Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 41
Erla María Sigurðardóttir,
mannauðsstjóri Krónunnar,
nýtur sín í starfi og er með
skýra framtíðarsýn. Hennar
framtíðarsýn er að skapa
öllu starfsfólki eftirsóttan og
framúrskarandi vinnustað
og með öflugu fólki.
Erla María hefur verið mannauðs
stjóri Krónunnar frá ársbyrjun
2021 en hóf störf hjá Festi sem
mannauðsfulltrúi árið 2016. Erla
María er með MHRM – Master í
mannauðsstjórnun og vinnusál
fræði frá Háskólanum í Reykja
vík og B.Sc. í viðskiptafræði frá
Háskólanum í Reykjavík.
Að sögn Erlu Maríu er mikil
áhersla lögð á að starfsfólkinu líði
vel í vinnunni. „Við leggjum fyrst
og fremst áherslu á að við séum
með góðan vinnustað þar sem
starfsfólkinu okkar líður vel og
hafi jöfn tækifæri til að njóta sín til
fulls í starfi. Við erum með virka
jafnlaunastefnu og viljum sem
jafnastan hlut kvenna og karla í
stjórnunarstörfum en í fyrra hlaut
Krónan í fyrsta sinn Jafnvægisvog
FKA og vinnur stöðugt að jafnari
hlutföllum á öllum starfsstöðvum
fyrirtækisins.
Við störfum í umhverfi þar sem
hraðinn er mikill, álag í starfi og
breytingar töluverðar. Það er því
mikilvægt að eiga í virku sam
tali við fólkið okkar og stuðla að
stöðugri fræðslu og þjálfun til þess
að það hafi tækifæri á að þróast og
blómstra í starfi.
Til að styðja við það starfrækj
um við „Krónuskólann“ sem er nú
aðgengilegur í appi í símanum en
þar getur starfsfólk sótt sér fræðslu
og þjálfun hvar og hvenær sem er.
Þetta fyrirkomulag hefur reynst
afar vel og þá sérstaklega hjá unga
fólkinu okkar sem í auknum mæli
vill nálgast allar upplýsingar í
símanum. Einnig höldum við
reglulega fundi með öllu starfsfólki
Krónunnar, svokölluð „Krónutorg“
þar sem staðan okkar er rædd. Þar
er öllu starfsfólki Krónunnar boðið
að vera með,“ segi Erla María.
Hvetji starfsfólk til sækjast eftir
framgangi í starfi
Erla María segir jafnframt að þau
hvetji starfsfólk sitt til að sækjast
eftir reglulegum framgangi í
starfi. „Við styðjum þau t.d. til
verslunarnáms á Bifröst og höfum
mörg dæmi um starfsfólk sem hóf
upphaflega störf á gólfinu eins og
það er kallað, en er núna komið
í ábyrgðarstöður eftir mörg ár
í starfi, t.d. verslunarstjórar og
svæðisstjórar. Það er mikilvægt
fyrir okkur að fólk sjái sína framtíð
fyrir sér hjá okkur, sjái að það
getur sótt sér menntun og fengið
aukna ábyrgð.“
Aðalsmerki starfsfólks er Krónu
hjartað. „Það snýst um að hafa ein
lægan vilja til að gera betur í dag
en í gær því saman getum við allt.
Því höfum við lagt mikla áherslu á
jafnrétti kynjanna í okkar stefnum
og störfum. Kynjahlutfallið hjá
Krónunni er sífellt að verða jafnara
með árunum og er í dag 41% konur
á móti 59% körlum. Við erum einn
ig að vinna statt og stöðugt að því
að jafna hlutfall karla og kvenna
í stjórnunarstöðum á borð við
verslunarstjóra.“
Drulluhlaup Krónunnar hluti af
íþróttaveislu UMFÍ
Í stefnu nýrra stjórnenda er mikil
áhersla lögð á andlega jafnt sem
líkamlega heilsu starfsfólks. „Við
kynntum því til leiks Lýðheilsu
stefnu Krónunnar í byrjun þessa
árs en markmið okkar er að vera
leiðandi vinnustaður í lýðheilsu
mál um og stuðla að góðri heilsu
og vellíðan starfs fólks, en ekki
síður að hafa smit andi áhrif út í
sam fé lagið og til okk ar viðskipta
vina með hvatningu um að kaupa
heilsusamlegar vörur.
Til að styðja við innleiðingu lýð
heilsustefnunnar, var ráðinn fyrr á
þessu ári verkefnastjóri lýðheilsu
og mun sá aðili vinna að því að
bætt heilsufar fái aukið vægi meðal
starfsfólks og vonandi viðskipta
vina líka.
Stefnan er í stöðugri mótun en við
höfum sem dæmi hafið leikinn
með því að koma á heilsueflandi
viðburðum fyrir okkar starfsfólk
þar sem lögð er áhersla á samveru
og skemmtilega hreyfingu. Léttar
fjallgöngur, fjölskyldustundir
og leikfimitímar hafa m.a. verið
á dagskrá það sem af er sumri.
Í ágúst verður síðan svokallað
„Drulluhlaup Krónunnar“ haldið,
sem er hluti af íþróttaveislu UMFÍ
þar sem áhersla er lögð á skemmti
lega hreyfingu, gleði og samvinnu
fyrir alla fjölskylduna.“
Með því að gera Krónuna að
heilsueflandi vinnustað segir
Erla María að verið sé að hvetja
til heilsusamlegs lífernis í starfi
og leik. „Litlir hlutir eins og að
hafa ávallt á kaffistofum ávexti
fyrir starfsfólk, en ekki bara kex
eða kökur, skipta hér líka máli.
Lögð er áhersla á að njóta en ekki
bara þjóta því lýðheilsa snýst
ekki um öfgar eða merkileg afrek.
Það verður gaman að fylgja þessu
verkefni eftir og sjá hvernig þessi
áhersla endurspeglar aukna
ánægju og vellíðan í starfi meðal
okkar starfsfólks – en það er leiðin
til langvarandi ánægju og starfs
frama í okkar huga.“
Velferðarpakki Krónunnar
Mikil áhersla er lögð á að öllum líði
vel. „Við viljum að öllum líði vel í
Krónunni og þá sérstaklega starfs
fólki okkar sem daglega heldur öllu
gangandi hjá okkur. Því kynntum
við á síðasta ári Velferðarpakka
Krónunnar, sem er hluti af vel
ferðarþjónustu Festi, móðurfélags
Krónunnar, og samstæðunnar
allrar. Þjónustan er í boði fyrir
allt starfsfólk samstæðunnar,
hvort sem það er í hlutastarfi eða
fullu starfi. Markmið pakkans er
að stuðla að bættri andlegri og
líkamlegri heilsu starfsfólks og eru
allir hvattir til að nýta sér þessa
þjónustu,“ segir Erla María. Í vel
ferðarpakkanum má m.a. finna
íþrótta og tómstundastyrki og fær
hver starfsmaður styrk að upphæð
30.000 krónur á ári.
Að auki getur starfsfólk fengið fría
tíma hjá sálfræðingum og Heilsu
vernd upp að ákveðnu marki sem
má nýta árlega. Með tilkomu pakk
ans er hægt að fá styrk til að nýta
sér ýmsa þjónustu hjá sérfræð
ingum, svo sem markþjálfa, nær
ingarfræðingi, uppeldisráðgjafa og
hjónabandsráðgjafa svo eitthvað
sé nefnt. „Við erum mjög stolt af
þessu framtaki og hefur starfsfólk
okkar tekið virkilega vel í innihald
pakkans enda er markmiðið ávallt
að fólkinu okkar líði vel, bæði í
vinnunni og utan hennar.“
Styrkja starfsfólk af erlendum
uppruna til íslenskunáms
Lögð er mikil áhersla á fjölmenn
ingu og að efla fólk af erlendum
uppruna í starfi. „Hjá okkur
starfar mikill fjöldi starfsmanna
af erlendum uppruna, sem oftar
en ekki er að stíga sín fyrstu skref
á íslenskum vinnumarkaði. Það er
að mörgu að hyggja til að þessum
hópi líði sem best í vinnunni og
hafi öll þau tæki og tól sem nauð
synleg eru til að þróast áfram í
starfi. Við erum fjölmenningarfyr
irtæki en fólk af yfir 30 mismun
andi þjóðernum starfar hjá okkur.
Það er á okkar ábyrgð að stuðla
að því að allt okkar starfsfólk hafi
sömu tækifæri innan félagsins,
óháð uppruna og móðurmáli.“
„Allt okkar efni sem við kemur
starfsfólki er sett fram á nokkrum
tungumálum svo að helst allir
hafi sömu upplýsingarnar. Einnig
styrkjum við starfsfólk til íslensku
náms og hvetjum alla eindregið til
að nýta sér það tækifæri og reyna
að ná tökum á íslensku.“
Jafnframt nýtur fyrirtækið sér
utanaðkomandi ráðgjafa sem
sérhæfir sig í ráðgjöf og aðstoð við
starfsfólk af erlendum uppruna og
er á dagskrá að vera með þjálfun
og fræðslu, bæði fyrir stjórn
endur og erlent starfsfólk hvað
varðar fjölmenningu og aðlögun
að íslenskum vinnumarkaði. „Við
teljum það mikilvægt skref í því
að efla okkar fólk óháð uppruna
og tungumáli, enda í samræmi við
jafnréttisstefnu Krónunnar.“
Með stafrænum lausnum
skapast ný störf
Aðspurð segir Erla María að hjá
Krónunni starfi um þúsund
manns, bæði í fullu starfi sem og
hlutastarfi í alls 25 verslunum,
Snjallverslun Krónunnar og á skrif
stofu.
Hún segir að störf innan Krón
unnar séu í stöðugri þróun með
tilkomu stafrænnar þróunar, t.d.
Skannað og skundað, og er því nú
mikil áhersla lögð á fræðslu og
þjálfun sem tengist þessum nýju
lausnum sem auðvelda viðskipta
vinum þeirra lífið.
„Störfin eru sífellt að breytast
og teljum við að með stafrænni
umbreytingu verði þau þægilegri
og fjölbreyttari en áður. Stöðu
gildum er síður en svo að fækka,
með fjölgun verslana og aukinni
þjónustu við viðskiptavini sem og
stafrænum lausnum verða til ný
störf, t.d. við að taka saman vörur í
pantanir Snjallverslunar, útkeyrslu
heimsendinga, innleiðingu og
aðstoð við Skannað og skundað,
svo eitthvað sé nefnt.“ n
Stefnan er í stöð-
ugri mótun en við
höfum sem dæmi hafið
leikinn með því að koma
á heilsueflandi við-
burðum fyrir okkar
starfsfólk þar sem lögð
er áhersla á samveru og
skemmtilega hreyfingu.
Einnig styrkjum
við starfsfólk til
íslenskunáms og hvetj-
um alla eindregið til að
nýta sér það tækifæri og
reyna að ná tökum á
íslensku.
Jöfn tækifæri
til að njóta sín til
fulls í starfi
Erla María segir að fyrst og fremst leggi þau áherslu á að þau séu með góðan vinnustað þar sem starfsfólki Krónunn-
ar líður vel og hafi jöfn tækifæri til að njóta sín til fulls í starfi. MYND/AÐSEND
kynningarblað 5LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál