Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 48
Við í mannauðs
teyminu erum
einnig óhrædd við að
prófa nýjar aðferðir og
finna hvað það er sem
virkar best í okkar
mannauðsferlum.
Securitas er leiðandi
fyrirtæki í öryggismálum á
Íslandi og veitir fyrirtækjum
alhliða öryggisþjónustu.
Þjónustuframboð Securitas
spannar öll svið mannaðrar
gæslu og fjargæslu.
Vörur sem félagið selur eru tengdar
öryggismálum og telja meðal
annars innbrotaviðvörunarkerfi,
brunaviðvörunarkerfi, mynda-
vélakerfi, aðgangsstýrikerfi og
slökkvikerfi.
Guðrún Inga Guðlaugsdóttir,
mannauðsstjóri hjá Securitas, segir
fyrirtækið hafa verið markvisst á
stafrænni vegferð og eitt af stærri
verkefnum fyrirtækisins innleið-
ingu á nýju CRM kerfi, Salesforce.
„Við í mannauði höfum einnig
tileinkað okkur stafræna vegferð
en í dag er allt ráðninga- og inn-
leiðingarferlið okkar orðið rafrænt.
Við útbúum rafræna ráðningar-
samninga og undirritanir, sem
fylgir svo rafrænt „onboarding“-
ferli og formleg stofnun í kerf-
unum okkar,“ segir Guðrún.
„Þegar rafrænu „onbording“
er lokið þá stofnast starfsmaður
strax í Vitru, fræðslukerfinu
okkar, þar sem opnast fyrir starfs-
manninn bæði skyldunámskeið
og valnámskeið og kynningar. Í
okkar stafrænu vegferð tókum við
einmitt Vitru í gagnið sem gerir
okkur kleift að veita fræðslu og
þjálfun hvar sem er og hvenær sem
er. En starfsemin okkar er dreifð
um landið og fólkið okkar getur
verið að sinna verkefnum á öllum
tímum sólarhringsins.“
Guðrún fullyrðir að starfsfólk
Securitas hafi tekið Vitru vel, því á
fyrsta mánuðinum skráði megnið
af starfsfólki sig þar inn og hóf að
nýta sér námskeiðin.
„Við erum samtals um 500
manns sem störfum hjá Securitas
og erum með starfsstöðvar vítt og
breitt um landið. Því hefur rafrænt
fræðslukerfi opnað okkur nýjar
dyr hvað varðar fræðslumögu-
leika.
Í Vitru má finna rafræn velkom-
in myndbönd til nýs starfsfólks, en
það eru stutt fræðslumyndbönd
sem segja frá starfseminni og mik-
ilvægum upplýsingum tengdum
því að hefja hjá okkur störf, en að
auki bjóðum við nýliðum reglulega
til okkar á staðbundin námskeið
þar sem farið er meðal annars yfir
verklega öryggisfræðslu og þjálfun.
Markmið okkar er að allt okkar
starfsfólk fái samræmda nýliða-
fræðslu í upphafi starfs, sama hvert
starfið er,“ segir Guðrún.
Stefna og jafnlaunavottun
„Við í mannauðsteyminu erum
einnig óhrædd við að prófa nýjar
aðferðir og finna hvað það er sem
virkar best í okkar mannauðs-
ferlum. Við búum svo vel að stjórn-
endur hjá Securitas eru opnir fyrir
nýjungum og árið 2019 ákváðum
við til dæmis að prófa að notast við
hópviðtöl þegar verið er að ráða
inn fyrir jóla- og sumarstörf, en þá
ráðum við inn mikinn fjölda fólks,
allt upp undir 100 manns í einu.
Þessi nálgun hefur reynst okkur
afar vel, bæði stjórnendum og
umsækjendum þykja hópviðtölin
skemmtileg nýbreytni frá stöðluðu
viðtalsformi, en þar fá umsækj-
endur að leysa raunhæf verkefni
sem skapa miklar umræður í
hverjum hópi fyrir sig. Fyrsta til-
raun gekk það vel að stjórnendur
vildu ekki snúa til baka svo þetta
er orðið hefðbundið verklag við
fjöldaráðningar hjá okkur,“ segir
Guðrún.
„Í Covid þurftum við eins og
önnur fyrirtæki að laga okkur að
aðstæðum, tókum þá hópviðtölin
gegnum Teams og notuðumst við
„breakout rooms“. Það var mjög
áhugavert og gekk vel, sem sýnir
okkur að það er hægt að notast
við rafræna aðferð hópviðtala ef
þannig ber undir, en við klárlega
veljum frekar að hitta hópana í
raunheimum.“
Securitas hlaut jafnlaunavottun
árið 2019 og segir Guðrún að
teymið sé afar stolt af því, en jafn-
réttismál eru því hugleikin.
„Launamunur kynjanna hjá
okkur mælist undir 1 prósenti. Í
fyrra hófum við formlega veg-
ferð um að auka jafnréttisvitund
innan félagsins í jafn karllægu
umhverfi sem öryggisbransinn og
tækniumhverfið er. Fyrsta skrefið
var fundur meðal kvenna hjá fyrir-
tækinu þar sem jafnréttismál voru
rædd í víðu samhengi. Í kjölfarið
var sú ákvörðun tekin að fyrsti
hluti vegferðarinnar væri að auka
almenna vitund um jafnrétti og
mikilvægi fjölbreytni á vinnu-
staðnum og horfðum við sérstak-
lega til orðfæris í daglegu tali og
skrifmáli, að forðast karllæg orð
eins og tæknimenn og starfsmenn
og notast heldur við tæknifólk,
starfsfólk og í daglegu skrifmáli að
forðast ávörp eins og sælir,“ segir
hún.
„Við breyttum einnig hópnet-
föngum okkar úr „allir hjá Securi-
tas“ í „öll hjá Securitas“ og erum
smátt og smátt að breyta orðalagi
í skrifuðum texta hjá okkur, til
dæmis í verklagsreglum og til-
kynningum og fréttum á innri og
ytri miðlum. Þetta hjálpar allt við
að auka vitund um öll kyn á vinnu-
staðnum. Í framhaldi höfum við
lagt enn meiri áherslu á að minnka
bil kynjanna, en kynjahlutföll
okkar eru um 80 prósent karlar, 20
prósent konur. Við störfum í frekar
karllægum geira en við erum með
um 100 iðnmenntað starfsfólk og
því miður eru konur almennt í iðn-
greinum í minnihluta. Við höfum
því markvisst lagt áherslu á að ráða
inn kvenfólk í öll störf, nú síðast
í hóp tæknifólks á tæknisviði,
einnig hafa kvenstjórnendur bæst
við hópinn okkar, konum hefur
fjölgað í hópi öryggisvarða ásamt
því sem við ráðum inn hæft fólk
af öllum kynjum í önnur störf hjá
okkur. Með þessu hófst okkar veg-
ferð og munum við halda áfram
að stuðla að enn meiri jafnréttis-
vitund á vinnustaðnum.“ n
Securitas er í Skeifunni 8. Sími 580-
7000. Sjá nánar á securitas.is
Áhersla á ráðningu
kvenna í öll störf
Guðrún Inga Guðlaugsdóttir er mannauðsstjóri hjá Securitas. Þar hefur konum fjölgað í flestum störfum, sér í lagi í hópi öryggisvarða sem og hópi tæknifólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
12 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMÁl