Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 43
Líðan starfsfólks,
árangur og hvatn-
ing er mæld með könn-
un sem er framkvæmd
fyrir IKEA á heimsvísu.
IKEA er með stærstu fyrir-
tækjum á landinu. Þar starfar
fjölbreytt flóra starfsmanna.
Listi starfa er langur og öll
störf eru jafn mikilvæg.
Mannauðsstefna þar sem sam-
félagsábyrgð og umhyggja fyrir
fólki og jörðinni gegnir lykilhlut-
verki, er vandlega studd af sterkri
hugmyndafræði.
Hjá IKEA á Íslandi starfa 450
manns á aldursbilinu 17 til 75 ára
en nýlega lauk elsti starfsmaður
fyrirtækisins störfum eftir 35 ár í
starfi, áttræður að aldri.
„Það er því óhætt að segja að
starfsemin sé fjölbreytt þar sem
hátt í 90 ólík störf eru innan
fyrirtækisins,“ segir Fjóla Kristín
Helgadóttir, mannauðsstjóri IKEA.
„Störfin eru af margvíslegum toga
og krefjast ólíkrar hæfni, mennt-
unar, þekkingar og reynslu,“ bætir
Fjóla Kristín við. Iðnmenntaðir
eins og smiðir, rafvirkjar, hönn-
uðir, háskólamenntaðir mann-
auðssérfræðingar, þýðendur,
markaðssérfræðingar, birgðasér-
fræðingar, viðskiptafræðingar,
grafískir hönnuðir, bakarar, mat-
reiðslumeistarar, snillingar í
stafrænni þróun, þjónustuliprir
einstaklingar í ráðgjöf og þjónustu
og svo mætti lengi telja. Listi starfa
er langur, öll jafn mikilvæg í að
framfylgja hugmyndafræði fyrir-
tækisins: „að gera daglegt líf þægi-
legra fyrir sem flesta.“
Fjölmenning gefur fyrirtækinu
alþjóðlegan blæ
„Fjölbreytnin er ekki einungis
fólgin í aldri, menntun og reynslu,
því innan veggja fyrirtækisins má
finna einstaklinga af 39 þjóðern-
um og eru erlendir starfsmenn um
fimmtungur alls hópsins,“ segir
Fjóla Kristín. Fjölmenningin gefur
fyrirtækinu alþjóðlegan og líflegan
blæ, drifkraft og aukna víðsýni og
gagnkvæma virðingu. IKEA veitir
þessum dýrmæta hópi starfsfólks
aðgengi að íslenskunámi á vinnu-
tíma sem styður við aðlögun þeirra
að íslensku samfélagi og eykur
möguleika á starfsþróun.
Hlúð að fjölbreyttum mannauði
„Að viðhalda hvata, vellíðan og
ánægju þessa fjölbreytta hóps
starfsfólks með ólíkar væntingar
og þarfir, krefst stöðugrar endur-
skoðunar og nýsköpunar. Það er
því margbreytilegt hvað hefur
hvetjandi áhrif á starfsfólk og veitir
því vellíðan og starfsánægju,“ segir
Fjóla Kristín.
Hún nefnir að það þarf til dæmis
að huga að fjölbreyttu úrvali af
mat í mötuneyti starfsfólks. Í
ólíkum hópi þarf að vera val um
grænkerafæði, grænmeti, léttan
mat og hefðbundinn heimilismat.
Öll höfum við sterkar skoðanir
á mat sem gefur okkur orku og
stuðlar að vellíðan yfir daginn.
„Við erum heppin að vera með
alla þessa sérfræðinga í eldhúsinu
okkar sem sjá til þess að úrvalið sé
gott og eitthvað fyrir alla.“
„Eins þurfi að huga að fjöl-
breyttum viðburðum sem nái til
allra. Fjóla nefnir að viðburðir á
vegum fyrirtækisins þurfa að hæfa
breiðu kynslóðabili, mismunandi
þjóðerni, kyni, væntingum og við-
horfi. Öll höfum við skoðanir og
öll viljum við njóta okkar og hafa
gaman.
Þá sé gott að geta leitað til skap-
andi einstaklinga innan veggja
fyrirtækisins sem hafi sérmenntað
sig í skapandi greinum og auðveldi
undirbúning og hugmyndavinnu
viðburða.
Í IKEA er einnig komið til móts
við ólíkar þarfir með því að bjóða
upp á breitt námskeiðaúrval,
námsstyrki, heilsufarsstyrki og
velferðarþjónustu svo eitthvað sé
nefnt. Fyrirtæki á borð við IKEA
þurfa að axla samfélagsábyrgð á
mörgum sviðum og það á að vera
sjálfsagt.“ Hluti þess sé stuðningur
við starfsfólk til persónulegrar
þróunar og líkamlegrar og and-
legrar vellíðunar, að sögn Fjólu.
Að fylgja orðum í verki
Líðan starfsfólks, árangur og
hvatning er meðal annars mæld
með könnun sem framkvæmd er
fyrir IKEA á heimsvísu. Fjóla segir
það hafa verið mikla áskorun að
viðhalda þessum þáttum undan-
farin tvö ár vegna samkomutak-
markana og takmarkaðs frelsis
til félagslegra athafna. „Það var
því ánægjulegt að sjá niðurstöður
síðustu könnunar, sem voru mjög
jákvæðar og vel yfir meðaltali
þegar litið er til samanburðar-
hóps.“
„Þegar upp er staðið erum við
öll manneskjur sem eigum það
sameiginlegt að tilgangur í starfi
skiptir máli til að við þrífumst og
viðhöldum hvata. Við viljum að
það sé borin virðing fyrir okkur og
störfum okkar, að það sé tekið eftir
því hvernig við stöndum okkur og
að við upplifum öryggi, traust og
heiðarleika í samskiptum við sam-
starfsfólk,“ segir Fjóla Kristín. n
Mannauður er fólginn í fjölbreytninni
Margbreytilegt
er hvað hefur
hvetjandi áhrif
á starfsfólk og
veitir því vel-
líðan og starfs-
ánægju.
Hugmynda-
fræði IKEA er að
gera daglegt líf
þægilegra fyrir
flesta.
Virðing fyrir störfum, heiðarleiki, traust og öryggi er öllum mikilvægt á
vinnustað, og að eftir því sé tekið hvernig við stöndum okkur, segir Fjóla.
Fjóla segir gott að leita til skapandi einstaklinga sem hafa sérmenntað sig í
skapandi greinum til að auðvelda undirbúning og hugmyndavinnu viðburða.
Fjóla Kristín
Helgadóttir er
mannauðsstjóri
IKEA þar sem
listi starfsheita
er langur en
öll störf eru
jafn mikilvæg.
MYNDIR/AÐSENDAR
Hjá IKEA starfa einstaklingar af 39 þjóðernum.
kynningarblað 7LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál