Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 80

Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 80
Við leggjum áherslu á gólfvinnu innan skólanna þar sem við komum inn og skoðum skólaumhverfi barnsins og reynum að aðlaga þörfum barnsins. Lína Dögg Ásgeirsdóttir Rannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur af fjölskyldu- meðferð sem er meðferðar- vinna með pörum, fjöl- skyldum og hópum. Helga Þórðardóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur, hefur starfað sem félagsráð- gjafi í rúma fjóra áratugi. Fjölskyldumeðferð er sannreynd (e. evidenced based) og viður- kennd aðferð í meðferðarvinnu úti um allan heim og hafa rann- sóknir sýnt fram á góðan árangur af slíkri meðferðarvinnu, segir Helga Þórðardóttir, félagsráð- gjafi og fjölskyldufræðingur, sem hefur starfað sem félagsráðgjafi frá árinu 1981 eða í rúma fjóra áratugi. „Hugmyndafræðin byggir í grunninn á kerfiskenningum (e. systems theory), hugmyndum sem komu upp í kring um 1945. Aðferðafræðin hefur þróast og breyst mikið síðan og margir hugmyndafræðingar komið þar að, eins og Bertalanaffy, Bowen, Whitaker, Bowlby, Bateson, Haley og Munuchin, svo einhverjir séu nefndir. Þeir sem hafa mest haft áhrif í seinni tíð eru Steve de Shazer, Insoo Kim Berg og Michael White. Auðvitað eru margar ólíkar nálganir og aðferðir innan fræð- anna sem meðferðaraðilar sérhæfa sig í að beita og svo eru aðrir sem blanda mörgum aðferðum saman eftir því sem þeim finnst best henta hverju sinni.“ Á þeim árum sem námið hefur verið í boði hafa 142 einstaklingar útskrifast úr því og 35 útskrifast nú í júní. Fjölskyldufræðingar vinna mjög víða í samfélaginu, á ýmsum stofnunum og stofum um allt land. Fjölbreytt starfsreynsla Helga hóf störf sem félagsráð- gjafi og fjölskyldufræðingur eftir útskrift úr Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og hefur starfað við mennta-, félags- og heilbrigðismál síðan. Árin 1990-92 stundaði hún nám í fjölskyldumeðferð og fór svo til Hollands í meistaranám í félagsvísindum. „Síðustu árin hef ég starfað á geðsviði LSH, aðal- lega í átröskunarteymi. Árið 2007 opnaði ég mína eigin stofu, Lausn, Fjölskyldumeðferð er sannreynd og viðurkennd aðferð Helga Þórðar- dóttir, félags- ráðgjafi og fjölskyldu- fræðingur, hefur starfað sem félagsráðgjafi frá árinu 1981. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR fjölskyldumeðferð og ráðgjöf. Jafn- framt þessu hef ég verið kennslu- stjóri í fjölskyldumeðferðarnámi á meistarastigi við Endurmenntun HÍ. Námið er þverfaglegt, tveggja ára klínískt nám með vinnu, fyrir fagfólk á vettvangi.“ Jafnvægi skiptir máli Helga segir sérhæfingu fjölskyldu- fræðinga vera færni í að vinna meðferðarvinnu með pörum, fjölskyldum og hópum. Spurninga- tæknin og aðferðafræðin sem beitt er í meðferðinni og færnin til að halda jafnvægi milli aðila, eru mikilvægir þættir. „Það er mikil kúnst að vinna með tveimur eða fleirum í meðferð og krefst mikillar þjálfunar í aðferðafræði fjölskyldumeðferðar, yfirvegaðrar þekkingar í samskiptafærni og ekki síst að hafa unnið úr eigin áföllum og erfiðleikum.“ Til að geta hjálpað öðrum þarf meðferðaraðili auk þess að vera sjálfur á góðum stað og vera með- vitaður um eigin takmarkanir. „Í náminu er mikil áhersla lögð á sjálfsvinnu nemenda, en þeir eru í hóphandleiðslu reglulega í tvö ár og í æfingum í svokölluðu Nema- setri. Í Nemasetri fær nemandinn tækifæri til að taka viðtöl, og fær endurgjöf á vinnu sína. Í náminu eru starfandi sérfræðingar með mikla meðferðar- og kennslu- reynslu, auk erlendra sérfræð- inga.“ Sífellt aukin eftirspurn Eftirspurn eftir fjölskyldufræð- ingum hefur aukist og sér Helga fyrir sér að hún eigi eftir að aukast enn meira næstu árin. „Með meiri skilningi á mikilvægi fjölskyldunn- ar fyrir einstaklinginn og vellíðan hans, hafa samfélagslegar áherslur breyst. Við sjáum til dæmis núna í kosningabaráttu flokkanna í sveitarstjórnarkosningunum aukna áherslu á þennan málaflokk. Mikilvægt er að fjölskyldumeðferð sé í boði fyrir almenning, ekki síst fyrir barnafjölskyldur og fólk með alvarlega sjúkdóma.“ Fjölskyldumeðferð getur verið mjög fyrirbyggjandi sem snemm- tækt úrræði í skólum landsins, í barnaverndinni og á heilsu- gæslunni. „Aðgengi þarf auðvitað að vera þannig að þjónustan sé niðurgreidd og þannig sé fólki gert kleift að nýta sér þessa mikilvægu þjónustu. Fjölskyldufræðingar hafa verið í samningaviðræðum við Landlækni undanfarin ár um löggildingu starfsheitisins en ekki hefur það gengið fram að þessu, en vonandi á það eftir að breytast.“ n Lína Dögg Ásgeirsdóttir, fjölskyldufræðingur og fag- legur teymisstjóri í farteymi hjá Skóla- og frístundasviði, segir að nú sé verið að inn- leiða „betri borg fyrir börn“ og er lögð áhersla á lág- þröskuldaþjónustu þar sem þjónustan á að vera aðgengi- leg og sem næst þeim sem þurfa á henni að halda. „Núna erum við að innleiða „betri borg fyrir börn“,“ segir Lína Dögg Ásgeirsdóttir, fjölskyldufræðingur og faglegur teymisstjóri í farteymi hjá Skóla- og frístundasviði. „En „betri borg fyrir börn“ miðar að því að bæta þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í skóla- og frístundastarfi sem og að færa þjónustuna í auknum mæli í skólaumhverfi barna og ung- menna, veita viðeigandi stuðning sem fyrst og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs í þjónustumiðstöð hverfisins.“ Hér sé verið að tala um lágþröskulda- þjónustu þar sem þjónustan á að vera aðgengileg og sem næst þeim sem þurfa á henni að halda og þar er líka farið í að styðja við foreldra og forráðamenn barna. „Stundum erum við að kljást við börn sem eru í miklum erfiðleikum í skólaumhverfinu og svo kemur kannski í ljós að ástæða vanlíðanar barnsins eru erfiðleikar heima fyrir. Það gæti tengst skilnaði for- eldra og ólíkum uppeldisáherslum á báðum heimilum barnsins. Það er svo margt sem spilar inn í og mikilvægt að taka mið af þegar unnið er að betri líðan barnsins.“ Mikil samvinna Lína Dögg vinnur í grunnskóla- teymi á þjónustumiðstöð þar sem hún er faglegur teymisstjóri í sérúrræði sem vinnur með hegðunarvanda barna á grunn- skólaaldri. „Við leggjum áherslu á gólfvinnu innan skólanna þar sem við komum inn og skoðum skólaumhverfi barnsins og reynum að aðlaga þörfum barnsins. Við störfum alltaf í mikilli samvinnu við skóla sem og foreldra/forráða- menn barnsins.“ Í starfi sínu leggur Lína Dögg ríka áherslu á að barnið sé ekki eyland og sé ávallt í miklum sam- skiptum við foreldra. „Enda er mikilvægt að upplifun þeirra og rödd komi fram sem og tenging við líðan barnsins í fjölskyldu- umhverfi þess; ekkert barn í skóla er eyland heldur á barnið alltaf fjölskyldu. Líðan og upplifun for- eldra hefur áhrif á líðan barnsins innan veggja skólans. Til þess að tryggja bætta líðan barna innan grunnskólanna skiptir máli að horfa á heildina. Ég er sannfærð um að „betri borg fyrir börn“ muni verða til þess að kerfin fari að tala betur saman og að einmitt verði hægt að vinna með vanda barna á heildstæðari hátt og almennt styðja betur við fjölskyldur og grípa inn í fyrr.“ n Barnið er ekki eyland „Ég er sannfærð um að „betri borg fyrir börn“ muni verða til þess að kerfin fari að tala betur saman og að einmitt verði hægt að vinna með vanda barna á heildstæðari hátt,“ segir Lína Dögg Ásgeirsdóttir, fjölskyldufræðingur og fag- legur teymisstjóri hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 4 14. maí 2022 LAUGARDAGURFjölskylduFr æðingaFélag Íslands
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.