Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Qupperneq 36
Sálræn vandamál í sambandi
við líkamlega födun
Á okkar tímum, þegar taugaveiklun og
geðtruflanir virðast fara vaxandi, og mörg
okkar geta einhvern tíma átt á hættu að
missa andlegt jafnvægi, er ástæða til að
gefa sér tíma til að brjóta heilann lítið
eitt um vandamál fatlaðra og samband
þeirra við aðra.
Eftir því sem við eldumst, verður líf
okkar flóknara og við háðari öðrum mönn-
um. Aðlögunarhæfnin verður sífellt mikil-
vægari. Skiljanlega verður aðlögun vanda-
samari fyrir þá, sem fatlaðir eru eða
standa öðrum að baki andlega eða líkam-
lega.
Þetta hefur tvær hliðar.
I fyrsta lagi: Viðhorf annarra til hinna
fötluðu.
1 öðru lagi: Viðhorf hins fatlaða til ann-
arra og til fötlunar sinnar.
I viðhorfum líkamlega heilbrigða til
fatlaðra má greina tilfinningar af ýmsu
tæi og vil ég taka þær til nánari athug-
unar.
Forvitni.
Forvitni er mjög algeng í garð fatlaðra.
Hún er skiljanleg og eðlileg hjá börnum,
sem spyrja móður sína um þetta sem ann-
að. „Mamma, hvers vegna?“ eða „Mamma,
hvernig ?“
Á þessu sviði sem öðrum er forvitninni
þá fyrst fullnægt, er barnið fær fullnægj-
andi svar, en hún eykst, ef svarið er ekki
afdráttarlaust. Jafn eðlileg og forvitnin
um hið óvenjulega er hjá börnum, jafn-
óafsakanleg er hún hjá fullorðnum, þegar
hún getur orðið öðrum til tjóns. Forvitn-
ina láta menn í ljós með orðum eða
augnatilliti. Hún birtist á ýmsum stig-
um. Óþvinguð, þegar fullorðið fólk stanz-
ar og horfir, gerir athugasemdir og reynir
á ýmsan hátt að vekja athygli annarra á
fyrirbrigði því, sem þeir eru að skoða.
Bezta vörnin gegn forvitni er að upp-
lýsa almenning um hina ýmsu sjúkdóma,
sem valda fötlun. Það er verkefni, sem
félög fatlaðra hafa tekið til athugunar.
Önnur aðferð er að koma fólki í skilning
um, hve óþægileg hin nærgöngula for-
vitni er fyrir þá, sem verða fyrir barðinu
á henni.
Meðaumkun.
Meðaumkun getur verið ennþá óþægi-
legri fyrir fatlað fólk en forvitnin. Með-
aumkun gerir vart við sig hjá þeim, sem
uppgötvað hafa hvernig ástatt er, en hafa
takmarkaðan skilning á ástandinu og kæra
sig heldur ekki um að skilja það. Með-
aumkun er þá yfirborðslegt viðbragð eða
36 SJALFSBJÖRG