Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 10
Sveitarstjórn Bláskóga-
byggðar svaraði ekki
tilboði hjólhýsafólks.
COSTA DEL SOL
9 EÐA 11 DAGAR - FLUG, GISTING OG FARARSTJÓRN
21. -30. MAÍ
FIRST FLATOTEL 3*
ÍBÚÐ MEÐ HLIÐARSJÁVARSÝN
VERÐ FRÁ 93.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
09. - 20. JÚNÍ
HOTEL PALMASOL 4*
TVÍBÝLI
VERÐ FRÁ 99.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
VIÐ STRÖND
Skoðaðu nánar á endurmenntun.is
Umsóknarfrestur til 16. maí
VÍKKAÐU
SJÓNDEILDARHRINGINN
Fjölmargar spennandi námsbrautir hefjast í haust. Persónulegt
og metnaðarfullt nám með framúrskarandi kennurum, góðum
tengslum milli nemenda og raunhæfum verkefnum úr atvinnulífinu.
gar@freattbladid.is
SKIPULAGSMÁL Ósk eigenda eigna
á hjólhýsasvæðinu á Laugarvatni
um að fá að vera þar áfram gegn því
að fjármagna sjálfir brunavarnir
á svæðinu, var ekki svarað á fundi
sveitarstjórnar Bláskógabyggðar á
þriðjudag eins og til stóð.
Formaður og gjaldkeri Samhjóls,
félags hjólhýsaeigenda á Laugar
vatni, mættu til fundar við sveitar
stjórnina og sögðu mikla samstöðu
með félögum í Samhjóli um málið.
Á fundinum var lagt fram minnis
blað frá lögmanni þar sem farið var
yfir breytingar sem hafa orðið á
byggingarreglugerð varðandi svo
kölluð stöðuhýsi. Segir í fundargerð
sveitarstjórnar að samkvæmt nýjum
reglum þurfi ekki lengur byggingar
leyfi fyrir stöðuhýsum, sé staðsetn
ingin í samræmi við deiliskipulag.
„Einnig eru reifuð ýmis atriði sem
varða möguleika sveitarfélagsins á
að taka boði Samhjóls um að kosta
uppbyggingu á svæðinu gegn því
skilyrði að félagið fái samning til
að minnsti kosti tíu ára með fram
lengingarheimild,“ segir nánar um
innihald minnisblaðsins.
Meirihluti sveitarstjórnarinnar
ákvað að taka ekki afstöðu í málinu
að sinni.
„Í ljósi þess að sveitarstjórnar
kosningar fara fram eftir fjóra
daga og ný sveitarstjórn mun taka
við hinn 29. maí næstkomandi,
samþykkir sveitarstjórn að fresta
afgreiðslu málsins og vísa því til
nýrrar sveitarstjórnar,“ segir í fund
argerð sveitarstjórnarinnar. n
Hjólahýsafólk á Laugarvatni í óvissu fram yfir kosningar
Eldur kom upp á hjólahýsasvæðinu á Laugarvatni í september 2018. MYND/BRUNAVARNIR ÁRNESSÝSLU
urduryrr@frettabladid.is
DÓMSMÁL Saksóknari í máli Gísla
Haukssonar athafnamanns lagði til
sextíu daga skilorðsbundið fangelsi
til refsingar, við meðferð máls gegn
honum í héraðsdómi á mánudag.
Gísli hefur játað brot í nánu sam
bandi gegn fyrrverandi sambýlis
konu sinni, en samkvæmt almenn
um hegningarlögum getur slíkt brot
varðað allt að sex ára fangelsi.
Í ákæru er Gísla gefið að sök að
hafa ítrekað tekið fyrrverandi sam
býliskonu sína kverkataki, skellt
henni utan í vegg og þrengt að
hálsi hennar svo hún átti erfitt með
andardrátt og féll í gólfið. Þegar
hún reyndi að flýja inn í herbergi er
hann sagður hafa farið á eftir henni,
gripið ítrekað í handleggi hennar og
fleygt henni í rúmið.
Við árásina hlaut brotaþoli
tognun og ofreynslu á hálshrygg og
brjósthrygg auk margra yfirborðs
áverka á hálsi, öxl og upphandlegg.
Samkvæmt Huldu Elsu Björgvins
dóttur, sviðsstjóra ákærusviðs Lög
reglustjórans á höfuðborgarsvæð
inu, var farið yfir dómaframkvæmd
í sambærilegum málum með hlið
sjón af atriðum sem gætu haft áhrif
á refsingu. Nefnir hún til dæmis að
skýlaus játning Gísla á brotinu hafi
áhrif til refsimildunar.
Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmað
ur segir refsingar í heimilisofbeldis
málum oft léttari en tilefni gefur til.
Ofbeldi innan veggja heimilisins sé
nú skilgreint sem alvarlegt brot, en
Inga segir það leitt að refsingar skuli
ekki endurspegla það.
„Þessi brot eru með alvarlegustu
brotum sem þú fremur, gegn þínum
nánustu, og almennt eru brot í
hegningarlögum talin alvarlegri ef
þau beinast gegn nákomnum,“ segir
hún.
Dómsuppsaga í máli Gísla var á
dagskrá héraðsdóms í gær en henni
var frestað fram yfir helgi. n
Skýlaus játning Gísla
til refsimildunar
Hulda Elsa Björg-
vinsdóttir, yfir-
maður ákærusviðs
Lögreglunnar á
höfuðborgar-
svæðinu
Inga Lilly Brynjólfs-
dóttir, lögmaður
8 Fréttir 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ