Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 27
r-------------------------------\
Sumarmót
Sjálfsbjargar 1970
Bréf
til Pálínu
frænku
V_____________________________/
Pálína mín.
Þú slóst heldur betur af þér að koma
ekki á sumarmótið að þessu sinni. Hvernig
mátti slíkt henda þig? Getur það verið
satt, að þú hafir farið í skemmtiferð með
kennurum í staðinn? Engin dæmi veit ég
til, að kennarar hafi verið teknir fram yfir
(annað) fólk, og finnst mér, að slíkt ætti
að skrá í annála.
En hvað um það. Þú, sem setið hefur í
félagsmálanefnd Sjálfsbjargar síðastliðin
7 ár, og sýnir slíkan félagsþroska (!), skalt
fá að heyra alla ferðasöguna, hvort sem
þér líkar betur eða verr.
Við Vestfirðingarnir létum okkar ekki
vanta í ferðalagið venju fremur. Rúmlega
20 ferðalangar lögðu af stað í björtu og
fögru veðri föstudaginn 10. júní kl. 8 með
v.b. „Fagranesinu“. Með í förinni voru 3
fararskjótar, áætlunarbíll frá Isafirði, auð-
vitað með „heimsins bezta bílstjóra“, að
vanda, og auk þess tveir minni bílar, ann-
ar frá Bolungarvík, hinn frá ísafirði.
Þó að veðrið virtist gott, er lagt var af
stað, reyndist vont í sjóinn inn Djúpið, og
var ekki laust við, að sumir yrðu grænir í
framan af sjóveiki. Bezt sluppu þeir, er
reyndu að syngja burt sjóveikina, og var
kyrjuð fullum hálsi hver vísan af ann-
arri. —
I Ögri var tekinn upp einn félaginn,
Erla nokkur Hafliðadóttir, ég trúi þú
kannist við hana. Okkur finnst jafnan
vanta eitthvað, ef hún getur ekki verið
með í ferðalögum okkar — og nú hófst
hin raunverulega ferð á sumarmótið.
Jafnan virðist hugsað hlýtt til okkar
Vestfirðinga, er mótstaður er valinn, eða
finnst þér ekki, Pálína mín? — Að þessu
sinni skyldi mótið sem sé haldið í Húna-
vatnssýslu, svo að við áttum alllangan og
strangan akstur fyrir höndum. Við hugg-
uðum okkur samt við það, að eitthvað yrði
SJÁLFSBJÖRG 27