Fréttablaðið - 14.05.2022, Síða 90
Mikið af þessum
efnum fer í dag í
brennslu, urðun og
útflutning en mætti
sinna betur.
Sara Jónsdóttir
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
astaxanthin
Viltu einstaka vörn gegn geislum
sólar og bætt rakastig húðarinnar?
Öflug virkni fyrir glóandi húð
Leiðir þeirra Söru Jónsdóttur
og Maríu Kristínar Jónsdóttur
lágu saman í miðstöð hönn-
unar og arkitektúrs, en ýmsar
breytingar á lífi beggja dýpk-
uðu vinskapinn og svo fengu
þær áskorun og hún varð að
metnaðarfullu verkefni.
Vi ð s k i p t a h u g m y n d
þeirra um alþjóðlegt,
rafrænt markaðstorg
og þekkingarsamfélag
sem setur afgangsefni í
nýtt samhengi og fékk nafnið On to
Something, hlaut fyrstu verðlaun í
teymisf lokki viðskiptahraðals á
vegum Háskóla Íslands og banda-
ríska sendiráðsins á dögunum.
Markmið hraðalsins er að styðja
konur í að þróa áfram viðskiptahug-
myndir sínar og fyrirtæki og auka
hlut þeirra innan frumkvöðla- og
nýsköpunargeirans.
María Kristín er menntaður vöru-
hönnuður og var ritstjóri og list-
rænn stjórnandi HA, tímarits mið-
stöðvar um hönnun og arkitektúr,
í fjögur ár. „Tímaritið var svo sett í
pásu árið 2020 vegna Covid enda
þorði fólk ekki að snerta tímarit af
ótta við smit.“
Sara menntaði sig í viðskipta- og
markaðsfræði en örlögin höguðu
því þannig að hún hefur minnst
starfað við það. „Ég svo sem vissi
alltaf að ég myndi vinna í krea-
tívum bransa,“ segir Sara, sem
starfaði lengi á auglýsingastofu og
við almannatengsl. „Ég var að vinna
hjá auglýsingastofu og við gerð sjón-
varpsauglýsinga sá ég mikið um
leikmynd og búninga. Þegar stofan
svo flutti á milli húsnæða var ég svo
lánsöm að fá að innrétta það,“ segir
hún um upphafið á hönnunarferli
sínum, en hún hefur meðal annars
hannað kaffihús og verslanir Brauð
& Co og Hygge, nýtt kaffihús í gamla
Héðinshúsinu við Seljaveg.
Áskorun í matarboði
Sara stjórnaði HönnunarMars í
fjögur ár og þar kynntist hún Maríu
Kristínu. „Við unnum ekki beint
saman en á sömu skrifstofu. Það var
í lok samstarfs okkar að við kynnt-
umst betur enda báðar að fara í gegn-
um miklar umbreytingar,“ segir Sara.
Það var svo í matarboði hjá
Kristínu Soffíu Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Klaks, og vinkonu
Maríu Kristínar, að hún heyrði fyrst
af viðskiptahraðlinum Hringiðu hjá
Klaki.
„Kristín Soffía var þá nýbúin að
setja á laggirnar þennan hraðal og
skoraði á mig að koma með hug-
mynd og sækja um. Þetta var í
janúarlok á síðasta ári og hún sagði:
Gera afgangamarkaðinn aðlaðandi
Þær Sara og
María Kristín
vilja gera fyrir-
tækjum auðvelt
að losna við
afgangsefni
til þeirra sem
geta nýtt þau.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
VIð lok AWE- hraðalsins voru verkefni tengd umhverfissjónarmiðum, sam-
göngum, sjálfbærri ræktun, aðstoð við listamenn, umhverfisvæna verslun
og veflausn tengd forvörnum gegn ofbeldi verðlaunuð. MYND/AÐSEND
„Þið Sara eruð svo sniðugar, gerið
þið eitthvað saman,“ rifjar María
Kristín upp í léttum tón.
„Við sátum í framhaldi yfir nokkr-
um kaffibollum og spurðum okkur
hvað við ættum að gera,“ bætir Sara
við. „Við hugsuðum: „Hvað vantar og
hvað höfum við fram að færa í hring-
rásarhagkerfinu?“
Fundu hvar þörfin lá
Þær fóru að skoða möguleikana og
funduðu með fjölmörgum stofnun-
um, fyrirtækjum og einstaklingum.
„Við vorum að skoða hvar þörfin lá
og hvernig við gætum tekið tvist
á það,“ segir María Kristín og Sara
bætir við að hugmyndin hafi þróast
töluvert í hraðlinum þar sem þær
fengu góðan stuðning.
„Við vorum svo auðvitað í fullt
af öðrum verkefnum, erum báðar
fráskildar með haug af börnum og
alltaf eitthvað havarí,“ segir Sara í
léttum tón. „Við höfum til að mynda
verið sýningarstjórar og stjórnað
viðburðum en sóttum um í AWE-
nýsköpunarhraðlinum sem Háskóli
Íslands stendur fyrir í samvinnu við
bandaríska sendiráðið. Það kjarnaði
þetta vel fyrir okkur og við gerðum
viðskiptaáætlun og fengum styrk
frá Tækniþróunarsjóði sem mun-
aði töluverðu til að vinna betur að
þessu.“
En að hugmyndinni sjálfri.
„Fyrirtæki og sveitarfélög hér og
annars staðar eru að losa sig við
efni sem nýta mætti sem hráefni í
framleiðslu hjá öðrum. Þetta eru
allar tegundir efna, við til dæmis
vitum að bjórframleiðsla losar sig
við rosalega mikið af geri sem þau
geta ekki nýtt aftur en má nýta í
aðra framleiðslu. Önnur fyrirtæki
og stofnanir losa sig svo við fjöl-
breytt verðmæt hráefni. Mikið af
þessum efnum fer í dag í brennslu,
urðun og útflutning en mætti sinna
betur. Hingað til hafa fyrirtæki ekki
verið að stæra sig af því hverju þau
eru að farga en flest eru að gera sitt
besta miðað við þær lausnir sem í
dag bjóðast,“ útskýrir Sara.
Gera markaðinn aðlaðandi
„Við ætlum að færa þennan markað
upp á yfirborðið og gera hann bæði
aðgengilegan og aðlaðandi. Svo
fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og stofn-
anir sjái þessi efni sem ákjósanlegan
kost sem hráefni í sína starfsemi,“
segir Sara og bætir við að einhver
dæmi séu um viðskipti á þessum
nótum. „En ef fólk ætlar sér að ná í
slík hráefni er enginn staður til þess
og það þarf að hringja fjöldamörg
símtöl til að finna út úr því hvar
það fær rétt efni. Við ætlum því að
gera markaðstorg þar sem aðilar
skrá sín afgangsefni svo aðrir geti
séð hvað er í boði. Þetta er þannig
viðskiptavettvangur fyrir fagaðila.
Forsjáraðili fyrirtækisins velur svo
hvort hann vilji selja efnið eða gefa
það en alla vega losnar hann við að
greiða fyrir förgun.“
Þar sem Sara hafði áður nefnt
dæmi um bjórframleiðslu höldum
við áfram í þeim geira: „Við vitum að
ger má nýta í snyrtivöruframleiðslu
og á einhverjum skala í brauðgerð
aftur.“ Eins nefnir hún gott dæmi
um þá nýtingu sem þær vilja gera
almennari. „Við vitum að hrat úr
byggi sem notað er í bjórframleiðslu
fer beint í svínafóður sem er frábært
dæmi um svona nýtingu. Það á svo
eftir að koma í ljós hvaða viðskipta-
hugmyndir munu spretta úr þessu,
þegar fólk er allt í einu komið með
þetta hlaðborð fyrir framan sig.“
Fagurfræðin er X-faktorinn
María segir þær ætla að nýta sér
reynslu sína úr skapandi geiranum
við útfærslu á nálgun sinni. „Við
höfum verið spurðar hver sé okkar
X-faktor og hvers vegna fólk geti
ekki bara notað þau markaðstorg
sem fyrir eru. En við nálgumst þetta
út frá fagurfræðilegu sjónarhorni og
On to Something verður útlitslega á
pari við það helsta sem gerist í tísku
og hönnun.“
María segir fyrirtæki sem eru
framarlega í þessari þróun skilja það
sem þær eru að fara. „Það er vöntun á
þessu. Við hittum fullt af hönnuðum
á HönnunarMars sem spurðu okkur
um verðlaunin og þegar ég fór að
útskýra um hvað þetta snerist kvikn-
uðu margar perur. Þessi hugmynd er
til dæmis verðmæt fyrir hönnunar-
geirann, vísindasamfélagið og frum-
kvöðla. Enda hafa fæstir ráðrúm til
að hringja um allt til að kanna hvort
hægt sé að nýta afgangsefni frá þeim.
En þegar þetta er allt komið á einn
stað verður þetta svo mikið auð-
veldara fyrir alla.“
Þær hugsa stórt og sjá fyrir sér að
fara á alþjóðamarkað þegar fram
í sækir. „En þá skiptir máli að láta
þetta ganga upp innan landsvæða
til að spara kolefnisfótsporið.“
Aðspurðar hvenær síðan fari í
loftið segjast þær vera að leita eftir
frekara fjármagni til að koma fyrir-
tækinu á flug.
„Það er búið að hanna grunnútlit
síðunnar og næsta skref er að fara í
hugbúnaðargerð. Við erum komnar
með samninga við nokkur fram-
sækin stórfyrirtæki sem verða með
okkur í að þróa næstu skref,“ segja
þær að lokum. ■
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
40 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ