Fréttablaðið - 14.05.2022, Síða 59
Embætti aðstoðaryfirtollvarðar á Keflavíkurflugvelli
Um er að ræða starf hjá Skattinum-Tollgæslu Íslands á Keflavíkurflugvelli en meginverkefni
þeirrar starfsstöðvar lúta að eftirliti og afgreiðslu á farþegum sem og hraðsendingum.
Aðstoðaryfirtollvörður er yfirtollverði á Keflavíkurflugvelli til aðstoðar. Starfið er fjölbreytt og
lifandi og hentar jafnt konum sem körlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoðaryfirtollvörður aðstoðar yfirtollvörð við daglegan rekstur í tollframkvæmd sem og aðstoðar við
stjórnun starfsmanna, en undir það fellur m.a. ýmiss konar umsýsla sem snertir vaktavinnufólk. Hann tekur
þátt í umfangsmiklu samstarfi milli starfsmanna og deilda innan embættisins og í samstarfi við önnur
stjórnvöld innanlands og erlendis. Aðstoðaryfirtollvörður afgreiðir einnig erindi innan og utan stofnunarinnar
í umboði yfirtollvarðar ásamt því að greiða götu þeirra sem eiga í samskiptum við embættið, en þar undir
fellur einnig að leiðbeina og aðstoða viðskiptamenn varðandi tollframkvæmd.
Aðstoðaryfirtollvörður heldur utan um og ber ábyrgð á úrvinnslu og upplýsingagjöf tengt tölfræðigögnum og
árangursmælingum á starfsstöðinni sem er nýtt fyrir fjölmiðla, ársskýrslur og til stjórnendalegra ákvarðana.
Hann tryggir að stefnu stofnunarinnar sé fylgt, kemur að gerð stöðumats og eftirlitsáætlunar fyrir
viðkomandi starfssvæði og stuðlar að uppfærslu og innleiðingu á verklagi og ferlum sem gildir í starfseminni.
Hann leggur jafnframt til umbætur þegar við á. Þá sinnir hann enn fremur öðrum verkefnum samkvæmt
ákvörðun næsta yfirmanns.
Hæfniskilyrði
• Stúdentspróf eða sambærilegt nám er skilyrði. Einnig þarf starfsmaður að hafa lokið
prófi frá Tollskóla ríkisins áður en til skipunar kemur.
• Reynsla af stjórnunarstörfum.
• Víðtæk þekking á lögum og reglum er lúta að tollamálum sem og tolleftirlitsferlinu.
• Greiningarhæfni og reynsla af greiningarstörfum.
• Reynsla af vinnslu tölfræðigagna og samantektar á skýrslum.
• Þekking á kjarasamningum út frá störfum vaktavinnumanna.
• Framúrskarandi skipulags- og leiðtogahæfni.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Að geta sýnt sveigjanleika í starfi.
• Mjög góð tölvufærni sem nýtist í starfi, t.d. mjög góð kunnátta á Excel.
• Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti á íslensku og ensku.
• Hæfni til frumkvæðis, sjálfstæðra og traustra vinnubragða sem og teymisvinnu.
• Almenn ökuréttindi.
Háskólamenntun eða annað nám sem nýtist í starfi og þekking á einu Norðurlandatungumáli er kostur.
Frekari upplýsingar
Um er að ræða fullt starf í dagvinnu og er megin starfsstöð á Keflavíkurflugvelli. Sett verður í embættið
til reynslu í eitt ár sbr. 24. gr. laga nr. 70/1996. Ákvörðun um skipun í embættið til fimm ára verður tekin
að reynslutíma loknum. Í tengslum við ráðningu aðstoðaryfirtollvarðar þurfa umsækjendur sem ekki
hafa lokið Tollskóla ríkisins að þreyta inntökupróf/þrekpróf, en nánari upplýsingar um það er að finna á
https://www.skatturinn.is/um-rsk/tollskoli-rikisins/inntokuprof/inntokuprof
Umsóknir skulu fylltar út á www.starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun,
fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Enginn verður skipaður til starfans sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi.
Um nánari skilyrði fer skv. 6. gr. laga nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur
verið tekin um ráðningu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir, yfirtollvörður, í síma 442-1000 eða í
tölvupósti á gudrun.s.rikardsdottir@skatturinn.is
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is