Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 52
Vöxturinn felst í að
þróast með vinnu-
markaðinum og grípa
tækifærin sem skapast
með breytingum.
Elín Hjálmsdóttir
Öflugur hópur sérfræðinga
er á bak við fjölbreytt þjón-
ustuframboð Heilsuverndar.
Tækifærin til vaxtar blasa
við og við hyggjumst nýta
þau vel. Rauði þráðurinn í
þjónustuframboðinu er for-
vörn.
Hjá Heilsuvernd starfar öflugur
hópur sérfræðinga úr ýmsum
greinum heilbrigðisgeirans, sem
skýrir hversu fjölbreytt þjónustu-
framboðið er, að sögn Elínar
Hjálmsdóttur, framkvæmdastjóra
mannauðs- og markaðsmála hjá
Heilsuvernd. „Sú þjónusta sem
hefur verið lengst í boði og er
þekktust er fjarveruskráningar og
trúnaðarlæknisþjónusta. Eins eru
reglubundnar heilsufarsskoðanir
starfsmanna og inflúensubólu-
setningar fastur liður hjá mörgum
fyrirtækjum. Til viðbótar við
þetta má nefna vinnuverndina,
sálfræðiþjónustuna, úttektir á
starfsstöðvum, áhættumat, vel-
ferðarþjónustu, markþjálfun og
heilsueflandi fræðslufyrirlestra.“
Sérfræðingar í Streituskólanum,
sem er í eigu Heilsuverndar, sér-
hæfa sig í meðhöndlun á streitu,
bæði fyrir einstaklinga og hópa.
„Að auki bjóðum við upp á ýmiss
konar námskeið fyrir stærri og
smærri hópa sem snerta á heil-
brigði og vellíðan á fjölbreyttan
hátt.“
Forvörn er rauði þráðurinn
Elín segir rauða þráðinn í þjón-
ustuframboði Heilsuverndar vera
forvörn. „Við viljum leggja fyrir-
tækjum lið í að styrkja stjórnenda-
og starfsmannahóp sinn og fá um
leið aðstoð og ráðgjöf við að grípa
inn í hin ýmsu mál, en helst að
koma í veg fyrir að til þeirra komi.“
Það hefur aukist mikið að fyrir-
tæki bjóði starfsmönnum sínum
upp á „velferðarþjónustu“, sem
þýðir að sögn Elínar að starfs-
menn fá aðgang að skilgreindri
þjónustu og ráðgjöf hjá Heilsu-
vernd. „Sú þjónusta varðar ekki
endilega eingöngu starfsmanninn
sjálfan heldur jafnvel nánustu
fjölskyldu hans. Sem dæmi um
þetta má nefna sálfræðiþjónustu,
fjölskylduráðgjöf, markþjálfun,
næringarráðgjöf o.fl. Þetta er í
raun heildstæður pakki sem við
getum boðið og sniðið að mjög
miklu leyti að óskum hvers fyrir-
tækis. Þetta framtak fyrirtækja er
vel metið af starfsmönnum og þau
fyrirtæki sem hafa verið leiðandi
í þessu hafa vakið athygli fyrir og
uppskorið ánægju starfsmanna
sinna og athygli samkeppnisaðila.“
Ráðgjafarhlutinn dýrmætur
Eins og fyrr segir er fjarveru- og
veikindaskráningin sú þjónusta
sem hefur verið lengst í boði og
margsannað sig sem mikilvægan
hlekk í góðri mannauðsstjórnun.
„Þarna kemur enn og aftur fram
forvarnarhugarfarið sem gildir
hjá okkur. Með góðri skráningu
myndast mikilvægur gagnabanki
sem gefur hverju fyrirtæki upp-
lýsingar um stöðu og tækifæri til
úrbóta.“
Hún segir markmið þjónust-
unnar vera að draga úr fjarveru-
tíðni, efla heilbrigði og vellíðan
starfsmanna auk þess að veita
fyrirtækjum yfirsýn yfir veikinda-
mynstur vinnustaðarins þann-
ig að hugsanlega megi bregðast
við heilsuspillandi aðstæðum.
„Ráðgjafarhlutinn er ekki síður
dýrmætur fyrir starfsmanninn
sjálfan, því þegar fyrirtæki eru í
þjónustu um fjarvistarskráningar
þá hefur starfsmaður samband
í fjarveru sinni og fær faglega
ráðgjöf varðandi veikindi sín.
Starfsmaðurinn hefur jafnframt
alltaf aðgengi að heilbrigðisstarfs-
fólki Heilsuverndar til ráðgjafar og
þjónustu á opnunartíma, jafnvel
þó ekki sé um veikindafjarvist að
ræða. Það er ákveðinn öryggis-
ventill bæði fyrir starfsmanninn
og fyrirtækið sjálft.“
Elín segir Heilsuvernd búa yfir
mikilvægum gögnum varðandi
veikindafjarveru og geti því gert
ákveðna útreikninga og saman-
burð. „Það vilja allir vera lausir við
veikindi en þau eru engu að síður
hluti af lífi okkar. Því er mikilvægt
fyrir fyrirtæki að átta sig á því
hvort fjarvera starfsmanna vegna
veikinda sé í meðallagi, yfir eða
undir. Þá er hægt að bregðast við
stöðunni hverju sinni.“
Skemmtilegar lausnir í sjónmáli
Þjónustuframboð Heilsuverndar
er í sífelldri skoðun og segir Elín
þau vera óhrædd við að bjóða upp
á ný námskeið. „Vöxturinn felst í
að þróast með vinnumarkaðinum
og grípa tækifærin sem skapast
með breytingum, eins og þeim
öru breytingum sem eiga sér
stað núna. Heilsa og vellíðan er
„trend“ sem er komið til að vera.
Án starfsmanna gerist ekki mikið
í hefðbundnum rekstri og því er
mikið í húfi fyrir fyrirtæki að huga
að velferð starfsmanna sinna og
láta sig málin varða. Við tökum svo
auðvitað fullan þátt í tækniþróun-
inni og erum að vinna hörðum
höndum að því að fara yfir þjón-
ustuframboð okkar með tilliti til
þeirra tækifæra sem tæknin býður
upp á. Við sjáum auðvitað glitta í
skemmtilegar lausnir þar. Tæki-
færin til vaxtar blasa við og við
hyggjumst nýta þau vel.“ ■
Heilsa og vellíðan er komið til að vera
Elín Hjálms-
dóttir er fram-
kvæmdastjóri
mannauðs- og
markaðsmála
hjá Heilsuvernd.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Alltaf opið fyrir
INNRITUN
552 7366
songskolinn.is
songskolinn@songskolinn.is
•
Laufásvegi 49-51 101 Reykjavík
Söngskólinn í Reykjavík
Ungdeild •
Grunndeild •
Miðdeild •
Framhaldsdeild •
einsöngvaranám Háskóladeild •
kennaranám Háskóladeild •
7 vikna námskeið •
16 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál