Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 14
kristinnpall@frettabladid.is
SKAGAFJÖRÐUR Byggðarráð Skaga-
fjarðar hafnaði tillögu VG um að
leggja fyrir íbúa sveitarfélagsins
spurningar um staðsetningu og
notkun á væntanlegu menningar-
húsi í komandi kosningum.
Byggðarráðið samþykkti samn-
inginn með tveimur atkvæðum en
einn sat hjá í atkvæðagreiðslunni.
Áætlaður framkvæmdakostn-
aður er rúmlega 1,4 milljarðar og er
hlutur sveitarfélagsins 40 prósent og
ríkisins 60 prósent. Álfhildur Leifs-
dóttir, fulltrúi VG í byggðarráðinu,
lagði til að afstaða íbúanna yrði
könnuð í kosningunum þar sem
langt er liðið frá því að ákvörðunin
var tekin.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokks og
Framsóknar greiddu atkvæði gegn
tillögu Álfhildar og sögðu að það
væri fagnaðarefni að loks væri búið
að finna varanlega lausn í málinu
enda væru drög samningsins frá
2019. Áætlað er að húsið verði til-
búið 2025. ■
Fá ekki að kjósa um menningarhús
VG lagði til að
íbúar Skaga-
fjarðar myndu
kjósa um
menningar-
húsið samhliða
sveitarstjórnar-
kosningunum.
Kynningarfundur
verkefnisstjórnar
rammaáætlunar
Verkefnisstjórn rammaáætlunar
(5. áfangi) boðar til opins kynningar-
fundar um stöðu vinnunnar
miðvikudaginn 18. maí, kl. 14–16.
Fundurinn verður haldinn í Öldu,
Skúlagötu 4 og einnig í beinu streymi.
VELDU C-VÍTAMÍN
KJÓSTU VIÐREISN
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir nýsköpunarráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa stutt verk-
efnið frá hugmyndastigi. Hér eru þær ásamt þeim Helgu Margréti, Hafdísi og Edit við formlega opnun þjónustunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Svona lítur dómsalurinn út með
sýndarveruleikagleraugunum,
en fyrirmyndin er dómsalur 402 í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sýndarverkuleikadóm-
salur getur hjálpað þolendum
ofbeldis, að sögn verkefnis-
stjóra hjá Origo. Hugmyndin
að verkefninu kviknaði fyrir
þremur árum í HR.
erlamaria@frettabladid.is
TÆKNI Hafdís Sæland, verkefnastjóri
hjá Origo, segir nýjan sýndarveru-
leikadómsal geta hjálpað þolendum
ofbeldis. Dómsalurinn var hannað-
ur sem lokaverkefni í tölvunarfræði,
en hann er sá fyrsti sinnar tegundar
í heiminum. Hafdís segir búnaðinn
góðan undirbúning fyrir þolendur
er komi að skýrslutöku fyrir dómi.
„Við erum ótrúlega ánægðar með
að þetta úrræði sé komið í gagnið og
vonum að það verði hluti af undir-
búningi þolenda seinna meir þegar
kemur að skýrslutöku fyrir dómi,“
segir Hafdís um dómsalinn sem hún,
ásamt Edit Ómarsdóttur og Helgu
Margréti Ólafsdóttur, hannaði og
kynnti á formlegri opnun í vikunni.
Hafdís segir hugmyndina hafa
kviknað fyrir tæpum þremur árum
þegar þær voru í tölvunarfræði í
Háskólanum í Reykjavík.
„Við vildum gera lokaverkefni
sem skipti máli og gæti hjálpað lög-
reglunni. Við funduðum með lög-
reglunni og ríkislögreglustjóra og
eftir mikla hugmyndavinnu sáum
við að það var ótrúlega mikil þörf á
sviði kynferðisbrota,“ segir Hafdís.
Hún leggur áherslu á að það hafi
verið þeim mikilvægt að leggja sitt
af mörkum og því hafi þær ákveðið
að búa til dómsal í sýndarveru-
leika. „Við ræddum við ýmsa aðila,
dómara, saksóknara, sálfræðinga
og lögfræðinga, til að athuga hvort
það væri grundvöllur fyrir slíku
verkefni. Allir voru sammála um að
við ættum að láta verða af þessu,“
segir Hafdís.
Spurð hvernig dómsalurinn virki
segir hún þetta í formi hefðbund-
inna sýndarveruleikagleraugna.
„Um leið og þú setur þau á þig birt-
ist hurð á dómsal 402 í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Þegar gengið er inn
sérðu réttargæslumanninn, sak-
sóknarann, dómarann, sakborning-
inn og verjanda hans, þá sem venju-
lega eru þarna. Þá er hægt að átta sig
á fjarlægðunum og þú getur gengið
að vitnastúkunni, alveg eins og þú
værir raunverulega stödd í salnum,“
segir Hafdís.
Til þess að gera þetta eins líkt
raunveruleikanum og hægt er
höfðu þær samband við dómara,
sem sendi þeim upplýsingar um
það orðfæri sem notað er í dóm-
sal. „Þá er hægt að æfa sig, hvort
sem það er að tala upphátt, tala
við dómarann eða álíka. Svo er líka
hægt að skoða sig um, eða þá fá að
gera þetta nokkrum sinnum til að
venjast umhverfinu. Þetta fer í raun
bara eftir því hvað fólki finnst best.“
Hafdís telur að það að mæta í
skýrslutöku geti valdið miklum
kvíða hjá þolendum. Því sé þetta
úrræði mikilvægt. „Ég hef sjálf lent
í kynferðisofbeldi og þurfti að fara
í gegnum dómsmál þegar ég var 15
ára. Ég var ofsalega stressuð og hugs-
aði um það á hverjum einasta degi,
hvernig þetta yrði, hverjir yrðu þar
og hvað ég þyrfti að segja. Það var
bara ótrúlega kvíðavaldandi,“ segir
hún.
Þjónustan sjálf kemur til með að
fara fram hjá ríkislögreglustjóra, en
búnaðurinn er staðsettur þar. „Við
höfum fengið fjölda fyrirspurna um
bókanir og erum í samtali við ýmsa
samstarfsaðila. Við vonum bara að
fólk taki vel í þetta og að þjónustan
nýtist sem flestum,“ segir Hafdís.
Hægt er að kynna sér þjónustuna
á heimasíðunni statum.is. ■
Taka gagnvirkan dómsal í
sýndarveruleika í gagnið
benediktboas@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Nær 85 prósent
íbúa höfuðborgarsvæðisins eru
jákvæð gagnvart ferðamönnum og
yfir 93 prósent segjast aldrei eða
sjaldan hafa orðið fyrir ónæði frá
ferðamönnum við heimili sitt. Nær
87 prósent telja erlenda ferðamenn
fremur eða mjög vinsamlega í sam-
skiptum við íbúa. Þetta er meðal
niðurstaðna könnunar sem Mask-
ína vann fyrir Höfuðborgarstofu nú
í apríl og birt var í gær.
Könnunin fjallaði um viðhorf til
ferðaþjónustu og ferðamanna og
var lögð fyrir íbúa á höfuðborgar-
svæðinu 6. til 25. apríl síðastliðinn.
Niðurstöðurnar sýna að íbúar telja
jákvæðar hliðar ferðaþjónustu vega
þyngra en neikvæðar og telja hags-
muni sína og ferðamanna fara vel
saman.
„Við fögnum þessum niður-
stöðum enda leggur Reykjavíkur-
borg mikla áherslu á að ferða-
þjónustan sé jákvæður drifkraftur
sem þróast í góðri sátt við íbúa,
atvinnulíf, umhverfi og menn-
ingu,“ segir Lína Petra Þórarins-
dóttir, forstöðumaður Höfuð-
borgarstofu. ■
Jákvæðni gagnvart ferðamönnum
93 prósent
segjast aldrei
eða sjaldan
hafa orðið fyrir
ónæði frá ferða-
mönnum við
heimili sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
12 Fréttir 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ