Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 116

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 116
 Það er mjög gaman að upplifa það að hér var ekkert fyrir 25 árum og í dag er þetta eitt vinsælasta kaffihús í Reykjavík á sumrin. Marentza Poulsen Marentza Poulsen veitinga- kona hefur starfað í veitinga- geiranum nær óslitið í fjörutíu ár. Hún opnaði Flóruna kaffi- hús í Grasagarðinum í Laugar- dal árið 1997 fyrir 25 árum síðan. Marentza segir hug- myndina hafa kviknað stuttu eftir að hún gekk í klúbb við- skiptakvenna í Reykjavík. Við hittumst yfir kaffi- bolla á Flórunni sem opnaði nýlega en kaffi- húsið er aðeins rekið á sumrin. „Það er mjög gaman að upplifa það að hér var ekkert fyrir 25 árum og í dag er þetta eitt vinsælasta kaffihús í Reykjavík á sumrin,“ segir Marentza og bætir við að það sé ánægjulegt að horfa til baka á það sem hún hefur afrekað. Samhliða rekstri Flórunnar hefur Marentza rekið veisluþjónustu til margra ára en ásamt því rekur hún líka veitingastaðinn Klambrar bistro á Kjarvalsstöðum. Marentza er fædd og uppalin í Færeyjum en hefur búið á Íslandi frá 1964. Hún segir að þrátt fyrir að hafa búið mun lengur á Íslandi en í Fær- eyjum sé hjartað alltaf þar. Marentza býr í fallegu einbýlishúsi í Skerjafirði í Reykjavík með eiginmanni sínum en þau eiga tvö börn og fjögur barna- börn. Smurbrauðsjómfrú Marentza hóf feril sinn innan veit- ingageirans á unglingsaldri, fyrst á Hótel Sögu og síðar á Hótel Loft- leiðum. Átján ára gömul fluttist hún til Kaupmannahafnar í Danmörku þar sem smurbrauðsjómfrúin varð til. Frá því að Marentza fluttist aftur til Íslands hefur hún meira og minna starfað við matargerð og veitinga- rekstur. Aðspurð hvernig var að vera kona í veitingageiranum segir Marentza það hafa verið erfitt í upphafi. Hún hafi þurft að leggja mikið á sig til að læra að standa á eigin fótum og reka Bakaði kökurnar heima til að byrja með Marentza Poulsen hefur starfað í veit- ingageiranum nær óslitið í fjörutíu ár en hún rekur meðal annars Flóruna kaffihús í Grasa- garðinum ásamt Klambrar bistro á Kjarvals- stöðum. Fréttablaðið/ anton brink fyrirtæki. „Ég man þegar ég var fyrst veitingastjóri á Hótel Borg, þá voru eingöngu karlmenn yfirmenn nema ég, konan sem gat verið mamma þeirra nánast,“ segir Marentza og bætir við að þar hafi hún í raun í fyrsta skipti fundið fyrir því að vera kona. Reynsla hennar úr veitinga- bransanum hafi þó styrkt hana. Um það leyti sem Marentza hóf störf sem veitingastjóri gekk hún í kvennaklúbbinn BPW, Business and Professional Women, í Reykjavík. Marentza segir klúbbinn hafa gefið sér mikið og að þar hafi hún fengið tækifæri til að styrkja sig í kringum fjöldann allan af áhrifamiklum og sterkum konum sem í dag eru góðar vinkonur hennar. Kvennaklúbbur Þrátt fyrir að vera afar upptekin hefur Marentza gefið sér tíma til að vera í BPW klúbbnum í hartnær þrjátíu ár og segir hún hugmyndina af Flórunni einmitt hafa kviknað þar 1997. „Ein BPW systir mín var þá í borgarstjórn í umhverfismálum, Bryndís Krist- jánsdóttir, en hún og garðyrkjustjóri Grasagarðsins á þeim tíma, Jóhann Pálsson, höfðu spjallað saman um það að það væri nú gaman að vera með kaffihús í garðinum. Hann hafði farið út um allan heim og sá að all- staðar voru veitingastaðir og kaffihús í grasagörðum.“ Marentza segir Bryndísi hafa leitað til sín og spurt hvort hún væri til í að opna kaffihús í garðinum. „Ég hafði aldrei komið í Grasagarðinn og ég hafði aldrei komið hingað inn,“ segir Marentza og bendir á húsnæðið sem Flóran er í. „Ég kem hérna inn og sest á brúna, það var svolítið hrá- slagalegt veður og ég hugsaði með mér hvort ég gæti gert eitthvað hér. Þá var ekkert eldhús eða neitt,“ segir Marentza. Hún sé týpan sem hafi gaman af því að takast á við hluti sem séu mögulega ómögulegir og hún hafi ákveðið að slá til. „Maðurinn minn smíðaði lítið afgreiðsluborð og ég bakaði kökur heima hjá mér, eins gott að enginn vissi það þá,“ segir Marentza og skellir upp úr og heldur áfram, „og kom með þær hingað og það var lítil uppþvotta- vél sem tók sjö til átta diska í einu. Ég hélt að þetta væri alveg nóg en ég var ekki búin að vera hérna í tvo mánuði þegar ég þurfti að ráða til mín starfs- mann og þetta hefur vaxið svakalega síðan,“ segir Marentza. Það hafi svo ekki verið fyrr en 2006 sem eldhúsið kom á Flóruna og segir Marentza það hafa verið ofboðslega gaman að geta loksins farið að elda almennilega og bjóða upp á góða rétti. „Mörgum fannst þetta dauða- dæmt – sérstak lega kollegum mínum. En þeir öfunduðu mig löngu seinna að sjálfsögðu,“ segir Marentza, en á meðan reksturinn er opinn á sumrin starfa nú um þrjátíu starfsmenn hjá henni. Þolinmæði nauðsynleg Aðspurð hver sé lykillinn að góðum rekstri svarar Marentza um hæl að nauðsynlegt sé að nenna hlutunum. „Þú þarft að nenna og ég hef bara verið lánsöm að ég hef góða nennu. Ég nenni mjög vel að vinna og það er fátt sem mér þykir leiðinlegt. Ef þú nennir þessu þá er allt skemmtilegt en ef þú nennir þessu ekki getur þú lokað strax.“ Marentza bætir við að þolinmæði sé nauðsynleg, „þetta tekur tíma og maður má ekki vera óþolinmóður. Það tók mig alveg fimm ár að finna að þetta væri möguleiki.“ Marentza segir mun erfiðara að reka fyrirtæki í dag en áður fyrr, samkeppnin sé harðari og erfiðara sé að fá starfsfólk. „Þannig að þetta er erfiðara en engu að síður er þetta styrkjandi og gefandi því maður er alltaf að ögra sér. Það er svo fyndið, maður þurfti að læra á tölvur og allt sem því fylgir. Öll samskipti fara fram á netinu og ég, sem kona fædd 1950, var ekki alveg þar. Svo er þetta orðið þannig að þú ert að panta matinn á borðinu, nota mynda- vélina,“ segir Marentza og bendir á QR-kóðann og hlær: „Það er fullt af fullorðnum konum sem segja guð minn góður, hvað er þetta, ég kann þetta ekki. Það er alltaf verið að ögra okkur en þetta er mjög hollt og ég tek glöð þátt í þessu.“ Jafnréttisbaráttan Að sögn Marentzu hefur hún fengið mikinn stuðning hjá vinkonum sínum í BPW klúbbnum. Þær hitt- ist einu sinni í mánuði og að veran í klúbbnum hafi verið mjög lærdóms- rík frá upphafi. „Svo þessi tækifæri að komast út á ráðstefnur og kynn- ast öðrum konum og hlusta á mál- efni annarra. Maður fer alltaf með fullar töskur heim af fróðleik,“ segir Marentza, en ráðstefnur Evrópu- samtaka BPW fara fram á þriggja ára fresti og í ár fari ráðstefnan fram á Hilton hóteli dagana 27. til 29. maí næstkomandi. Hátt í 250 konur hafa skráð sig á ráðstefnuna en þær koma frá 27 löndum og segir Marentza þær mjög spenntar að koma til lands- ins. Þær horfi mikið til þess hversu langt íslenskar konur hafi komist í jafnréttisbaráttunni en þema ráð- stefnunnar er jafnrétti. „Íslenskar konur hafa verið duglegar en við eigum langt í land samt sem áður,“ segir Marentza og bætir við að það sé mikilvægt að konur hér á landi taki þátt í ráðstefnunni. Á henni munu margar af áhrifamestu konum landsins á framabraut vera með fyrirlestur, þar á meðal Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra, Helena Dalli, ráðherra jafnréttismála í stjórn Evrópusambandsins, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Tatjana Latinovic, forseti Kvenréttindafélags Íslands, Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður FKA, auk ellefu áhrifa- mikilla kvenna. Þá mun Eliza Reed forsetafrú vera með lokaorð. Ráðstefnan er opin konum á öllum aldri en hægt er að nálgast allar upplýsingar á vefnum bpwi- celand2022.is. n Helena Rós Sturludóttir helenaros @frettabladid.is 36 Helgin 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréttaBlaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.