarðar.
Bæjarstjórinn, Stefán Friðbjarnarson,
bauð gesti velkomna með ávarpi. Trausti
Sigurlaugsson og Eggert Theodórsson
þökkuðu fyrir hönd þingfulltrúa. Seinna
um daginn heimsóttu þingið félagar úr
karlakórnum Vísi og sungu nokkur lög við
mikinn fögnuð áheyrenda.
Síðdegis á mánudag fóru fram þingslit.
1 stjórn fyrir næsta starfsár voru kosin:
Formaður: Theodór A. Jónsson, Reykja-
vík. Varaformaður: Sigursveinn D. Krist-
insson, Reykjavík. — Ritari: Ólöf Ríkarðs-
dóttir, Reykjavík. — Gjaldkeri: Eiríkur
Einarsson, Reykjavík. — Meðstjórnendur:
Heiðrún Steingrímsdóttir, Akureyri, Sig-
urður Guðmundsson, Reykjavík, Friðrik
Á. Magnússon, Ytri-Njarðvík, Ingibjörg
Magnúsdóttir, ísafirði, Þórður Jóhanns-
son, Hveragerði, Eggert Theodórsson,
Siglufirði, Karen Guðlaugsdóttir, Akra-
nesi, Jón Þ. Buch, Húsavík, Stefán Jón
Karlsson, Vestmannaeyjum. — Fram-
kvæmdastjóri landssambandsins er Trausti
Sigurlaugsson.
Eggert Theódórsson,
formaður Sjálfsbjargar á
Siglufirði, flytur ávarp við
setningu 12. þingsins. —
Sitjandi: Framkvœmda-
ráð og framkvœmdastjóri
Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra.
SJÁLFSBJÖRG 11