Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 90

Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 90
Mikið af þessum efnum fer í dag í brennslu, urðun og útflutning en mætti sinna betur. Sara Jónsdóttir 60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI astaxanthin Viltu einstaka vörn gegn geislum sólar og bætt rakastig húðarinnar? Öflug virkni fyrir glóandi húð Leiðir þeirra Söru Jónsdóttur og Maríu Kristínar Jónsdóttur lágu saman í miðstöð hönn- unar og arkitektúrs, en ýmsar breytingar á lífi beggja dýpk- uðu vinskapinn og svo fengu þær áskorun og hún varð að metnaðarfullu verkefni. Vi ð s k i p t a h u g m y n d þeirra um alþjóðlegt, rafrænt markaðstorg og þekkingarsamfélag sem setur afgangsefni í nýtt samhengi og fékk nafnið On to Something, hlaut fyrstu verðlaun í teymisf lokki viðskiptahraðals á vegum Háskóla Íslands og banda- ríska sendiráðsins á dögunum. Markmið hraðalsins er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahug- myndir sínar og fyrirtæki og auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. María Kristín er menntaður vöru- hönnuður og var ritstjóri og list- rænn stjórnandi HA, tímarits mið- stöðvar um hönnun og arkitektúr, í fjögur ár. „Tímaritið var svo sett í pásu árið 2020 vegna Covid enda þorði fólk ekki að snerta tímarit af ótta við smit.“ Sara menntaði sig í viðskipta- og markaðsfræði en örlögin höguðu því þannig að hún hefur minnst starfað við það. „Ég svo sem vissi alltaf að ég myndi vinna í krea- tívum bransa,“ segir Sara, sem starfaði lengi á auglýsingastofu og við almannatengsl. „Ég var að vinna hjá auglýsingastofu og við gerð sjón- varpsauglýsinga sá ég mikið um leikmynd og búninga. Þegar stofan svo flutti á milli húsnæða var ég svo lánsöm að fá að innrétta það,“ segir hún um upphafið á hönnunarferli sínum, en hún hefur meðal annars hannað kaffihús og verslanir Brauð & Co og Hygge, nýtt kaffihús í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg. Áskorun í matarboði Sara stjórnaði HönnunarMars í fjögur ár og þar kynntist hún Maríu Kristínu. „Við unnum ekki beint saman en á sömu skrifstofu. Það var í lok samstarfs okkar að við kynnt- umst betur enda báðar að fara í gegn- um miklar umbreytingar,“ segir Sara. Það var svo í matarboði hjá Kristínu Soffíu Jónsdóttur, fram- kvæmdastjóra Klaks, og vinkonu Maríu Kristínar, að hún heyrði fyrst af viðskiptahraðlinum Hringiðu hjá Klaki. „Kristín Soffía var þá nýbúin að setja á laggirnar þennan hraðal og skoraði á mig að koma með hug- mynd og sækja um. Þetta var í janúarlok á síðasta ári og hún sagði: Gera afgangamarkaðinn aðlaðandi Þær Sara og María Kristín vilja gera fyrir- tækjum auðvelt að losna við afgangsefni til þeirra sem geta nýtt þau. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI VIð lok AWE- hraðalsins voru verkefni tengd umhverfissjónarmiðum, sam- göngum, sjálfbærri ræktun, aðstoð við listamenn, umhverfisvæna verslun og veflausn tengd forvörnum gegn ofbeldi verðlaunuð. MYND/AÐSEND „Þið Sara eruð svo sniðugar, gerið þið eitthvað saman,“ rifjar María Kristín upp í léttum tón. „Við sátum í framhaldi yfir nokkr- um kaffibollum og spurðum okkur hvað við ættum að gera,“ bætir Sara við. „Við hugsuðum: „Hvað vantar og hvað höfum við fram að færa í hring- rásarhagkerfinu?“ Fundu hvar þörfin lá Þær fóru að skoða möguleikana og funduðu með fjölmörgum stofnun- um, fyrirtækjum og einstaklingum. „Við vorum að skoða hvar þörfin lá og hvernig við gætum tekið tvist á það,“ segir María Kristín og Sara bætir við að hugmyndin hafi þróast töluvert í hraðlinum þar sem þær fengu góðan stuðning. „Við vorum svo auðvitað í fullt af öðrum verkefnum, erum báðar fráskildar með haug af börnum og alltaf eitthvað havarí,“ segir Sara í léttum tón. „Við höfum til að mynda verið sýningarstjórar og stjórnað viðburðum en sóttum um í AWE- nýsköpunarhraðlinum sem Háskóli Íslands stendur fyrir í samvinnu við bandaríska sendiráðið. Það kjarnaði þetta vel fyrir okkur og við gerðum viðskiptaáætlun og fengum styrk frá Tækniþróunarsjóði sem mun- aði töluverðu til að vinna betur að þessu.“ En að hugmyndinni sjálfri. „Fyrirtæki og sveitarfélög hér og annars staðar eru að losa sig við efni sem nýta mætti sem hráefni í framleiðslu hjá öðrum. Þetta eru allar tegundir efna, við til dæmis vitum að bjórframleiðsla losar sig við rosalega mikið af geri sem þau geta ekki nýtt aftur en má nýta í aðra framleiðslu. Önnur fyrirtæki og stofnanir losa sig svo við fjöl- breytt verðmæt hráefni. Mikið af þessum efnum fer í dag í brennslu, urðun og útflutning en mætti sinna betur. Hingað til hafa fyrirtæki ekki verið að stæra sig af því hverju þau eru að farga en flest eru að gera sitt besta miðað við þær lausnir sem í dag bjóðast,“ útskýrir Sara. Gera markaðinn aðlaðandi „Við ætlum að færa þennan markað upp á yfirborðið og gera hann bæði aðgengilegan og aðlaðandi. Svo fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og stofn- anir sjái þessi efni sem ákjósanlegan kost sem hráefni í sína starfsemi,“ segir Sara og bætir við að einhver dæmi séu um viðskipti á þessum nótum. „En ef fólk ætlar sér að ná í slík hráefni er enginn staður til þess og það þarf að hringja fjöldamörg símtöl til að finna út úr því hvar það fær rétt efni. Við ætlum því að gera markaðstorg þar sem aðilar skrá sín afgangsefni svo aðrir geti séð hvað er í boði. Þetta er þannig viðskiptavettvangur fyrir fagaðila. Forsjáraðili fyrirtækisins velur svo hvort hann vilji selja efnið eða gefa það en alla vega losnar hann við að greiða fyrir förgun.“ Þar sem Sara hafði áður nefnt dæmi um bjórframleiðslu höldum við áfram í þeim geira: „Við vitum að ger má nýta í snyrtivöruframleiðslu og á einhverjum skala í brauðgerð aftur.“ Eins nefnir hún gott dæmi um þá nýtingu sem þær vilja gera almennari. „Við vitum að hrat úr byggi sem notað er í bjórframleiðslu fer beint í svínafóður sem er frábært dæmi um svona nýtingu. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða viðskipta- hugmyndir munu spretta úr þessu, þegar fólk er allt í einu komið með þetta hlaðborð fyrir framan sig.“ Fagurfræðin er X-faktorinn María segir þær ætla að nýta sér reynslu sína úr skapandi geiranum við útfærslu á nálgun sinni. „Við höfum verið spurðar hver sé okkar X-faktor og hvers vegna fólk geti ekki bara notað þau markaðstorg sem fyrir eru. En við nálgumst þetta út frá fagurfræðilegu sjónarhorni og On to Something verður útlitslega á pari við það helsta sem gerist í tísku og hönnun.“ María segir fyrirtæki sem eru framarlega í þessari þróun skilja það sem þær eru að fara. „Það er vöntun á þessu. Við hittum fullt af hönnuðum á HönnunarMars sem spurðu okkur um verðlaunin og þegar ég fór að útskýra um hvað þetta snerist kvikn- uðu margar perur. Þessi hugmynd er til dæmis verðmæt fyrir hönnunar- geirann, vísindasamfélagið og frum- kvöðla. Enda hafa fæstir ráðrúm til að hringja um allt til að kanna hvort hægt sé að nýta afgangsefni frá þeim. En þegar þetta er allt komið á einn stað verður þetta svo mikið auð- veldara fyrir alla.“ Þær hugsa stórt og sjá fyrir sér að fara á alþjóðamarkað þegar fram í sækir. „En þá skiptir máli að láta þetta ganga upp innan landsvæða til að spara kolefnisfótsporið.“ Aðspurðar hvenær síðan fari í loftið segjast þær vera að leita eftir frekara fjármagni til að koma fyrir- tækinu á flug. „Það er búið að hanna grunnútlit síðunnar og næsta skref er að fara í hugbúnaðargerð. Við erum komnar með samninga við nokkur fram- sækin stórfyrirtæki sem verða með okkur í að þróa næstu skref,“ segja þær að lokum. ■ Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 40 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.