Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 36

Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 36
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr @frettabladid.is VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn Sjómenn, til hamingju! S jómannadagur inn 2022 VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna www.vm.is Nú um helgina er Hafnar- fjarðarhöfn að taka í notkun öflugar háspennutengingar sem gera skipum við bryggju kleift að fá rafmagn úr landi, í stað þess að brenna jarðefnaeldsneyti. Þessar tengingar minnka mengun til muna og eru mikilvægur þáttur í orkuskiptum. Á sjó- mannadaginn verður líka mikið fjör í höfninni. „Hafnarfjarðarhöfn er fyrsta höfn- in á Íslandi til að bjóða viðskipta- vinum sínum að tengjast öflugum háspennulandtengingum þar sem öll skip geta fengið rafmagn sem er í samræmi við rafmagnskerfi skipsins, en aflið er allt að 1,2 MW,“ segir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfjarðarhöfn. Í gær fór fyrsta tengingin fram, en þá var frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 tengdur. Far- þegaskipið Le Bellot, sem er í eigu franska fyrirtækisins Le Ponant, kemur svo til með að tengjast nýja kerfinu á morgun, sjómanna- daginn,“ segir Lúðvík. „Það verður í fyrsta skipti sem skipið tengist landstraumi og jafnframt í fyrsta sinn sem farþegaskip tengist landstraumi hérlendis.“ Mikil jákvæð umhverfisáhrif „Þessi landtenging getur haft víð- tæk umhverfisáhrif, því hún gerir það að verkum að skip við bryggju þurfa ekki að brenna jarðefnaelds- neyti, en það er áætlað að um 14% af eldsneytisnotkuninni fari fram þar,“ segir Lúðvík. „Almennt eru skip ekki orðin tilbúin fyrir þessa tengingu, en kostnaðurinn við að gera þau tilbúin er ekki mjög mikill. Það er því vonandi að þetta breytist, sérstaklega þegar aðstaða í höfnum verður almennt þannig að skip geta tengst rafmagni sem hentar þeim. Í sumar er gert ráð fyrir að Le Bellot komi um 10 sinnum til Hafnarfjarðarhafnar og það þýðir að það má gera ráð fyrir að þessi breyting minnki losun kolefnistvíildis um 14 tonn í heild,“ segir Lúðvík. „Auk þess dregur þetta úr losun köfnunarefnisoxíðs, svifryksagna og sótagna, ásamt því að minnka hávaða frá skipum verulega.“ Fyrsti áfanginn í stærra verkefni „Það eru komnar tvær háspennu- tengingar í Hafnarfjarðarhöfn, ein á Hvaleyrarbakka og önnur á Suðurbakka, en framkvæmdir við uppsetningu þeirra skiptust í Stórt skref í orkuskiptum hjá Hafnarfjarðarhöfn Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfjarðar- höfn, segir að þessi nýja háspennu- landtenging fyrir skip minnki brennslu jarð- efnaeldsneytis til muna. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 var tengdur nýja kerfinu í gær og á morgun verður farþegaskipið Le Bellot tengt, en það verður í fyrsta sinn sem farþegaskip tengist landstraumi hérlendis. Skip geta nú tengst rafmagni í Hafnarfjarðarhöfn og fengið rafmagn sem er í samræmi við rafmagnskerfi skipsins, en aflið er allt að 1,2 MW. tvennt, annars vegar háspennu- hluta og hins vegar lágspennu- hluta,“ útskýrir Lúðvík. „Eftir útboð var samið við fyrir- tækið Orkuvirki, sem sá um fram- kvæmdir við uppsetninguna. Hönnun á háspennuhlutanum var í höndum Jóns Björns Braga- sonar rafmagnstæknifræðings. Ríkiskaup annaðist útboðið á lágspennuhlutanum í samræmi við tæknilýsingu J2B ráðgjöf og Sætækni ehf. og samið var við norska fyrirtækið PSW Power and Automation. Verkefnið hófst þegar hafnar- stjórn samþykkti umhverfisstefnu og aðgerðaáætlun fyrir höfnina í lok ársins 2019, en undirbúningur hönnunar og framkvæmda hófst í maí 2020, svo þetta hefur tekið tvö ár,“ segir Lúðvík. „Þessi landtenging er fyrsti áfanginn í stærra verkefni þar sem byggðar verða upp frekari landtengingar í Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvík. Kostnaðurinn við fyrsta áfangann nam um 240 milljónum króna en áætlað er að heildarkostnaðurinn verði um 600 milljónir króna.“ Mikið að gerast á sjómanna- daginn „Það verður mikið um að vera við Flensborgarhöfn á sjómannadag- inn, en dagskráin stendur yfir frá því klukkan átta um morguninn til klukkan fimm seinnipartinn. Á heimasíðu Hafnarfjarðarhafnar er hægt að finna allar nánari upp- lýsingar um dagskrána, sem er mikil og fjölbreytt og hentar allri fjölskyldunni,“ segir Lúðvík. „Hafrannsóknastofnun verður með fiskasýningu fyrir framan höfuðstöðvar sínar á Háabakka og þar verður líka opið hús. Það verður hægt að skoða bæði fiska og hryggleysingja, allt frá algengum nytjafiskum til sjald- séðra tegunda,“ segir Lúðvík. „Hafnarfjarðarhöfn býður líka upp á skemmtisiglingar, Björgunarsveit Hafnarfjarðar setur upp leiktæki, siglingaklúbburinn Þytur mun bjóða upp á kajaka og árabáta, það verður skemmtidagskrá og sterk- asti maður Íslands verður krýndur í lok dags eftir aflraunakeppni. Það verður líka ljósmyndasýn- ing frá Byggðasafninu á Strand- stígnum, sýning um tímabil erlendu útgerðanna í Bookless Bungalow, og í Siggubæ verður hægt að sjá sýnishorn frá heimili sjómanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Svo verður hægt að nálgast handverk og hönnun hafnfirskra listamanna í verslun- um og listagalleríum við höfnina og njóta góðra veitinga á veitinga- stöðum og kaffihúsum í nágrenni hafnarinnar,“ segir Lúðvík. „Við hvetjum því Hafnfirðinga og alla aðra til að gera sér ferð og njóta með okkur.“ n 6 kynningarblað 11. júní 2022 LAUGARDAGURSjómannadagurinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.