Fréttablaðið - 11.06.2022, Qupperneq 51
Taktu þátt í
að móta framtíðina!
Við leitum að drífandi einstaklingum í embætti skrifstofustjóra
samkvæmt nýju skipuriti ráðuneytisins sem kynnt var 2. júní 2022.
Við leitum að fólki sem hugsar í lausnum og sér tækifæri í öllum
hindrunum. Við viljum ráða til starfa einstaklinga sem þrífast á
krefjandi verkefnum, skynja taktinn í samfélaginu og vilja breyta
til hins betra. Við ætlum sérstaklega að auka áherslu á uppbyggingu
mannauðs, stafrænar breytingar og hagrænar greiningar á verkefnum.
Mennta- og barnamálaráðuneyti auglýsir
fjögur embætti skrifstofustjóra laus til umsóknar
Kynningarfundur um nýtt skipulag ráðuneytisins
og ný embætti skrifstofustjóra verður haldinn á
Hilton Reykjavík Nordica 16. júní kl. 8:30.
Markmiðið með nýju skipulagi er að efla teymis-
vinnu, skilvirkni og árangur innan mennta-
og barnamálaráðuneytisins. Þannig nýtist
mannauður ráðuneytisins sem best til að tryggja
að menntun, aðbúnaður og réttindi barna og
ungmenna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi. Til að
stuðla að farsælum árangri er rík áhersla lögð
á skilvirkni og nýtingu tölfræði og greininga
við mótun tillagna um aðlögun eða breytingar
á stefnu, lögum og reglugerðum.
Framundan er spennandi og viðamikið verkefni
við að móta nýjar skrifstofur og nýtt verklag
innan ráðuneytisins. Um er að ræða fjórar
krefjandi stjórnunarstöður sem reyna á frum-
kvæði, samskiptahæfni, forystuhæfileika og
öguð vinnubrögð. Skrifstofustjórar eru hluti
af stjórnendateymi ráðuneytisins og heyra
beint undir ráðuneytisstjóra.
Helstu verkefni
• Þátttaka í mótun stefnu og innleiðingu
stefnumarkandi ákvarðana.
• Ábyrgð á faglegu starfi, farsælli stjórnun
og rekstri skrifstofu.
• Leiða og styðja öflugt starfsfólk til árangurs.
• Ábyrgð á stjórnsýslulegum skyldum skrifstofunnar.
• Yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar
og forgangsröðun þeirra í samráði við ráðuneytisstjóra
og aðra stjórnendur ráðuneytisins.
• Virk þátttaka í samstarfi og samvinnu innan ráðuneytisins.
• Leiða samskipti og samstarf við önnur ráðuneyti, hagaðila
og aðra innlenda og erlenda aðila sem koma að
málefnum ráðuneytisins.
Hlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að
menntun, aðbúnaður og réttindi barna og ungmenna á Íslandi séu
ávallt í fyrirrúmi. Ráðuneytið fer með málefni skóla og fræðslu,
æskulýðs- og íþróttamál, velferðarmál barna og barnavernd. Nám á
leik-, grunn- og framhaldsskólastigi heyrir undir ráðuneytið, svo og
námsmat, námsgögn og námsskrárgerð á þeim skólastigum. Þá heyra
listaskólar og lýðskólar undir ráðuneyti mennta- og barnamála.
Nánari upplýsingar um embættin má finna á Starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2022.
Skrifstofa
stefnumótunar
og innleiðingar
Stefnumótun fyrir
málefnasvið ráðuneytisins
og innleiðingu stefnu.
Undirbúningur stefnumála
og áherslna ráðherra eins
og þær birtast í sértækum
stefnum, lögum, fjármála-
áætlunum og fjárlögum.
Skrifstofa greininga
og fjármála
Öflun, greining og
framsetning tölfræði-
gagna er varða málefnasvið
ráðuneytisins og mat á
hagrænum og fjárhagslegum
áhrifum stefnumótandi
tillagna og aðgerða.
Yfirumsjón með gerð
og eftirfylgni fjármála-
áætlunar og fjárlaga.
Skrifstofa
gæða- og
eftirlitsmála
Eftirlit með framkvæmd og
innleiðingu gildandi reglna,
laga og verkefnaáætlana á
málefnasviði ráðuneytisins,
m.a. með námi og kennslu
á öllum skólastigum. Ábyrgð
á framkvæmd gæðamats
og eftirliti með gæðastarfi
í undirstofnunum
ráðuneytisins.
Skrifstofa
ráðuneytisstjóra
og innri þjónustu
Samhæfing á starfsemi
ráðuneytisins, umsjón
með umbótastarfi,
undirbúningur og
eftirfylgni með settum
áherslum í starfsemi þess.