Fréttablaðið - 14.05.2022, Side 118
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
Ég á minningu þar sem ég sit á
teppinu fyrir framan sjónvarpið
heima og horfi stjarfur á Höllu
Margréti syngja lokalínurnar „einu
sinni, einu sinni enn“, þannig að
tíminn stóð í stað. Tók engan pípu-
hatt og fór ekki fet, heldur starði
ástfanginn, eins og ég, á þetta
undur á sviðinu. Ég jafnaði mig
síðan á ástinni en lagið heillar mig
í hvert sinn sem ég heyri það.
Það er þessi raunfallega og
ljóðræna lýsing á stund sem tekur
enda, sögðum orðum og ósögðum,
nótt sem færir þögninni loksins
frið. Í morgunsárinu yrkja fugl-
arnir síðan nýjum degi ljóð.
Í dag er kosið til bæjar- og
sveitarstjórna í landinu. Ég var
fenginn til að stýra sameiginlegum
framboðsfundi í vikunni sem
leið. Það eru þrír flokkar í sveitar-
félaginu sem bjóða fram og góðleg
spenna í samfélaginu. Fundurinn
fór vel fram, líflegur, ástríðufullur
– áhugasamur um nærsamfélag og
nærþjónustu. Kjósendur í sókn og
frambjóðendur vaskir í verkefnið.
Allt eins og það á að vera.
Þar sem ég sat og hlýddi á eina
fyrirspurnina og svörin frá fram-
boðunum þremur mundi ég allt í
einu af hverju mér finnst sjálfum
sveitarstjórnarmál vera meira
heillandi en landsmál. Nú hef ég
tekið sæti bæði á Alþingi og setið
í sveitarstjórn, auk þess að stýra
sveitarfélagi. Það er þessi nánd við
kjósandann og ábyrgðin sem þú
getur ekki vikið þér undan. Það er
orðræðan sem er enn þá einlæg og
blátt áfram – kannski örlítið hrá,
ólíkt þeirri tilfinningalausu orða-
bestun sem oft einkennir lands-
pólitík.
Það er kosið í dag um hækkandi
sól, í söng og sveit – einu sinni, einu
sinni enn. n
Einu sinni,
einu sinni enn
Láttu áhyggjuleysið
elta þig í sumar
Kynntu þér enn betri húsvagnatryggingu
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
TILBOÐ
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
...fyrir hið ljúfa líf
NÝTT