Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 26
22
Ekkert
lið í efstu
deild hefur
notað fleiri
leikmenn
í fyrstu
fimm leikj-
unum en
FH.
24 Íþróttir 14. maí 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 14. maí 2022 LAUGARDAGUR
1987 1 stig*
2022 4 stig
1991 5 stig
1993 5 stig
1990 6 stig
1995 6 stig*
2011 6 stig
2017 6 stig
*Féllu um haustið
Eftir tap gegn KA á Dalvík
á dögunum er stigasöfnun
FH-inga í sögulegri lægð í
upphafi móts. Þetta stórveldi
í íslenskri knattspyrnu er með
fjögur stig eftir fimm leiki og
hefur ekki byrjað verr í efstu
deild frá því að félagið féll
árið 1987. Baldur Sigurðsson,
fyrrverandi leikmaður FH og
sérfræðingur Stöðvar 2 Sports
finnst andleysi yfir liðinu.
FÓTBOLTI Óhætt er að segja að
frammistaða FH það sem af er móti
hafi ekki staðið undir væntingum.
Flestir áttu von á því að FH-ingar
yrðu í baráttunni í efri hluta töfl-
unnar en uppskeran er rýr eftir
fimm leiki. Karlalið FH hefur ekki
byrjað verr í efstu deild frá 1987
þegar FH-ingar fóru niður. Þegar
FH féll árið 1995 var uppskeran betri
eftir fimm umferðir heldur en nú.
Versta byrjun FH í
efstu deild í 35 ár
AðAlfundur
Þörungaverksmiðjunnar hf.
verður haldinn miðvikudaginn 1. júní 2022 kl. 13.00
á skrifstofu félagsins, Karlsey, 380 Reykhólum.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins.
FH var búið að
skora í fyrstu
fjórum umferð-
unum áður en
þeir fóru norður.
Ólafur er að
stýra FH í fjórða
sinn á ferlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Eftir tap gegn ríkjandi Íslands-
meisturum Víkings í opnunarleik
mótsins komst FH á sigurbraut
með ósannfærandi sigri á nýliðum
Fram á heimavelli í annarri umferð.
Í þriðju umferð átti FH fá svör við
öf lugu liði Blika á Kópavogsvelli
en aftur tókst FH að rétta skútuna
af og landa stigi gegn Valsmönnum
á heimavelli í fjórðu umferð. Ferð
norður á Dalvík í vikunni varð að
fýluferð þegar KA skoraði sigur-
mark í uppbótartíma.
Uppskeran að f imm leikjum
loknum er því aðeins fjögur stig eða
minna en stig í leik. Þó að FH-ingar
hafi nægan tíma til þess að rétta
gengi liðsins af og fái til þess tæki-
færi á næstu vikum þegar þeir mæta
liðum sem hafa átt erfitt uppdráttar
í upphafi móts er stigasöfnun FH í
sögulegri lægð. Frá því að FH komst
aftur upp í efstu deild árið 2000 var
liðið aldrei búið að fá minna en sex
stig í fyrstu fimm umferðunum.
Þarf í raun að fara aftur til ársins
1987 þegar FH fékk eitt stig í fyrstu
fimm leikjunum til að finna verri
byrjun hjá FH í efstu deild karla.
Þó að FH-ingar hafi fallið árið 1995
var uppskeran betri í fyrstu leikjum
ársins.
„Þetta er náttúrulega hræðileg
byrjun hjá FH. Þetta leit vel út fyrir
mót en ég benti á það í útsending-
unni fyrir Valsleikinn að mér fannst
þÁ vanta leikmann sem kæmi með
svolítil dólgslæti og ástríðu. Ef það
er hægt að nota gult spjald sem
mælikvarða á hörku, þá virtist þetta
allt vera mjög aumt hjá FH. Þeir voru
betri í leiknum gegn Val en fara svo
inn í leik gegn KA og leyfa KA að
svæfa sig,“ segir Baldur Sigurðsson,
þjálfari Völsungs, sérfræðingur á
Stöð 2 Sport og fyrrum leikmaður
FH.
Baldur segir að það sé ekkert
launungarmál hvar FH þurfi að
byrja á að bæta frammistöðuna.
„Þeir eru búnir að fá á sig tíu mörk
og mark í hverjum leik. Þetta er
kannski orðin þreytt umræða enda
búin að fara víða en varnarleikur-
inn er til vandræða. Þeir eru búnir
að bæta við leikmannahópinn en
ekki í varnarlínunni sem gefur til
kynna að þeir séu ánægðir með
varnarlínuna. Ef svo er þurfa þeir
að leggja áherslu á hana og bæta
varnarleikinn,“ segir Baldur og
heldur áfram:
„Utan frá virðist engin töfralausn
vera í sjónmáli. Það gekk eitthvað
á innan félagsins þegar það var til-
kynnt að þeir vildu að Eggert myndi
stíga til hliðar. Núna eru þeir komn-
ir með tvo nýja leikmenn og miðað
við mannskapinn ættu þeir að vera
í betri stöðu. Heilt yfir virðist þetta
vera hálfandlaust og andrúmsloftið
þungt, ekkert ósvipað því sem fólki
fannst með Val fyrir tímabilið.“
Baldur á ekki von á því að FH-
ingar grípi til þess ráðs að skipta um
þjálfara þriðja sumarið í röð.
„Mér finnst ólíklegt að þeir séu
byrjaðir að skoða þjálfaramálin.
Þeir ákváðu að skipta um þjálfara
um mitt tímabil síðasta sumar, þá
kom Óli inn í stað Loga eftir slæman
kafla FH sem byrjaði tímabilið vel
í fyrra. Það er búið að styrkja liðið,
leikir gegn ÍBV og Kef lavík næst
og staðan getur breyst hratt,“ segir
Baldur sem tekur undir að þetta sé
ný staða fyrir FH.
„Það hlýtur að vera erfitt fyrir FH
að sjá lið með fullt hús stiga og vera
ellefu stigum á eftir þeim í upphafi
móts. Þrátt fyrir það hef ég enga trú
á því að þeir séu að fara að skipta út
þjálfara strax.“
Baldur tók undir að FH-ingar
söknuðu Jónatans Inga Jónssonar
sem fór frá liðinu rétt fyrir mót.
„Ég er mjög hrifinn af Jónatani og
hlutum sem hann gerir. Hann var
klárlega sá leikmaður sem gat búið
til mest fyrir þá sóknarlega en hann
var ekki besti varnarmaðurinn og
hann sá ekki til þess að FH fengi
ekki á sig mörk.“ ■
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall
@frettabladid.is
Versta stigasöfnun FH í efstu
deild eftir fimm leiki sl. 35 ár: