Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 51

Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 51
Taktu þátt í að móta framtíðina! Við leitum að drífandi einstaklingum í embætti skrifstofustjóra samkvæmt nýju skipuriti ráðuneytisins sem kynnt var 2. júní 2022. Við leitum að fólki sem hugsar í lausnum og sér tækifæri í öllum hindrunum. Við viljum ráða til starfa einstaklinga sem þrífast á krefjandi verkefnum, skynja taktinn í samfélaginu og vilja breyta til hins betra. Við ætlum sérstaklega að auka áherslu á uppbyggingu mannauðs, stafrænar breytingar og hagrænar greiningar á verkefnum. Mennta- og barnamálaráðuneyti auglýsir fjögur embætti skrifstofustjóra laus til umsóknar Kynningarfundur um nýtt skipulag ráðuneytisins og ný embætti skrifstofustjóra verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica 16. júní kl. 8:30. Markmiðið með nýju skipulagi er að efla teymis- vinnu, skilvirkni og árangur innan mennta- og barnamálaráðuneytisins. Þannig nýtist mannauður ráðuneytisins sem best til að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna og ungmenna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi. Til að stuðla að farsælum árangri er rík áhersla lögð á skilvirkni og nýtingu tölfræði og greininga við mótun tillagna um aðlögun eða breytingar á stefnu, lögum og reglugerðum. Framundan er spennandi og viðamikið verkefni við að móta nýjar skrifstofur og nýtt verklag innan ráðuneytisins. Um er að ræða fjórar krefjandi stjórnunarstöður sem reyna á frum- kvæði, samskiptahæfni, forystuhæfileika og öguð vinnubrögð. Skrifstofustjórar eru hluti af stjórnendateymi ráðuneytisins og heyra beint undir ráðuneytisstjóra. Helstu verkefni • Þátttaka í mótun stefnu og innleiðingu stefnumarkandi ákvarðana. • Ábyrgð á faglegu starfi, farsælli stjórnun og rekstri skrifstofu. • Leiða og styðja öflugt starfsfólk til árangurs. • Ábyrgð á stjórnsýslulegum skyldum skrifstofunnar. • Yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og forgangsröðun þeirra í samráði við ráðuneytisstjóra og aðra stjórnendur ráðuneytisins. • Virk þátttaka í samstarfi og samvinnu innan ráðuneytisins. • Leiða samskipti og samstarf við önnur ráðuneyti, hagaðila og aðra innlenda og erlenda aðila sem koma að málefnum ráðuneytisins. Hlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna og ungmenna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi. Ráðuneytið fer með málefni skóla og fræðslu, æskulýðs- og íþróttamál, velferðarmál barna og barnavernd. Nám á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi heyrir undir ráðuneytið, svo og námsmat, námsgögn og námsskrárgerð á þeim skólastigum. Þá heyra listaskólar og lýðskólar undir ráðuneyti mennta- og barnamála. Nánari upplýsingar um embættin má finna á Starfatorg.is. Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2022. Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar Stefnumótun fyrir málefnasvið ráðuneytisins og innleiðingu stefnu. Undirbúningur stefnumála og áherslna ráðherra eins og þær birtast í sértækum stefnum, lögum, fjármála- áætlunum og fjárlögum. Skrifstofa greininga og fjármála Öflun, greining og framsetning tölfræði- gagna er varða málefnasvið ráðuneytisins og mat á hagrænum og fjárhagslegum áhrifum stefnumótandi tillagna og aðgerða. Yfirumsjón með gerð og eftirfylgni fjármála- áætlunar og fjárlaga. Skrifstofa gæða- og eftirlitsmála Eftirlit með framkvæmd og innleiðingu gildandi reglna, laga og verkefnaáætlana á málefnasviði ráðuneytisins, m.a. með námi og kennslu á öllum skólastigum. Ábyrgð á framkvæmd gæðamats og eftirliti með gæðastarfi í undirstofnunum ráðuneytisins. Skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu Samhæfing á starfsemi ráðuneytisins, umsjón með umbótastarfi, undirbúningur og eftirfylgni með settum áherslum í starfsemi þess.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.