Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 88
Met var slegið á alþjóðlega listmarkaðnum í
vikunni þegar málverk eftir Andy Warhol var
selt hjá Christie’s í New York fyrir 195 milljónir
Bandaríkjadala sem er hæsta verð sem fengist
hefur fyrir bandarískt listaverk á uppboði.
Fréttablaðið tók saman lista yfir fimm dýrustu
listaverk sögunnar.
1 Frelsari heimsins eftir Leonardo da Vinci
Málverkið Salvator Mundi, Frelsari heimsins, er ekki
aðeins það dýrasta í listasögunni heldur var salan á
því árið 2017 einnig ein sú umdeildasta. Verkið er talið
vera frá því um árið 1500 og sýnir Jesú Krist klæddan
í endurreisnarföt með krossmerki á fingrum hægri
handar og kristalskúlu í vinstri hendi. Flestir listfræð-
ingar telja Salvator Mundi vera að mestu leyti málað
af aðstoðarmönnum Leonardo da Vinci og aðeins fín-
pússað af sjálfum meistaranum en efasemdir hafa lengi
ríkt um uppruna þess. Verkið var týnt í eina og hálfa öld
en endureignað da Vinci á uppboði árið 2005 og gert
ítarlega upp í kjölfarið, svo sumum listfræðingum þykir
um of. Eftir að hafa skipt nokkrum sinnum um hendur
endaði Salvator Mundi hjá Christie’s-uppboðshúsinu í
New York þar sem það seldist eftir langdregið uppboðs-
stríð fyrir 450 milljónir Bandaríkjadala, eða jafnvirði
um 59,6 milljarða íslenskra króna.* Nafni kaupandans
var haldið leyndu fyrst um sinn en síðar kom í ljós að
krónprins Sádí-Arabíu, Mohammed bin Salman, hreppti
hnossið. Lítið hefur farið fyrir málverkinu síðan þá og
ekki er vitað nákvæmlega hvar það er niðurkomið.
Ýmsar getgátur eru þó á lofti, allt frá fríverslunarsvæði í
Genf til lúxussnekkju krónprinsins.
*Miðað er við upphaflegt söluverð en ekki uppfært
verð miðað við verðbólgu.
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
5 Fánaberinn eftir Rembrandt*
De vaandeldrager eða Fánaberinn er sjálfsmynd
eftir Rembrandt frá 1636. Nokkur afrit eru til af
verkinu og er það talið mikilvægt verk frá fyrri hluta
ferils hollenska meistarans. Verkið var áður í eigu
franska listaverkasafnarans Élie de Rothschild og
hafði verið í eigu Rothschild-fjölskyldunnar frá 1844.
Fánaberinn var keyptur af Rijksmuseum, ríkislista-
safni Hollands, með stuðningi frá hollenska ríkinu
fyrir 175 milljónir evra í byrjun þessa árs, andvirði
um 24,4 milljarða íslenskra króna. Málverkið mun
ferðast um öll helstu listasöfn Hollands næstu árin
en fær svo framtíðarheimili í heiðursgalleríi Rijksmu-
seum.
*Fimmta dýrasta listaverkið er vissulega hið áður-
nefnda Number 17A eftir Jackson Pollock en vegna
þess að það hefur þegar verið nefnt í samhengi við
Interchange eftir Willem de Koonig var ákveðið að
fjalla um annað verk hér.
2 Víxlun eftir Willem de Koonig
Hollensk-bandaríski listamaðurinn Willem
de Koonig (1904–1997) var einn af braut-
ryðjendum abstrakt-expressjónismans um
miðja 20. öld. Olíumálverkið Interchange, eða
Víxlun, frá 1955 er lykilverk á ferli de Koonig
og talið marka kaflaskil í ferli listamannsins
þegar hann fór frá því að mála kvenmyndir
yfir í óhlutbundin landslagsverk. Í miðpunkti
verksins má sjá bleikan efnismassa með skellum
af rauðum, gulum, bláum og sægrænum lit, sem
táknar konu að halla sér aftur. Árið 2015 keypti
bandaríski viðskiptajöfurinn Kenneth C. Griffin
Interchange frá David Geffen-stofnuninni
fyrir 300 milljónir
Bandaríkjadala,
andvirði um 39,7
milljarða íslenskra
króna. Í sömu sölu
tryggði Griffin sér
málverkið Number
17A eftir Jackson
Pollock á litlar 200
milljónir Banda-
ríkjadala, sem gerir
hann að eiganda
annars og fimmta
dýrasta listaverks
sögunnar.
3 Spilamennirnir eftir Paul Cézanne
Franski listamaðurinn Paul Cézanne er einn
áhrifamesti listamaður síðimpressjónismans
og hafði mikil áhrif á uppgang módernismans og
á listamenn á borð við Pablo Picasso. Cézanne
málaði fimm málverk af mönnum sitjandi við borð
að spila á spil á árunum 1890-1894. Verkin eru allt
ólíkar útgáfur af sama þema í mismunandi stærð
með mismunandi fjölda spilara. Flest þessara
verka eru á listasöfnum víðs vegar um heim en eitt
þeirra, sem Cézanne málaði á milli 1892 og 1893,
var selt árið 2011 fyrir áður óséða upphæð. Verkið
hafði verið í eigu gríska skipafrömuðarins George
Embiricos en kaupandinn var konungsfjölskyldan í
Katar sem greiddi 250 milljónir Bandaríkjadala fyrir
gripinn, andvirði um 33 milljarða íslenskra króna.
4 Hvenær munt þú gifta þig? eftir Paul Gauguin
Árið 1891 fór franski listamaðurinn Paul Gauguin í fyrstu
heimsókn sína til eyjunnar Tahítí í Frönsku Pólýnesíu. Mark-
mið hans var að finna „Edens-líka paradís“ hvar hann gæti skapað
„hreina og frumstæða“ list. Gauguin heillaðist af menningu og
konum Frönsku Pólýnesíu og átti eftir að verja stærstum hluta ævi
sinnar á eyjaklasanum þar til hann lést 1903. Málverkið Nafea Faa
Ipoipo?, Hvenær munt þú gifta þig? á íslensku, var málað 1892 í
hinum litríka síð impressjóníska stíl sem átti eftir að gera Gauguin
heimsfrægan síðar meir. Á myndinni má sjá tvær ungar konur
sitjandi á jörðinni í litríku landslagi í bláum, grænum og gulllituðum.
Verkið var selt óþekktum kaupanda árið 2015, sem talið er að sé
meðlimur konungsfjölskyldu Katar, fyrir um 210 milljónir Banda-
ríkjadala, jafnvirði tæpra 27,8 milljarða íslenskra króna.
Dýrustu
listaverk
sögunnar
Umboðsmenn
keppast við að
bjóða í Salvator
Mundi eftir
Leonardo da
Vinci á uppboði
Christie’s í nóv-
ember 2017.
Fréttablaðið/EPa
38 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið