Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 42
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson
Svanhildur Ólafsdóttir er
félagsráðgjafi og fjölskyldu-
fræðingur auk þess að starfa
sem teymisstjóri Geðheilsu-
teymis Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands. Þar sinnir hún
teymisstjórnun, stjórn mála,
meðferðum og hópstarfi.
Svanhildur útskrifaðist sem félags
ráðgjafi 2015 og sem fjölskyldu
fræðingur árið 2018 og hefur nýtt
námið í starfi frá því námið hófst
því hver lota gagnaðist inn í vinnu
hennar á meðan námið stóð yfir.
Þegar Svanhildur er spurð hver
sé sérstaða hennar, svarar hún:
,,Sérstaða mín í starfi er með
ferðarvinna með einstaklingum
með greinda geðsjúkdóma. Fjöl
skyldufræðin er mjög gagnleg í þá
vinnu þar sem hver einstaklingur
í þjónustu á fjölskyldu og oft er
unnið með parsambandið eða
samskipti fjölskyldunnar í með
ferðinni,“ segir hún.
Svanhildur segir að málefni fjöl
skyldunnar hafi alla tíða heillað
sig. ,,Samskipti, fjölskylduarfurinn
og hvernig hann birtist í daglegu
lífi fólks, áhrif áfalla og birtingar
mynd mismunandi fjölskyldu
kerfa, eru þau verkefni sem mér
finnst einna skemmtilegast að
vinna með fólki,“ greinir Svan
hildur frá.
Er þetta starf ólíkt því sem þú
hefur fengist við áður?
,,Fjölskyldumeðferðarnámið
var mjög góð viðbót við félagsráð
gjafamenntunina. Í náminu fékk
ég önnur verkfæri til að vinna með
og aðstoða fólk í sinni vegferð.
Námið veitti mér færni til að beita
meðferð og nálgast málefni fjöl
skyldunnar út frá mörgum sjónar
hornum.
Fjölskyldumeðferð er kannski
ekki svo ólík öðrum störfum sem
ég hef unnið sem félagsráðgjafi en
ég beiti mér sem meðferðaraðili á
annan hátt en ég gerði áður.“
Þegar Svanhildur er spurð
hvort starfið taki ekki stundum
á þegar hún fáist við erfið mál
efni, svarar hún: ,,Ég held að það
sé óhjákvæmilegt þegar unnið er
með fólki á mismunandi stöðum
í lífinu, að það taki á mann sem
meðferðaraðila. Reynsla og sögur
fólksins hafa oft áhrif á mann og
sum mál sitja dýpra í manni en
önnur. Það sem vegur þó meira er
traustið og einlægnin sem hver og
einn skjólstæðingur er tilbúinn
að gefa af sér í meðferðinni og
árangurinn í starfinu sést best á
bættri líðan skjólstæðinganna.
Starfið er eins ólíkt frá degi til dags
og við erum mörg. Það eru stöðugt
ný verkefni, nýjar hliðar á mál
unum og nýjar áskoranir sem þarf
að takast á við.“
Er góður aðbúnaður fyrir starfs-
menn og skjólstæðinga á þínum
vinnustað?
,,Aðbúnaðurinn mætti vera
mun betri og er vinnan við að
bæta hann hafin. Engu að síður
reynum við að gera gott úr því sem
við höfum og leggjum áherslu á
hlýlegt umhverfi og persónulega
þjónustu. Starfsandinn hér er mjög
góður og tel ég það skila sér til
okkar skjólstæðinga.“
En á Svanhildur einhver áhuga-
mál utan vinnunnar?
,,Samvera með fjölskyldunni er
mitt helsta áhugamál. Samvera
með fólkinu mínu, útivist, ferðalög
og hreyfing er það sem bætir mína
geðheilsu.“ n
Fjölskyldumál hafa alltaf heillað
Svanhildur Ólafsdóttir er félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur auk þess að
starfa sem teymisstjóri Geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
MYND/AÐSEND
Reynsla og sögur
fólksins hafa oft
áhrif á mann og sum
mál sitja dýpra í manni
en önnur. Það sem
vegur þó meira er
traustið og einlægnin
sem hver og einn skjól-
stæðingur er tilbúinn
að gefa af sér í meðferð-
inni.
Þegar fjölskyldur
standa frammi
fyrir miklum breyting-
um raskast stöðugleik-
inn. Þá getur reynst vel
að fá annað sjónarhorn
og stuðning til að ná
stöðugleika á ný.
Jóhann Pétursson
„Fjölgun fjölskyldufræðinga síðustu
ár er mjög ánægjuleg og eftirspurn
eftir liðsstyrk fjölskyldufræðinga
hefur sömuleiðis aukist með ári
hverju. Fjölskyldan er hornsteinn
samfélagsins og við tökumst á við
ýmsar áskoranir henni tengdar. Því
er oft gott að leita til fagfólks með
sérmenntun á þessu sviði til að fá
aðstoð,“ segir Ólöf Birna Björns
dóttir, formaður stjórnar Fjöl
skyldufræðingafélags Íslands.
Allir tilheyra fjölskyldum
Fjölskyldumeðferð miðar að því
að hjálpa fjölskyldum að breyta og
bæta líðan sína út frá heildinni.
„Fjölskyldumeðferð er svipuð
öðrum viðtalsmeðferðum, nema
fjölskyldan, eða hluti hennar,
jafnvel einn fjölskyldumeðlimur,
kemur til meðferðar. Horft er
á heildina til að komast að rót
vandans og uppræta hann. Fjöl
skyldumeðferð skoðar því tengslin,
heildina, kerfin, hlutverk ein
staklingsins og áhrif fólks á hvert
annað, frekar en að einblína á einn
og afmarkaðan vanda,“ útskýrir
Ólöf Birna.
Hún segir fjölskyldur fjölbreytt
ar og ólíkt samsettar en að allir
tilheyri fjölskyldum og eftirspurn
eftir fjölskyldumeðferð hafi aukist
jafnt og þétt.
„Kannski sér í lagi því það
reynir mikið á samskipti í dag og
öll viljum við eiga í góðum sam
skiptum við okkar nánustu. Þá
kemur fjölskyldumeðferð að góðu
gagni sem gagnreynd viðtalsmeð
ferð sem hjálpar fjölskyldum að
takast á við ólíkan vanda og stilla
saman strengi.“
Snemmtæk íhlutun best
Fjölskyldumeðferð gagnast öllum
sem tilheyra fjölskyldu og vilja
bæta líðan sína og samskipti.
„Þegar fjölskyldur standa
frammi fyrir miklum breytingum
raskast stöðugleikinn. Þar má
nefna áskoranir í uppeldi, fjölgun
í fjölskyldunni, sorg, skilnað,
veikindi og annað, og þá getur
reynst vel að fá annað sjónarhorn
og stuðning til að ná stöðugleika
á ný,“ segir Jóhann Pétursson, fjöl
skyldufræðingur í stjórn félagsins.
Fjölskyldufræðingar aðstoða
fólk í ólíkum aðstæðum og þeir
hafa ólíka sérhæfingu.
„Fjölskyldufræðingar aðstoða
við uppeldi, eru mikið í paravinnu
og veita stuðning þegar einhver í
fjölskyldunni veikist, svo eitthvað
sé nefnt. Okkar tilfinning er sú að
fólk leiti til fjölskyldufræðings fyrr
en áður og meiri líkur eru á að fá
góða aðstoð þegar gripið er fyrr
inn í en ella. Í samfélagi nútímans
er mikið rætt um snemmtæka
íhlutun og það á við í okkar starfi,“
segir fjölskyldufræðingurinn
Soffía Bæringsdóttir, líka í stjórn
félagsins.
Allir vilja góð samskipti
Fjölskyldufræðingar finna vel í
sínu starfi að fjölskyldur og ein
staklingar eru í dag meðvitaðri um
samskipti sín við aðra og vilja fá
aðstoð við að leysa úr hlutunum.
„Það er alltaf af hinu góða og við
það aukast lífsgæði okkar. Hins
vegar hefur þörfin verið mjög lengi
til staðar og er enn að koma upp á
yfirborðið. Með meiri vitneskju og
vilja fyrir betri lífsgæðum leitum
við frekar til fagaðila á tíma
mótum. Við sjáum ekki bara aukna
vitund um mikilvægi fjöl skyldu
nálgunar hjá fjölskyldum, heldur
líka hjá fagfólki. Þörfin hefur því
alltaf verið til staðar en sífellt f leiri
sækja sér aðstoð við alls kyns fjöl
skyldumál,“ segir Soffía.
Hún segir nýju farsældarlögin
um samþætta þjónustu í þágu
farsældar barna vera gott dæmi
um aukna meðvitund og mikilvæg
skref.
„Í farsældarlögunum er sam
þætt þjónusta í þágu velferðar og
farsældar barna og foreldra eða
umönnunaraðila þeirra. Það er
gríðarlega mikilvægt skref að mati
okkar fjölskyldufræðinga. Þessi
nýju lög leggja mikið upp úr því að
mæta börnum og fjölskyldum, og
þar eru fjölskyldufræðingar mikil
vægir meðferðaraðilar með sína
sérþekkingu.“
Gagnreynt úrræði
Fjölskyldufræðingar starfa víða
í samfélaginu. Þeir eru mikilvæg
fagstétt og góð viðbót við með
ferðarflóruna.
„Fjölskyldufræðingar starfa í
heilbrigðisgeiranum, hjá sveitar
félögunum, í menntakerfinu, hjá
sýslumanni og fjölskylduþjónustu
kirkjunnar. Einnig hjá félaga
samtökum eins og Stígamótum,
Íslenskri ættleiðingu og Foreldra
húsi. Auk þess starfa fjölskyldu
fræðingar sjálfstætt víðast hvar
um landið. Þeir eru yfirleitt með
ólíka sérhæfingu sín á milli og er
hægt að nálgast upplýsingar um
fjölskyldufræðinga í félaginu á
vefsíðunni fjolskyldumedferd.is,“
greinir Jóhann frá.
Enn sem komið er skortir
starfsheitið fjölskyldufræðingur
löggildingu.
„Því er brýnt að breyta sem
fyrst því fjölskyldumeðferð er
gagnreynt úrræði. Við viljum að
skjólstæðingar njóti verndar og
réttinda til jafns við aðrar með
ferðarstéttir. Fjölskyldumeðferð
er klínísk háskólamenntun sem
á fullt erindi með löggiltum fag
stéttum sem sinna klínískri með
ferð,“ segir Jóhann.
Fjölskyldufræðingafélag Íslands
sótti um löggildingu til heilbrigðis
ráðuneytisins árið 2019 en fékk
höfnun.
„Til að tryggja gæði þjónustunn
ar og öryggi þeirra sem til okkar
leita er mikilvægt að þetta náist í
gegn sem fyrst. Það er fullur hugur
hjá stjórn félagsins að halda þeirri
vinnu áfram því það er mikilvægt
fyrir fólkið sem við aðstoðum, sem
og okkur fagfólkið.“
Framtíðin er björt
Framtíðarsýn Fjölskyldufræð
ingafélagsins er aukin þjónusta
við fjölskyldur og að aðgengi að
fjölskyldumeðferð verði betri og
einfaldari.
„Einnig að fá löggildingu, sem
er mikið réttlætismál svo fag
mennska verði tryggð í hvívetna.
Framtíðin er björt, fjölskyldu
fræðingum er að fjölga, þörf fyrir
þessa fagþekkingu að aukast og við
hlökkum til komandi verkefna,“
segir Ólöf Birna.
Allar nánari upplýsingar um fjöl-
skyldufræðinga og fjölskyldu-
meðferðir á fjolskyldumedferd.is
Jóhann Pétursson og Ólöf Birna Björnsdóttir segja viðtalsmeðferð hjálpa
fjölskyldum að takast á við vanda og stilla saman strengi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 14. maí 2022 LAUGARDAGURFjölskylduFr æðingaFélag Íslands