Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 34
inni spýtu, svo í ræðukeppnum
menntaskólaáranna og með Vöku í
háskólanum. Kannski er það félags
lyndið sem býr að baki borgar
ástríðunni.
„Ég var alltaf í sveit á sumrin
og elska sveitina. En þegar ég er í
bænum vil ég njóta allra kostanna
við að vera í borg. Búa í samfélagi
þar sem er stutt að fara milli staða,
hitta fólk á förnum vegi. Ég vil að
krakkarnir séu örugg þegar þau
fara út og það séu „augu á götunni“
eins og sagt er. Margir nágrannar að
fylgjast með sem hjálpast að við að
ala þessi börn upp og hverfið allt.“
Gísli segir þetta hafa verið rauðan
þráð á þeim óteljandi fundum sem
hann sótti í öllum hverfum Reykja
víkur þann áratug sem hann var í
borgarstjórn. Fólk í öllum hverfum
vildi hafa hverfisbúð, hverfiskaffi
hús og hverfiskrá. Þetta eigi ekki
aðeins við um íbúa allra hverfa í
Reykjavík heldur líka íbúa allra
bæja á Íslandi og alls staðar í heim
inum. „Og þetta er ekkert flókið. Við
vitum hvað þarf til að kaupmaður
inn á horninu virki. Það þarf fólk að
búa nálægt þessu horni, til að það
komi labbandi í búðina.“
Og hér nefnir Gísli stórt vanda
mál. Félagslega einangrun fólks
og neikvæð áhrif hennar á sam
félagið. „Að byggja umhverfi sem
leiðir til félagslegrar þátttöku, til
þess að þú hittir einhvern, hvort
sem það er konan sem afgreiðir
þig í versluninni eða gaurinn sem
býr til kaffi handa þér á morgnana
eða kennararnir í skólanum sem þú
ferð með krakkana þína í. Þetta eru
allt svona tilviljanakennd, félags
leg tengsl sem skipta öllu máli fyrir
okkur sem samfélag.“ Gísli nefnir
einangrun kvenna sem varð í kjöl
far bílabyltingarinnar þegar hrað
brautir í Reykjavík gerðu það kleift
að byggja hverfi langt í burtu frá
miðborginni. Þangað f luttu fjöl
skyldur og á meðan karlinn brunaði
í vinnuna á eina bíl heimilisins var
konan einangruð heima.
Það má halda fram hjá
Gísli segist sannfærður um að
Reykjavík sé að þróast í rétta átt
og nefnir að á fundi samtaka um
bíllausan lífsstíl á dögunum hafi
oddvitar allra f lokka í Reykjavík
verið sammála um að bæta þurfi
almenningssamgöngur og draga
úr bílaumferð. „Þetta er alveg glæ
nýtt. Svo ráða kjósendur hverjum
þeir trúa í þessum efnum en það er
engin spurning að fyrir bara örfáum
mánuðum hefðu þau ekki öll svarað
þessu svona. Svo eru í öllum flokk
unum misstórir hópar auðvitað sem
róa í þveröfuga átt.
Er þetta kannski ástæða þess að
fólk hagar atkvæði sínu oft með allt
öðrum hætti í sveitarstjórnarkosn-
ingum en þingkosningum?
„Já, og í sveitarstjórnarkosn
ingum er fólk meira til í að halda
fram hjá flokknum sínum og það er
meira leyfi til að prófa aðra hluti.“
Hann nefnir sem dæmi persónu
fylgi Davíðs Oddssonar sem tryggði
Sjálfstæðisf lokknum 60 prósent
atkvæða 1990. Stórsigur Jóns Gnarr
2010 og hve miklu stærri Samfylk
ingin er í Reykjavík en á landsvísu.
Sjálfur þurfti Gísli að hafa fyrir
sínu atkvæði. Íslenski Eurovision
hópurinn f laug til Tórínó aðfara
nótt síðasta laugardags og í stað
þess að senda föstudagsþátt Gísla,
Vikuna, beint út eins og venjan er,
var hann tekinn upp fyrr um dag
inn. Gísli hafði þá hugsað sér að fara
í Holtagarða og kjósa eftir tökur á
þættinum.
„Svo tók eftirvinnslan töluverðan
tíma þannig að ég var að koma út
úr útvarpshúsinu á slaginu átta og
fattaði þá að Holtagarðar lokuðu
klukkan átta. Þá voru góð ráð dýr
og ég fór að gúggla ræðismanninn
í Mílanó, en áttaði mig svo á að við
vorum með þriggja tíma stopp á
Kastrup á leiðinni hingað út. Þegar
við lentum þar hljóp ég út og inn í
leigubíl, og fór á honum í íslenska
sendiráðið sem var með sérstaka
opnun út af kosningunum. Þar lét ég
leigubílinn bíða meðan ég fór inn og
kaus. En ég þurfti að koma atkvæð
inu mínu sjálfur til skila heim og þar
sem ég vildi ekki missa af fluginu til
Mílanó, tók ég atkvæðið með mér
inn í leigubílinn, út á Kastrup og
upp í vél. Þegar hingað til Tórínó var
komið leitaði ég svo og fann DHL
hraðsendingarþjónustu og sendi
atkvæðið þannig heim. Nú er ég
búinn að fá ljósmynd til sönnunar
á að því hafi verið veitt viðtaka.
Það er ansi vel í lagt?
„Já, ég geri hvað sem er fyrir góða
Reykjavík.“
Það kom í ljós í borgarfulltrúatíð
Gísla Marteins hve oft hann sigldi
á móti straumnum í eigin f lokki.
Hann var borgarfulltrúi fyrir Sjálf
stæðisf lokkinn og mætti oft and
stöðu meðal flokksfélaga sinna við
þá stefnu sem hann tók í borgar
málum. Hann hefur heldur ekki
farið leynt með dálæti sitt á stjórn
málafólki í öðrum flokkum.
„Það koma jafnmargar kvartanir
undan því upp á RÚV hvað ég sé
mikill Sjálfstæðismaður og undan
því hvað ég sé vondur við Sjálfstæð
isflokkinn,“ segir hann og segir það
góða stöðu að vera í fyrir fjölmiðla
mann, að enginn eigi mann. „Mér
finnst það mjög góð staða að vera í
að vita sjálfur ekkert endilega fyrir
kosningar hvað ég ætla að kjósa en
þurfa bara að taka afstöðu til mál
anna. En ég var ekki lengi að greiða
atkvæði núna og er mjög ánægður
með það sem ég kaus.“
Gísli er ekki síður áhugamaður
um kosningar og kosningasjónvarp
en borgarmál og Eurovision.
„Kosningakvöld eru algerlega
heilög kvöld. Þetta verður náttúr
lega svo furðulegt kvöld núna.
Kosningasjónvarpið byrjar klukkan
tíu og þá klára Eurovisionaðdá
endur með mér á RÚV 2. Ég fer svo
lóðbeint yfir í kosningasjónvarpið
til að fylgjast með því.“
Eurovison skemmtilegur kíkir
Systurnar komust upp úr sínum
undanriðli á þriðjudag og taka þátt
í úrslitakvöldinu í kvöld.
Gísli segir íslenska hópinn úti
hafa verið undir allt búinn og að
væntingarnar hafi verið í hófi.
Hann hafi hins vegar fengið mjög
góða tilfinningu þegar Systurnar
f luttu sitt atriði í beinni. Atriðin
á undan þeim hafi ekki verið að
gera sitt besta. „En svo koma okkar
stelpur og gersamlega negla sinn
Þótt hægt sé að
finna stund milli
stríða er heil-
mikil vinna að
lýsa Eurovision.
Kvöldin þrjú eru
löng og hand-
ritið þarf að
vera á hreinu.
Mynd/Gísli BerG
Elísabet Unnur,
Vigdís Freyja,
Vala Ágústa og
Gísli Marteinn
með hundinn
Tinna skömmu
áður en hann
féll frá.
Mynd úr
einkasafni
Ég tók upp
alla þætti
Hemma
Gunn á
VHS og
horfði á þá
aftur og
aftur. Ég
spólaði
bara yfir
tónlistarat-
riðin því
það voru
viðtölin
sem mér
fannst svo
skemmti-
leg.
Ég var ekki
lengi að
greiða
atkvæði
núna og er
mjög
ánægður
með það
sem ég
kaus.
32 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið