Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 39
Haldnar voru
vinnustofur með
öllu starfsfólki ELKO þar
sem leitað var eftir
áskorunum, tækifærum
og hugmyndum um
hvernig starfsfólk,
stjórnendur og ELKO í
heild gætu gert betur.
Björn Másson
ELKO er stærsta raftækja-
verslun landsins, með 217
starfsmenn. Mikið er lagt
upp úr því að vinnustaður-
inn sé framúrskarandi og
ýtt er undir starfsþróun
og góða vinnumenningu.
Loforð ELKO er „það sem
skiptir þig máli, skiptir
okkur máli“ og gildir það
bæði gagnvart viðskipta-
vinum og starfsmönnum.
Eitt af markmiðum ELKO er að
eiga ánægðustu viðskiptavinina á
raftækjamarkaðnum og lykillinn
að því markmiði liggur í því að
vera með ánægðasta starfsfólkið.
Það hefur því verið eitt af aðal-
áhersluatriðunum að stuðla að
aukinni ánægju starfsfólks og
starfsánægjumælingar sem og
mælingar á ánægju viðskiptavina,
hafa gefið þessari vegferð byr
undir báða vængi.
Starfsfólk ELKO hefur rödd
„Ein besta leiðin til að ná árangri í
mannauðsmálum er að gefa starfs-
mönnum rödd. Við höfum þess
vegna innleitt hjá okkur fjölmarg-
ar aðgerðir til að ná fram þessum
röddum á skilvirkan máta,“ segir
Björn Másson, mannauðsstjóri
ELKO.
Samkvæmt Birni var árið 2021
„ár mannauðsins“ í ELKO þar sem
langtímamarkmiðið var að eiga
ánægðasta starfsfólkið. Verkefnið
var stórt og gagngert sett í gang
til að breyta hugsunarhætti allra í
fyrirtækinu í átt til betri vinnu-
staðar. Haldnar voru vinnustofur
með öllu starfsfólki ELKO þar
sem leitað var eftir áskorunum,
tækifærum og hugmyndum um
hvernig starfsfólk, stjórnendur og
ELKO í heild gætu gert betur.
Afrakstur vinnustofanna var
settur upp í stórt verkefnaskipu-
lag sem unnið var í allt árið og
mánaðarlegar ánægjukannanir
voru jafnframt keyrðar samhliða,
til að fylgjast með árangrinum.
„Til viðbótar við þessar minni
starfsánægjukannanir erum við
með árlega vinnustaðargreiningu
og var hún send í lok árs 2021 til
allra í fyrirtækinu. Það mældist
hækkun milli ára í mörgum
flokkum greiningarinnar og í 15
af 18 spurningum fengust betri
niðurstöður en árið áður,“ segir
Björn. „Verkefnið „ár mann-
auðsins“ reyndist því árangursríkt
og var í kjölfarið ákveðið að halda
vinnustofur á hverju ári með yfir-
skriftinni „besti vinnustaðurinn“
til að halda árangrinum á lofti til
framtíðar.
Þegar niðurstöður vinnustaðar-
greiningar liggja fyrir eru haldnar
vinnustofur í öllum deildum
ELKO þar sem niðurstöður eru
rýndar og starfsfólk sameinast
um úrbótaverkefni sem er svo
ráðist í. Lykilatriðið er að bregðast
f ljótt við,“ segir Björn. „Sem dæmi
þá mældist í eitt skiptið endur-
gjöf stjórnenda í lægra þrepi. Við
brugðumst við með því að inn-
leiða hugmynd að vinnustofu: 15
mínútna samtöl með næsta yfir-
manni á 2-4 vikna fresti. Þetta eru
óformleg samtöl þar sem starfs-
menn geta komið sínu á framfæri,
hvort sem það tengist starfinu
beint eða almennri líðan starfs-
manns. Þetta hefur gengið mjög
vel og var stórt stökk í mælingu
á bæði endurgjöf og almennri
starfsánægju.“
Óttar Örn Sigurbergsson tók við
sem framkvæmdastjóri ELKO um
áramótin og hann tók 15 mínútna
samtöl við alla fastráðna starfs-
menn fyrirtækisins á fyrstu mán-
uðum ársins til að bera kennsl á
líðan starfsmanna og áskoranir
í fyrirtækinu sem hægt væri að
bregðast við. Verkefnin sem komu
út úr þeim fundum eru nú þegar
komin áfram til vinnslu.
Fræðsla og þjálfun
„Góð fræðsla og þjálfun er
lykilþáttur í starfsánægju og eflir
sjálfstraust á vinnustað. Hún hefur
þannig bein áhrif á starfsmanna-
veltu. Við hjá ELKO leggjum mikla
áherslu á að styrkja starfsfólkið
með markvissri þjálfun og mögu-
leika á starfsþróun,“ segir Björn.
„Árið 2021 var komið á fót stöðu
þjálfunarstjóra, en sú staða var
búin til eftir eina af vinnustof-
unum með starfsfólkinu árið áður.
Í lok hvers námskeiðs er send
út ánægjukönnun til þátttakenda
og frá því að mælingar hófust
árið 2021 er niðurstaðan sú að
ánægjan mælist í 4,7 af 5 mögu-
legum,“ segir Björn. „Árið 2021
var líka boðið upp á rúmlega 30
námskeið fyrir starfsfólk ELKO og
við styrkjum starfsfólk einnig til
náms. Rafræn fræðsla er svo alltaf
að skipa stærri sess og í haust
erum við að fara að innleiða nýtt
upplýsinga- og fræðslukerfi fyrir
vinnustaðinn í stað Workplace
sem heitir Relesys.“
Velferðarpakkinn
„Velferð starfsmanna skiptir ELKO
máli og þess vegna var ákveðið að
efla þjónustuþætti sem tengjast
heilsu og auka aðgengi að þeim.
Árið 2021 var velferðarpakki
kynntur til leiks, sem er saman-
settur af nokkrum þjónustuþátt-
um til að stuðla að bættri andlegri
og líkamlegri heilsu starfsmanna,“
segir Björn. „Meðal þjónustuþátta
eru sálfræðitímar, áfallahjálp, lífs-
stílsráðgjöf, íþróttastyrkur, starfs-
lokanámskeið, hjónabandsráðgjöf
og ítarleg heilsufarsskoðun í sam-
starfi við Heilsuvernd í Kópavogi.“
ELKO styður við heilbrigðan
lífsstíl og heilbrigt mataræði hjá
sínu starfsfólki og á öllum starfs-
stöðvum ELKO er starfsmönnum
boðið upp á niðurgreiddan
hádegismat, ásamt því að þeim
stendur til boða að fá sér millimál
í formi ávaxta og heilsustanga.
Siðferðisgáttin
„Í samstarfi við Hagvang býður
ELKO líka upp á þjónustu sem
kallast Siðferðisgáttin. Starfs-
fólk sem verður fyrir óæskilegri
hegðun eða framkomu eða upp-
lifir einhverja vanlíðan á vinnu-
stað, getur á öruggan hátt leitað
til ráðgjafa hjá Siðferðisgáttinni,“
segir Björn. „Um er að ræða
óháðan fagaðila og lausn sem er
unnin í samvinnu við stjórnendur
og mannauðsstjóra ELKO.“
Mikill stuðningur frá Festi
ELKO er í 100% eigu Festar hf. og
eru mannauðsmálin fyrir ELKO
og hin félögin undir Festi. Það er
gríðarlega sterkt og hefur reynst
félögunum vel. Í mannauðs-
deild Festar starfa 10 manns, 5
mannauðsstjórar og 4 launafull-
trúar ásamt framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs.
„Mikill styrkur og hagkvæmni
stærðarinnar felst í því að vinna
saman að málum og geta leitað
ráða hvert hjá öðru. Mörg stór
verkefni eru unnin þvert á félögin
og næst hagkvæmni með því sam-
starfi,“ útskýrir Björn. „Félögin
nýta sömu mannauðskerfi og
mörg stærri verkefni eru unnin
saman, eins og til dæmis jafn-
launavottun, mannauðsmælaborð
fyrir stjórnendur, vinnustaða-
greining og innleiðing á lausnum
eins og velferðarpakkanum, Sið-
ferðisgáttinni, almennri fræðslu
og mörgu öðru.“
Fyrirmyndarfyrirtæki VR
ELKO er eitt af fyrirmyndar-
fyrirtækjum VR árið 2022. „Fyrir-
tækin í fimmtán efstu sætunum í
hverjum stærðarflokki fá viður-
kenningu og erum við afar stolt
og ánægð með að vera eitt þeirra,
enda er það yfirlýst markmið
okkar að vera með ánægðasta
starfsfólkið,“ segir Björn. „Þetta
er í fyrsta skipti sem fyrirtækið
tekur þátt í könnun VR um fyrir-
tæki ársins og fögnum við þessum
niðurstöðum en stefnum á að gera
enn betur með áframhaldandi
vinnu með starfsfólki í átt að því
að verða besti vinnustaðurinn.“ n
Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli
Björn Másson, mannauðsstjóri ELKO, segir að fyrirtækið leggi gríðarlega mikla áherslu á ánægju starfsfólks síns.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ELKO hefur innleitt ýmsar aðgerðir til að gefa starfsfólki sínu rödd svo það sé hægt að bregðast við áskorunum sem það mætir í starfi. MYND/AÐSEND
kynningarblað 3LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál