Fréttablaðið - 11.06.2022, Side 36
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna
óskar sjómönnum og fjölskyldum
þeirra til hamingju með daginn
Sjómenn,
til hamingju!
S jómannadagur inn 2022
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna
www.vm.is
Nú um helgina er Hafnar-
fjarðarhöfn að taka í notkun
öflugar háspennutengingar
sem gera skipum við bryggju
kleift að fá rafmagn úr
landi, í stað þess að brenna
jarðefnaeldsneyti. Þessar
tengingar minnka mengun
til muna og eru mikilvægur
þáttur í orkuskiptum. Á sjó-
mannadaginn verður líka
mikið fjör í höfninni.
„Hafnarfjarðarhöfn er fyrsta höfn-
in á Íslandi til að bjóða viðskipta-
vinum sínum að tengjast öflugum
háspennulandtengingum þar sem
öll skip geta fengið rafmagn sem
er í samræmi við rafmagnskerfi
skipsins, en aflið er allt að 1,2 MW,“
segir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
í Hafnarfjarðarhöfn.
Í gær fór fyrsta tengingin fram,
en þá var frystitogarinn Baldvin
Njálsson GK 400 tengdur. Far-
þegaskipið Le Bellot, sem er í eigu
franska fyrirtækisins Le Ponant,
kemur svo til með að tengjast nýja
kerfinu á morgun, sjómanna-
daginn,“ segir Lúðvík. „Það verður
í fyrsta skipti sem skipið tengist
landstraumi og jafnframt í fyrsta
sinn sem farþegaskip tengist
landstraumi hérlendis.“
Mikil jákvæð umhverfisáhrif
„Þessi landtenging getur haft víð-
tæk umhverfisáhrif, því hún gerir
það að verkum að skip við bryggju
þurfa ekki að brenna jarðefnaelds-
neyti, en það er áætlað að um 14%
af eldsneytisnotkuninni fari fram
þar,“ segir Lúðvík. „Almennt eru
skip ekki orðin tilbúin fyrir þessa
tengingu, en kostnaðurinn við
að gera þau tilbúin er ekki mjög
mikill. Það er því vonandi að þetta
breytist, sérstaklega þegar aðstaða
í höfnum verður almennt þannig
að skip geta tengst rafmagni sem
hentar þeim.
Í sumar er gert ráð fyrir að
Le Bellot komi um 10 sinnum
til Hafnarfjarðarhafnar og það
þýðir að það má gera ráð fyrir
að þessi breyting minnki losun
kolefnistvíildis um 14 tonn í heild,“
segir Lúðvík. „Auk þess dregur
þetta úr losun köfnunarefnisoxíðs,
svifryksagna og sótagna, ásamt
því að minnka hávaða frá skipum
verulega.“
Fyrsti áfanginn í stærra verkefni
„Það eru komnar tvær háspennu-
tengingar í Hafnarfjarðarhöfn,
ein á Hvaleyrarbakka og önnur
á Suðurbakka, en framkvæmdir
við uppsetningu þeirra skiptust í
Stórt skref í
orkuskiptum hjá
Hafnarfjarðarhöfn
Lúðvík Geirsson,
hafnarstjóri í
Hafnarfjarðar-
höfn, segir
að þessi nýja
háspennu-
landtenging
fyrir skip minnki
brennslu jarð-
efnaeldsneytis
til muna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 var tengdur nýja kerfinu í gær og á
morgun verður farþegaskipið Le Bellot tengt, en það verður í fyrsta sinn sem
farþegaskip tengist landstraumi hérlendis.
Skip geta nú tengst rafmagni í Hafnarfjarðarhöfn og fengið rafmagn sem er í
samræmi við rafmagnskerfi skipsins, en aflið er allt að 1,2 MW.
tvennt, annars vegar háspennu-
hluta og hins vegar lágspennu-
hluta,“ útskýrir Lúðvík. „Eftir
útboð var samið við fyrir-
tækið Orkuvirki, sem sá um fram-
kvæmdir við uppsetninguna.
Hönnun á háspennuhlutanum
var í höndum Jóns Björns Braga-
sonar rafmagnstæknifræðings.
Ríkiskaup annaðist útboðið á
lágspennuhlutanum í samræmi
við tæknilýsingu J2B ráðgjöf og
Sætækni ehf. og samið var við
norska fyrirtækið PSW Power and
Automation.
Verkefnið hófst þegar hafnar-
stjórn samþykkti umhverfisstefnu
og aðgerðaáætlun fyrir höfnina í
lok ársins 2019, en undirbúningur
hönnunar og framkvæmda hófst
í maí 2020, svo þetta hefur tekið
tvö ár,“ segir Lúðvík. „Þessi
landtenging er fyrsti áfanginn í
stærra verkefni þar sem byggðar
verða upp frekari landtengingar í
Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvík.
Kostnaðurinn við fyrsta áfangann
nam um 240 milljónum króna en
áætlað er að heildarkostnaðurinn
verði um 600 milljónir króna.“
Mikið að gerast á sjómanna-
daginn
„Það verður mikið um að vera við
Flensborgarhöfn á sjómannadag-
inn, en dagskráin stendur yfir frá
því klukkan átta um morguninn
til klukkan fimm seinnipartinn.
Á heimasíðu Hafnarfjarðarhafnar
er hægt að finna allar nánari upp-
lýsingar um dagskrána, sem er
mikil og fjölbreytt og hentar allri
fjölskyldunni,“ segir Lúðvík.
„Hafrannsóknastofnun verður
með fiskasýningu fyrir framan
höfuðstöðvar sínar á Háabakka
og þar verður líka opið hús.
Það verður hægt að skoða bæði
fiska og hryggleysingja, allt frá
algengum nytjafiskum til sjald-
séðra tegunda,“ segir Lúðvík.
„Hafnarfjarðarhöfn býður líka upp
á skemmtisiglingar, Björgunarsveit
Hafnarfjarðar setur upp leiktæki,
siglingaklúbburinn Þytur mun
bjóða upp á kajaka og árabáta, það
verður skemmtidagskrá og sterk-
asti maður Íslands verður krýndur
í lok dags eftir aflraunakeppni.
Það verður líka ljósmyndasýn-
ing frá Byggðasafninu á Strand-
stígnum, sýning um tímabil
erlendu útgerðanna í Bookless
Bungalow, og í Siggubæ verður
hægt að sjá sýnishorn frá heimili
sjómanna í Hafnarfirði á fyrri
hluta 20. aldar. Svo verður hægt
að nálgast handverk og hönnun
hafnfirskra listamanna í verslun-
um og listagalleríum við höfnina
og njóta góðra veitinga á veitinga-
stöðum og kaffihúsum í nágrenni
hafnarinnar,“ segir Lúðvík. „Við
hvetjum því Hafnfirðinga og alla
aðra til að gera sér ferð og njóta
með okkur.“ n
6 kynningarblað 11. júní 2022 LAUGARDAGURSjómannadagurinn