Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 34

Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 34
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Fyrst ber að nefna Goða, sem segja má að sé sumarlegasta vörumerki KN. Þar á bæ er ýmsar nýjungar að finna. Vörur Goða hafa fengið tímabæra andlitslyftingu og státa nú af nýju og betra útliti. „Við vild- um hafa þetta einfalt og áberandi í hillum verslana,“ segir Andrés Vilhjálmsson, markaðsstjóri KN. „Nýju umbúðirnar skarta skærum og lystaukandi litum sem ættu ekki að fara framhjá neinum.“ Næst eru það grillpylsurnar, en þær eru ein af þeim vörulínum Goða sem munu ganga í gegnum algjöra endurnýjun á næstu dögum. „Nýju umbúðirnar ná auðvitað yfir allar vörurnar,“ segir Andrés, en samhliða útlitsbreyt- ingunni hefur KN flutt vörur á milli vörumerkja. „Það var eðlilegt skref, eftir að öll þessi vörumerki sameinuðust undir einu þaki, að einfalda og samræma, bæði fyrir neytandann og okkur sem fyrir- tæki. Þeirri vinnu er ekki lokið, en við erum vel á veg komin með Goða.“ Pylsumenning Grillpylsurnar verða fáanlegar í sex bragðtegundum: osta-, nauta-, beikon-, bratwürst-, jalapeño- og chorizo-pylsur. „Pylsuúrvalið hér hefur verið svolítið einsleitt og fólki hættir til að grípa bara það sem það þekkir, en við þurfum ekki að leita langt inn á meginland Evrópu til að finna gríðargott úrval og heilmikla „menningu“ í kringum pylsur,“ segir Andrés. „Við viljum bjóða íslenskum neytendum fjöl- breytt úrval af pylsum á grillið og hvetjum fólk til þess að prófa. Þetta eru bragðgóðar og kjötmiklar pylsur úr fyrsta flokks hráefni.“ Áður en talið berst að öðru liggur beinast við að spyrja Andrés: Eru þetta pylsur eða pulsur? „Pylsur er rétta orðmyndin og það er nánast óhugsandi að einhver að norðan myndi tala um pulsur,“ segir Andrés. Skjótt skipast veður Nóg um pylsurnar. KN leggur einnig mikla áherslu á grillkjöt, bæði þurrkryddað og kryddlegið, ýmist undir merkjum Kjarna- fæðis eða Goða. Grillsneiðar ýmiss konar eru vinsæl vara, en Andrés segir það liðna tíð að forkryddað grillkjöt sé annars flokks. „Það hefur örlað á fordómum fyrir „tilbúna“ grillkjötinu, en íslenskir framleiðendur hafa svarað kallinu og híft upp gæða- standardinn á undanförnum árum og við teljum okkar vörur standast kröfur neytenda fyllilega. Veðrið er einfaldlega þannig á Íslandi að grill er oftar en ekki skyndiákvörðun og þá er mikilvægt að geta boðið neytendum góða, fljóteldaða vöru sem hægt er að setja beint á grillið. Nostrarar sem vilja gera hlutina frá grunni eiga vissulega lof skilið, en við viljum halda hinu sem valkosti og neytendur einnig,“ segir Andrés. Það er því ljóst að Kjarnafæði og Goði munu standa vaktina áfram í grillkjötinu. Flýtum okkur hægt með KEA Þó að grillsneiðar njóti mestra vinsælda, þá færist það í aukana að fólk grilli heil læri. Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði er eitt vinsælasta kryddlærið á íslenskum markaði, kryddað með villtum, íslenskum kryddjurtum. „Heiðalærið er f laggskip Kjarna- fæðis og hefur notið mikilla vin- sælda,“ segir Andrés og bætir því við að það sé tilvalið á útigrillið. „Gamla, góða ofnlærið í steikar- fatinu stendur alltaf fyrir sínu, en það verður jafnvel betra við grillun.“ Þá setti KEA nýverið á markað fyllt læri sem fengið hefur góðar viðtökur. Því var gefið nafnið Helgarlæri, en það inniheldur fyllingu sem samanstendur af döðlum, trönuberjum og Camem- bert. „Helgarlærið var sett í sölu fyrir páska og fór fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Andrés. „Von er á fleiri tegundum undir merkjum KEA, jafnvel í sumar. Það má segja að KEA sé rétt að byrja, enda rótgróið vörumerki, yfir 100 ára gamalt, sem okkur þykir vænt um og því viljum við vanda til verka, frekar en að drífa okkur með þetta í búðir sem fyrst.“ Að lokum er eðlilegt að spyrja Andrés: hvað setur hann sjálfur á grillið? „Það fer auðvitað eftir aðstæðum og skapi. Á ég von á matargestum? Þá vill maður vera penn og prúður. Lamba ribeye Black Garlic frá Kjarnafæði með góðu rauðvíni klikkar seint. En á venjulegum laugardegi með fjölskyldunni er tilvalið að nota tækifærið, setja upp smekkinn og fara jafnvel bara í Barbeque grísarifin frá Goða.“ n Kjarnafæði- Norðlenska er að skipta um umbúðir á vörum sínum. MyndiR/AðSEnd Goða lambaprime er dásamleg steik á grillið. Heiðalambið svíkur engan. Það er fullkomlega kryddað og bragðgott. Næst eru það grillpylsurnar en þær eru ein af þeim vörulínum Goða sem munu ganga í gegnum algjöra endurnýjun á næstu dögum. Frábært úrval af grillmat frá Goða. 2 kynningarblað A L LT 21. maí 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.