Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 71
MENNTUNARSJÓÐUR
Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Menntunarsjóði Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur
Sjóðurinn er ætlaður þeim sem hyggja á nám
á skólaárinu 2022-2023
Umsókn verður afgreidd þegar öll umbeðin gögn hafa
borist og staðfesting hefur fengist á skólavist.
Um er að ræða styrk til greiðslu skólagjalda (að ákveðnu
hámarki), bókakaupa eða annars sem gerir umsækjanda
kleift að stunda og ljúka námi.
Umsóknarfrestur rennur út 20. júní 2022
Umsókn þarf að fylgja:
- skattskýrsla síðasta árs
- staðfesting á námsvist
Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og allar nánari
upplýsingar eru á heimasíðu Menntunarsjóðsins á vef
Mæðrastyrksnefndar - www.maedur.is -
og Facebook síðu Menntunarsjóðsins.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Hönnun á breytingum og
viðbyggingum á fangelsinu
Litla-Hrauni
Ríkiskaup f.h. Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna óska eftir
umsækjendum til að taka þátt í forvali á hönnun á breytingum
á núverandi húsnæði og þrem nýbyggingum við fangelsið á
Litla Hrauni.
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum. Að loknu forvali
mun verkkaupi velja fimm fyrirtæki úr hópi hæfra umsækj-
enda til þátttöku í lokuðu útboði.
Þeir umsækjendur sem boðið verður að taka þátt í lokaða
útboðinu munu vinna að gerð skissutillagna fyrir verkefnið
í samráði við verkkaupa og notendur og að því loknu skila inn
verðtilboði í fullnaðarhönnun á sínum tillögum ásamt deili-
skipulagsgerð. Gert er ráð fyrir að greiða hverjum þeirra
fimm sem þiggja boð um þátttöku kr. 2.000.000 fyrir skissu-
tillögugerð og tilboðsgerð.
Fullnaðarhönnun heildarverkefnisins snýr m.a.
að eftirfarandi áföngum:
• Gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að þrjár nýjar
byggingar á svæðinu.
• Nýtt þjónustuhús með aðstöðu fyrir ráðgjafa og sálfræð-
inga, aðstöðu fyrir aðila sem þjónusta fangelsið, gesta-
móttöku, starfsmannaaðstöðu og fl.
• Ný varðstofa milli fangelsisálma
• Nýtt fjölnotahús á lóðinni.
• Helstu breytingar og endurbætur verða á elsta húsinu
þar sem m.a. ný kennsluaðstaða verður ásamt skrifstofu-
álmu o.fl.
Áætlaðar stærðir í verkefninu eru:
Nýbyggingar fyrir starfsemina eru áætlaðar 1.300 fm
Endurgerð á núverandi húsnæði 2.000 fm
Lagfæringar á lóð og umhverfi með uppskiptingu svæða.
Útboð á síðari stigum verða lokuð öðrum en þeim sem tekið
hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Gögnin eru á útboðsvefnum www.Tendsign.is, útboðsnúmer
21698. Óski þátttakendur frekari upplýsinga má senda
fyrirspurn í útboðskerfinu.
FORVAL
ÚTBOÐ URRIÐAHOLTSSKÓLI 2. ÁFANGI
gardabaer.is
GARÐABÆR AUGLÝSIR EFTIR TILBOÐUM Í VERKIÐ: URRIÐAHOLTSSKÓLI 2. ÁFANGI - UPPSTEYPA OG
FULLNAÐARFRÁGANGUR HÚSS OG LÓÐAR. ÚTBOÐIÐ ER ALMENNT OPIÐ ÚTBOÐ.
Urriðaholtsskóli í Garðabæ er nýr heildstæður skóli fyrir 1.- 10. bekk, ásamt 6 deilda leikskóla.
Sambyggt skólanum verður jafnframt íþróttahús og sundlaug (3. áfangi).
Byggingin er 2ja hæða skólabygging auk kjallara að hluta. 2. áfangi verður sambyggður við
vesturgafl fyrri áfanga og að öllu leyti gerður eins og 1. áfangi. Staðsteyptur og einangraður að utan,
klæddur álpanelum, með steyptu flötu, einangruðu, dúklögðu og tyrfðu þaki. Jarðvinnu vegna þessa
áfanga er þegar lokið.
Byggingunni skal skilað fullbúinni að utan sem innan 29. desember 2023. Tveimur heimasvæðum
skal skila tilbúnum til notkunar 1. ágúst 2023. Hluta lóðarinnar skal skila fullfrágengnum
15. nóvember 2022.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og verða aðgengileg á vef
Garðabæjar, gardabaer.is, mánudaginn 16. maí 2022 kl. 16:00. Opnunartími tilboða er 20. júní 2022
kl 11:00 á Bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ, að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar
Við leiðum
fólk saman
hagvangur.is
ATVINNUBLAÐIÐ 29LAUGARDAGUR 14. maí 2022