Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 92

Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 92
Þetta getur veitt rann- sóknarlög- reglu- mönnum innsýn í það hvern- ig sakborn- ingur og brotaþoli komust í samband. Ólafur Örn Bragason Lögreglan hefur vanalega tvö verk, að rann- saka meinta glæpi en hitt er í raun að halda friðinn. Stephen D. Hart Einn helsti sérfræðingur í áhættumati kom nýverið til landsins til að aðstoða lög­ regluna við rannsóknir á kyn­ ferðisbrotum gegn börnum. Ég hef rannsakað áhættu­ mat í kynferðisbrotum almennt og í alls konar ólíkum týpum of beldis, eins og ofbeldi í nánu sam­ bandi, eltihrella, hryðjuverk og hef almennt mikinn áhuga á áhættu­ mati í tengslum við hvers kyns ofbeldi,“ segir Stephen. Samkvæmt tölfræði lögreglunnar er meirihluti brotaþola í kynferðis­ brotamálum börn að aldri, eða 61 prósent, á meðan meðalaldur grun­ aðra er nokkru hærri. Innleiðing áhættumatsins er liður í aðgerðum stjórnvalda fyrir gerendur ofbeldis og er ætlað að auka við þekkingu sérfræðinga á sviðinu, að einfalda eða staðla forgangsröðun mála, huga að forvarnaraðgerðum og um leið draga úr líkum á ítrekunar­ brotum. Vinnustofan Hart á Íslandi var tvíþætt. Fyrst fjallaði hann almennt um áhættumat í kyn­ ferðisbrotamálum en seinni hluti vinnustofunnar var svo nýttur til að þjálfa bæði lögreglu og ákærendur í aðferðafræði áhættumatsins og for­ gangsröðun mála fyrir lögregluna. Vilja sinna meiri forvörnum „Það sem er ljóst af samtölum mínum við lögregluna hér er að hún vill hafa fleiri leiðir til að koma í veg fyrir að of beldi geti haldið áfram gegn börnum. Lögreglan annast vanalega tvö verk, að rann­ saka meintan glæp en hitt er í raun að halda friðinn. Að koma í veg fyrir að glæpir séu framdir,“ segir Steph­ en, og að lögreglan nái ekki að sinna forvörnum að því marki sem hún vill því að það sé svo mikið að gera í því að rannsaka þau brot sem búið er að fremja. „Það er auðvitað hægt að halda því áfram, að handtaka fólk og fá það sakfellt, en það kemur ekki í veg fyrir aðra glæpi og í raun er lögreglan mögulega að leyfa f leiri glæpum að henda en þarf, með því að sinna ekki nægilegum forvörn­ um. Þetta er erfitt og lögreglan hefur þróað margar aðferðir til að glíma við þennan vanda, eins og að búa til verkefni þar sem unnið er að því að spá fyrir um hvað gæti gerst og gefa þannig lögreglunni einhver tól til að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi,“ segir Stephen, en tekur þó Meira gefandi að koma í veg fyrir glæpi Stephen hefur mikla trú á því að hér muni lög- reglunni takast vel að innleiða áhættumatið. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Ólafur segir það gott fyrir lögregl- una að geta sinnt meiri forvörnum. Gefur lögreglu betri innsýn „Þetta er ákveðin breyting á fókus hjá okkur að því leytinu til að við erum að skoða forvarnir, og að sinna afbrotavarnahlutverki okkar, en ekki eingöngu rannsókn þessara brota,“ segir Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs ríkislög- reglustjóra. Hann segir að núna, með áhættumatinu, sé ekki aðeins metin forgangsröðun rannsókna, heldur líka hvort lögreglan hafi áhyggjur af því að viðkomandi brjóti af sér aftur eða að hann haldi áfram að brjóta af sér, án þess þó að taka afstöðu til sakleysis eða sektar. Hann segir að þetta hjálpi einnig við rannsókn lögreglunnar. „Þetta getur veitt rannsóknarlögreglumönnum innsýn í það hvernig sakborningur og brotaþoli komust í samband, hvernig dýnamíkin var og hvaða aðferðum var beitt við að til dæmis normalísera kynferðislegt ofbeldi,“ segir Ólafur, og að það hjálpi rannsóknarlögreglumönnum að skilja betur eðli kynferðisbrota. fram að þetta geti verið ansi f lókið fyrir lögregluna því ekki gefist tími til að meta öll mál með sama hætti. Flokka samkvæmt bráðaþörf „En það eru aðferðir til að greina þau mál frá þar sem gild ástæða er til að telja að það stafi einhver hætta af einstaklingi og að hann gæti brotið af sér, eða brotið aftur af sér,“ segir Stephen og að það þurfi svo, þegar það er búið að bera kennsl á þessa einstaklinga, að finna leiðir til að forgangsraða þeim og finna ein­ hver úrræði fyrir þá. „Þá er hægt að byrja á þeim ein­ staklingum sem stafar mest hætta af og hægt að nota þau úrræði sem eru í boði til að minnka áhættuna.“ Hann segir að það sé auðvitað erfitt að meta hvar er hætta og hvar ekki, en líkir ferlinu við f lokkun samkvæmt bráðaþörf [e. Triage] á spítala þar sem sjúklingar eru spurðir grundvallarspurninga eins og hvort þeir séu með verki fyrir brjósti eða eigi erfitt með að anda. „Það er ekki hægt að spá fyrir um margt með þessum spurningum, en það sem þær eru hannaðar til að gera er að bera kennsl á fólk sem gæti verið að deyja svo að það sé hægt að bregðast strax við. Ef fólk svarar þessu ekki játandi, þá getur það beðið. Jafnvel þótt því blæði,“ segir hann. „Þetta eru ákvarðanir upp á líf og dauða til að réttlæta takmarkaðan mannafla eða úrræði, en það er það nákvæmlega sama og lögreglan þarf að gera. Það sem við ræddum á námskeiðinu er hvernig við getum framkvæmt þessa f lokkun til að reyna að hjálpa lögreglunni að bera kennsl á mál þar sem kynferðisof­ beldi gegn börnum hefur í för með sér mikla og alvarlega hættu,“ segir Stephen. Hann segir að hægt sé að nota þessa aðferð sama hvort það sé verið að meta einstakling sem búinn er að brjóta á barni og gæti gert það aftur eða þar sem grunur leikur á að einstaklingur gæti brot­ ið á barni, eða jafnvel til að meta einhvern sem sýnir af sér óæskilega hegðun. „Ég get tekið dæmi um kenn­ ara í menntaskóla sem klippir út af myndum hausa barna og setur hausana á klámmyndir af fullorðn­ um konum. Það er kannski ekki ólöglegt en það er ekki í lagi og þetta væri eitthvað sem myndi f lokkast undir aðstæður þar sem sérstaklega er fylgst með,“ segir Stephen. Hann segir að fyrir marga lög­ reglumenn sé það verulega gefandi að sinna þessu samhliða rann­ sóknum, því þannig sjái þeir í verki hvernig þeir eru að vernda fólk fyrir glæpum. „Að koma í veg fyrir glæp er miklu meira gefandi en að ná einhverjum sem er þegar búinn að fremja glæp.“ Spurður hvort að lögreglan á Íslandi sé vel í stakk búin til að inn­ leiða áhættumatið segir Stephen að hann telji ekki mikið vanta upp á. Bjóða gerendum í úrræði „Ísland er að mörgu leyti eins og Kan­ ada, það er stórt lítið land, þannig að fjöldi fólks miðað við stærð landsins er lítill og það er kostur, því þetta snýst ekki endilega um að vera með marga lögreglumenn, þetta snýst um að þeir sem eru til staðar vinni á gáfulegan hátt.“ Hann segir að hluti af áhættumat­ inu sé að bera kennsl á þá sem geti stafað af hætta og svo að bjóða þeim úrræði sem geti aðstoðað þá við að hætta að beita of beldi eða koma í veg fyrir að þeir beiti því. Vinnustofan sem fór fram í síð­ ustu viku var eins konar prufa á því sem er búið að þróa síðasta árið og næsta skref er að koma áhættumat­ inu í notkun og svo eftir einhvern tíma verður metið hvort það þurfi að aðlaga það frekar íslenskum aðstæðum. „Það var gott að sjá að lög­ reglan hér leggur áherslu á öryggi almennra borgara, en ekki bara handtökutíðni. Það er erfitt fyrir lögregluna að breyta hugsunar­ hætti sínum, en ég yrði ánægður ef enginn yrði handtekinn og glæpa­ tíðnin væri engin. Eða ef það eru færri handteknir því það eru fáir að brjóta af sér. Það er gott að verja meiru í forvarnir því þá verður sam­ félagið mögulega betra og borgar­ arnir ánægðari.“ ■ Lovísa Arnardóttir lovisa @frettabladid.is Þegar búið er að bera kennsl á gerendur þá er mikilvægt að finna þeim viðeigandi úrræði, að sögn Stephen. 42 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.