Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 47
Upplýsingarnar
geta nýst á margan
hátt, svo sem við nýráðn-
ingar, í undirbúningi
launasamtala, við mótun
launastefnu og svo
framvegis.
Hafsteinn Már Einarsson
Það er mikilvægt fyrir fyrir-
tæki og stofnanir að greiða
starfsfólki sínu samkeppnis-
hæf laun sem eru í takt við
þróun markaðslauna. PwC
gefur út árlega markaðs-
launaskýrslu fyrir mikinn
fjölda starfa sem endur-
speglar íslenskan atvinnu-
markað og hjálpar fyrir-
tækjum að fylgjast með og
vera samkeppnishæf.
Að mörgu er að hyggja varðandi
launasetningu og launamál
fyrirtækja. Í því skyni þarf meðal
annars að skoða fylgni við lög og
kjarasamninga, laun sem hlutfall
af veltu, launajöfnuð innan fyrir-
tækis, samkeppnishæfni launa og
arðsemi eða sjálfbærni rekstrar til
framtíðar, svo nokkur atriði séu
nefnd.
„Undanfarin ár hefur umræðan
og áherslan snúist mikið um launa-
jöfnuð, hvort tveggja launamun
kynjanna og að greidd séu sam-
bærileg laun fyrir sömu eða jafn
verðmæt störf. Jafnlaunavottun og
lög um jafna stöðu og jafnan rétt
kynjanna leika þar lykilhlutverk,“
segir Hafsteinn Már Einarsson,
stjórnandi markaðslauna hjá PwC.
„Í hnotskurn má segja að jafn-
launaáherslan snúist um innra
launajafnvægi hvers fyrirtækis eða
stofnunar. Mikilvægt er að gætt sé
að launabili hvers starfshóps sem
samanstendur af sambærilegum
eða jafnverðmætum störfum, að
bilið sé innan eðlilegra vikmarka
og tilvik um launafrávik séu rétti-
lega greind og brugðist við þeim.
En það er ekki nóg að gæta
aðeins að innra launajafnvægi,
því fyrirtæki og stofnanir eru í
samkeppni um starfsfólk og þurfa
að greiða samkeppnishæf laun
til að halda í lykilstarfsfólk sitt. Í
heiminum er vaxandi samkeppni
um hæft starfsfólk og er Ísland þar
engin undantekning,“ útskýrir
Hafsteinn. „Samkeppni um starfs-
fólk nær út fyrir hefðbundna sam-
keppni við fyrirtæki innan sömu
atvinnugreinar því starfsfólk getur
auðveldlega flætt á milli ólíkra
atvinnugreina. Fyrirtæki þurfa því
að fylgjast vel með samkeppnis-
hæfni launasetningar sinnar og
gæta að því að þau séu að greiða
markaðslaun til lykilstarfahópa.“
Launakostnaður hlutfallslega
hár á Íslandi
„Í alþjóðlegum samanburði er
launakostnaður (laun og launa-
tengd gjöld) gjarnan mældur sem
hlutfall af vergri þjóðarfram-
leiðslu. Samkvæmt samantekt
UNECE (United Nations Econo-
mic Commission for Europe) var
þetta hlutfall 61,3% á Íslandi árið
2019 og er það með því hæsta sem
mælist meðal þjóða í Evrópu,“ segir
Hafsteinn. „Til samanburðar eru
Norðurlandaþjóðirnar Noregur,
Svíþjóð, Finnland og Danmörk
með launahlutfall á bilinu 53-56%.
Þetta eru hins vegar engin ný
tíðindi, því launahlutfall á Íslandi
hefur verið hátt til margra ára.
Undanfarin 13 ár hefur launa-
hlutfallið verið á bilinu 60-64% af
þjóðarframleiðslu, með undan-
tekningu á eftirhrunsárunum
2009 og 2010, þar sem hlutfallið
var 55 -57%.
Þetta þýðir að íslensk fyrirtæki
hafa að jafnaði úr minna að spila
en helstu samanburðarlönd til
að mæta öðrum rekstrarkostnaði
en launum, fjármagnskostnaði
og væntingum þeirra til arðsemi.
Eigi að viðhalda samkeppnis-
stöðu á Íslandi þá þrengir þetta
háa launahlutfall óneitanlega að
hinu margumtalaða svigrúmi
til launahækkana í kjarasamn-
ingum hérlendis,“ segir Hafsteinn.
„Niðurstaða kjarasamninga skiptir
þannig gríðarlega miklu máli og
mikilvægt er að þar náist hinn
gullni meðalvegur milli ásættan-
legra launabreytinga og þess að
viðhalda rekstarjafnvægi fyrir-
tækja.“
Mikilvægt að fylgjast vel með
„Í mörgum fyrirtækjum eru haldin
árleg launasamtöl þar sem línan er
lögð fyrir launabreytingar ársins.
Mikilvægt er fyrir stjórnendur og
mannauðsstjóra að undirbúa þau
samtöl vel með gögnum og rökum.
Launaþróun gerist ekki jafnt og
þétt, því einstaka hópar og starfs-
stéttir geta hækkað fyrr og hraðar
en aðrir,“ segir Hafsteinn. „Hækk-
unin getur einnig verið mismikil
á milli atvinnugreina, svo meðal-
talshækkun á markaðinum segir
því ekki alla söguna.
Mikilvægt er fyrir stjórn-
endur og mannauðsstjóra að
fylgjast vel með markaðslaunum
hjá lykilstarfahópum sínum og
byggja ákvarðanir á áreiðanlegum
gögnum þar að lútandi til að
minnka áhættuna á að missa lykil-
starfsfólk frá sér,“ segir Hafsteinn.
„Það hjálpar þeim einnig við að
staðsetja fyrirtækið í launasetn-
ingu gagnvart markaðinum í heild
og meta þörfina til launabreytinga
hjá einstaka starfshópum eða
starfsmönnum.“
Áreiðanlegar upplýsingar um
markaðslaun
„PwC hefur í 44 ár gert árlega
greiningu á markaðslaunum
fyrirtækja og stofnana og gefið út
skýrsluna „Markaðslaun á Íslandi“.
Skýrslan er ítarleg og tekur til
markaðslauna yfir 150 starfsheita
og nær til allflestra atvinnugreina
og starfahlutverka á Íslandi.
Fyrirtæki og stofnanir taka þátt
í greiningunni með innsendingu
launagagna sem fengin eru beint
úr launakerfum þeirra,“ segir
Hafsteinn. „Markaðslaun PwC
hafa á undanförnum árum byggt
á launagögnum um 15-20 þúsund
launþega á Íslandi, sem samsvara
um 10% af heildarvinnuafli á
íslenskum markaði. Launagögnin
ná til allra hlutverka í fyrirtækj-
unum, allt frá grunnstörfum til
forstjóra. Áreiðanleiki þessara
gagna er mikill, þar sem upp-
lýsingarnar byggja á reiknuðum og
greiddum launum úr launakerfum
frá fyrirtækjum og stofnunum.
Það má líka glöggva sig á launa-
samsetningu starfahóps með því
að rýna í þær aukagreiðslur sem
hópurinn fær og hver meðal-
upphæð slíkrar greiðslu er fyrir
hverja tegund aukagreiðslu,“ segir
Hafsteinn. „Slíkar upplýsingar
og frekari greiningar að auki eru
birtar fyrir öll starfsheiti í mark-
aðslaunaskýrslu PwC.“
Gagnast á margan hátt
„Öllum fyrirtækjum og stofn-
unum stendur til boða þátttaka í
markaðslaunum PwC og þátttaka
veitir aðgengi að greinargóðum
samanburðarupplýsingum um
laun. Upplýsingarnar geta nýst
stjórnendum og mannauðs-
stjórum á margan hátt, svo sem
við nýráðningar, í undirbúningi
launasamtala, við mótun launa-
stefnu og svo framvegis,“ útskýrir
Hafsteinn. „PwC býður enn fremur
upp á ýmsar sértækari greiningar
í tengslum við markaðslaun, til að
mynda stjórnendalaunagreiningu,
sem getur nýst starfskjaranefndum
vel við ákvarðanir á launakjörum
lykilstjórnenda.“ ■
Markaðslaun tryggja samkeppnishæfni
Sigurður Óli Sigurðarson, sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar PwC, Hafsteinn Már Einarsson, stjórnandi markaðslauna og Katrín Ingibergsdóttir, mannauðsstjóri PwC. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Myndin sýnir
launaniður-
stöður fyrir
skrifstofustörf
við launavinnslu
og bókhald frá
árinu 2020.
kynningarblað 11LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál