Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 58

Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 58
Yfirvélstjóra vantar í afleysingu á Línubátinn Fjölnir GK 157 Skiptikerfi (2 og 2) fram að sumarstoppi. Upplýsingar í síma 856-5700 Kjartan. Starfsfólk óskast á Reykhólum Verkefnastjóri og starfsfólk óskast í vaktavinnu í skammtímavistun hjá 15 ára stúlku á Reykhólum. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi. Einnig vantar tvo sumarstarfsmenn í liðveislu með sömu stúlku í júní, júlí og ágúst. Sá möguleiki er fyrir hendi að sumarstarfsmennirnir verði áfram á Reykhólum eftir sumarið og vinni á skamtíma- vistuninni í framhaldi. Umsækjendur geta fengið hjálp við að finna hentugt húsnæði á staðnum, sé þess óskað. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2022. Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmunds- dóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík. Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is. kopavogur.is Menntasvið Kópavogsbæjar rekur 19 leikskóla í sveitarfélaginu. Í leikskólum Kópavogs eru u.þ.b. 2100 börn og um 700 starfsmenn í um 550 stöðugildum. Kópavogsbær er barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag þar sem leikskólarnir vinna að innleiðingu Barnasáttmálans í öllu sínu starfi. Starf leikskóla Kópavogs einkennist af faglegum metnaði þar sem lögð er áhersla á skapandi og ánægjulegt starfsumhverfi barna og starfsmanna. Talmeinafræðingur sinnir m.a. greiningum á málþroska- og framburðarfrávikum, talþjálfun, ráðgjöf og fræðslu til foreldra og starfsfólks leikskóla. Mikilvægt er að talmeinafræðingur sé jákvæður og upp- byggjandi í samskiptum, hafi ríkan vilja til að ná árangri og brennandi áhuga á að veita börnum þjálfun og sinna fræðslu til foreldra og starfsfólks. Menntunar- og hæfniskröfur · Löggiltur talmeinafræðingur. · Réttindi á helstu próftæki. · Reynsla af vinnu með börnum á leikskólaaldri æskileg. · Góð færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og vönduð vinnubrögð. · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi. · Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti. · Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi við aðra sérfræðinga · Ef ekki fæst löggiltur talmeinafræðingur kemur til greina að ráðinn verði nýútskrifaður talmeina- fræðingur, þ.e. án löggildingar, sem starfar undir eftirliti og handleiðslu reynds talmeinafræðings. Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2022. Ráðið verður í stöðuna eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/ Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð. Talmeinafræðingur á leikskóladeild Kópavogsbæjar Umsóknarfrestur er til og með 27. maí n.k. Allar nánari upplýsingar á www.starfatorg.is MAR styrkir hópinn Í nýju matvælaráðuneyti mætast málaflokkar sjávar- útvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Áhersla er lögð á loftslagsmál, aðgengi að hollum mat og fæðuöryggi landsmanna. Einnig ábyrga umgengni við náttúru, sjálfbæra nýtingu auðlinda, öfluga nýsköpun og vöruþróun matvæla í hæsta gæðaflokki. Í ráðuneytinu starfar samhentur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og umfangsmikla sérfræðiþekkingu. Málaflokkarnir eru mikilvægir, verkefnin ærin og andinn er léttur. Við leitum að drífandi einstaklingum, sem þrífast á spennandi verkefnum, sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi. Við viljum fá jákvæða einstaklinga sem búa yfir skipulagshæfileikum, geta fylgt verkefnum vel eftir, hafa mikla samskiptafærni, þreytast ekki á að leita lausna og hafa áhuga á því að eflast í starfi. Sérfræðingur á skrifstofu landbúnaðar Sérfræðingurinn mun vinna við stefnumótun á sviði landbúnaðar, framkvæmd búvörusamninga og loftslags- og umhverfismál á sviði landbúnaðar. Einnig samskipti við hagaðila og önnur tilfallandi verkefni á málefnasviðinu. Sérfræðingur á skrifstofu fjármála Sérfræðingurinn mun koma að margvíslegum verk- efnum varðandi mannauðsmál, gæðamál og þjónustu við starfsmenn ráðuneytisins. Starfið felst meðal annars í launavinnslu, vinnu við jafnlaunavottun, stuðning við nýráðningar og önnur tengd mannauðs- mál. Einnig umsjón með ferðareikningum ráðuneytisins ásamt öðrum fjölbreyttum verkefnum er lúta að mannauðs- og fjármálum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.