Fréttablaðið - 11.06.2022, Side 74

Fréttablaðið - 11.06.2022, Side 74
Í flugtakinu lenti vélin í svo miklu niðurstreymi að hún komst ekki stystu leið upp. Ákvað þá Bogi að reyna að bakka henni út úr gilinu. Fjórtán Útkallsþættir hafa nú verið sýndir á Hringbraut. Hafa þeir fengið góðar viðtökur og mikið áhorf. Óttar Sveinsson, höfundur Útkalls, fær til sín söguhetjur úr bókunum auk annarra sem tengj- ast slysum, björgunum eða nátt- úruhamförum. Þetta er alþýðu- fólk – þjóðin, sem er í stöðugri baráttu við náttúruöflin. Fólkið segir áhrifaríkar sögur – mannlegt drama og umhyggja, tilfinningar og sterkar upplifanir. Í næsta þætti, á þriðjudag kl. 19.30, fær Óttar til sín Boga Agnars- son, fyrrum flugstjóra hjá þyrlu- sveit Landhelgisgæslunnar. Bogi lýsir því þegar hann stóð frammi fyrir þeirri afdrifaríku ákvörðun að þurfa að bakka TF-SIF heila 2 kílómetra út úr gili í Kerlingar- fjöllum. Vélhjólamaður hafði ekið fram af brúninni og lent niðri í gilinu. Hann slasaðist alvarlega og þurfti að koma honum strax á sjúkrahús. Þegar vélinni var flogið niður í gilið var manninum komið um borð. Í f lugtakinu lenti vélin í svo miklu niðurstreymi að hún komst ekki stystu leið upp. Ákvað þá Bogi að reyna að bakka henni út úr gilinu. Í þættinum lýsir hann því á spennandi hátt hvað gerðist. Þá segir Bogi einnig frá því þegar áhöfn hans bjargaði bandarískum ferjuflugmönnum á ævintýralegan hátt úr sjónum vestur af Reykja- nesi. Eftir sumarfrí fer svo ný Útkalls- þáttasería í loftið á Hringbraut. Óttar fær þá til sín fólk sem hefur meðal annars lent í sjóslysum, sprungubjörgunum, eldgosum og flugslysum. Björgunarsveitarfólkið segir einnig sína sögu – hvernig það er að vera á vettvangi og bjarga fólki sem horfist stundum í augu við dauðann. n Bakkaði þyrlunni 2 kílómetra úr gili Dagskrá sjómannadagsins í Reykjavík fer fram við Reykja- víkurhöfn og á Grandanum. Fjöl- breytt dagskrá er í boði fyrir alla aldurshópa, ekki síst yngri börn og fjölskyldufólk. Boðið verður upp á öðruvísi föndur í Svaninum, endurvinnslu- stöð Brims, en þar er rusl sem finnst í sjónum endurunnið. Börn og fullorðnir geta nýtt fjölbreytt hráefni úr sjónum og leyft sköp- unargáfunni að njóta sín. Við bílastæðið hjá Sjóstanga- veiðifélaginu, Grandagarði 18, býðst börnum á öllum aldri að smíða sinn eigin bát. Timbur, hamrar og naglar verða á staðnum. Þegar smíðinni er lokið geta börnin tekið bátinn með heim. Hin sívinsæla furðufiskasýning fer fram á Grandagarði en hún er órjúfanlegur hluti sjómanna- dagsins fyrir börn og fullorðna líka. Þar má sjá fjölbreytta fiska og furðuskepnur, allt frá algengum nytjafiskum eins og ýsu og þorski, til sjaldséðari tegunda eins og svartdjöfla og bjúgtanna. Boðið verður upp á fjölskyldu- ratleik þar sem keppendur kynnast Grandanum og öllu því skemmti- lega og fróðlega sem þar er í boði. Vegleg verðlaun eru í boði, meðal annars Zero 8 rafmagnshlaupahjól frá Ellingsen, trampólín frá BYKO og gjafabréf frá 66°Norður. Hægt er að skrá sig til leiks á sjómanna- dagurinn.is. n Margt í boði fyrir börn í Reykjavík Furðufiskarnir vekja alltaf mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Óttar Sveinsson hefur slegið í gegn með þáttunum Útkalli á Hringbraut. E N N E M M / S ÍA / N M - 0 0 5 1 5 9 ALLA LEIÐ Við tökum þjónustuna alla leið Það er okkur sönn ánægja að bjóða nú upp á enn betri þjónustu með nýrri og öflugri vefverslun N1 sem nýtist sjómönnum og útgerðarfyrirtækjum hvort sem er á sjó eða í landi. N1 sendir hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti alla leið! 440 1000 n1.is Til hamingju með daginn sjómenn! 16 kynningarblað 11. júní 2022 LAUGARDAGURSjóMannadaguRinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.