Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Qupperneq 25
Het Dorp.
varp auk allra hugsanlegra þæginda fyrir
hjólastólafólk. Sé um hjón að ræða, eru
tvö samliggjandi herbergi notuð sem ein
íbúð. Innangengt er úr hverju herbergi út
á stórar, sameiginlegar svalir. Tíu einka-
herbergjum eru ætluð sameiginleg borð-
stofa og setustofa, sameiginleg eldhúsaf-
not og lítið þvottahús. Stórt baðherbergi
er ennfremur ætlað hverjum 30 íbúum
saman. Eitt herbergi af hverjum tíu er
verustaður aðstoðar- eða hjúkrunarmanns,
en næturvakt annast 30 manns.
I þorpinu er bókasafn og samkomusal-
ur, sem breyta má í kirkju, hljómleikasal,
kvikmyndahús o. fl. Einnig eru þar hár-
greiðslu- og rakarastofur, verzlunarmið-
stöð, benzínafgreiðslustöð, pósthús, veit-
ingastaður og æfinga- og íþróttasalur.
Maturinn er framreiddur í aðaleldhús-
inu, og þaðan er hann fluttur til veitinga-
staðarins og borðstofanna, þar sem fólk
getur matazt saman. Annars getur það
fengið matinn sendan til sinna herbergja,
ef það æskir.
Enn eru ótaldir vinnusalirnir, þar sem
vinnuaðstaða er fyrir um 200 manns. Öll
tilhögun þar, verkfæri, starfsgreinar og
stólar eru sniðin við hæfi íbúanna eftir
því, hvers konar fötlun háir hverjum ein-
stökum. í ráði er, að íbúunum sjálfum sé
gert kleift að inna af hendi alla venju-
lega þjónustu innan þorpsins til dæmis
póstþjónustu og ýmis önnur störf. Annars
er þeim í sjálfsvald sett, hvort þeir vinna
á verkstæðunum eða við téða þjónustu í
þorpinu, ellegar stunda sitt starf utan
þorpsins. Samgöngum er þann veg háttað,
að þorpsbúum er fært að komast til ann-
arra vinnustaða í grennd.
Gatnakerfi þorpsins sjálfs er og að
sjálfsögðu gert fyrir hjólastólaumferð og
aðalgatan liggur svo sem fyrr er frá sagt
eiginlega bæði utan húss og innan. Bif-
reiðaumferð er bönnuð um sjálfar göt-
urnar, sem eru jafnar og beinar, en tvö
stór bílastæði eru í útjaðri þorpsins.
Fólk býst venjulegum klæðum, og allt
er gert, sem unnt er, til að afmá merki
SJ ÁLFSBJÖRG 25