Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 100
Við viljum að sjálf- sögðu sýna að við getum svo sannarlega líka sungið. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða eða aðgang að útsölum á undan öðrum með því að skrá þig á póstlista Dorma. Nú 98.995 kr. BERMUDA Útisófasett og borð. 210 x 210 x 80 cm. Hægt að raða upp á marga vegu. Fullt verð: 179.900 kr. Nú 149.925 kr. AVIGNON hægindastóll með skammel Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður. Verð 199.900 kr. 25% AFSLÁTTUR 45% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR BOSTON VIVA heilsurúm Boston City heilsurúmin frá Sealy fást í tveimur stærðum; 160x200 og 180x200 cm. Dýnan er svæðaskipt pokagormadýna. Efst er mjúk og þægileg yfirdýna sem styður vel við líkama þinn. Botninn er með gormum (Boxspring) sem gefur viðbótarfjöðrun. Nú 181.935 kr. 160x200 cm Fullt verð: 279.900 kr. *Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Fjölþjóðlegur kórsöngur mun óma yfir Vatnsmýrinni og víðar um borgina í lok mánaðarins þegar kórafólk frá öllum Norðurlöndunum kemur saman á kórahátíðinni Nordklang sem verður haldin á Íslandi í fyrsta skipti í sögu hátíðarinnar, sem hófst 1952. toti@frettabladid.is Norræna kórahátíðin Nordklang verður haldin í fyrsta skipti á Íslandi um mánaðamótin, en hún hefst strax í kjölfar norrænnar fag- ráðstefnu kórstjóra. Mikill hugur er eðlilega í stjórnum Landssambands blandaðra kóra og Félags íslenskra kórstjóra, sem hvetja íslenskt kóra- fólk til að fjölmenna á hátíðina og finna röddum sínum samhljóm með fulltrúum frændþjóðanna. „Við erum stolt og spennt fyrir þessu öllu,“ segir Margrét Bóas- dóttir kórstjóri, sem er í undirbún- ingsnefnd stórviðburðanna tveggja. „Norðurlöndin hafa með sér kóra- samtök og Nordklang hátíðin er í raun og veru eina stóra verkefnið sem þau standa saman að.“ Hátíðin var fyrst haldin 1952 og hefur síðan þá færst á milli land- anna á þriggja ára fresti. „En við höfum ekki treyst okkur til að taka þetta að okkur þannig að það hefur samviskusamlega verið hlaupið yfir okkur þangað til núna fyrir þremur árum í Helsingborg í Svíþjóð, að við ákváðum að nú skyldum við bara standa okkur og taka þetta að okkur. Við erum líka rosa stolt af því að tveir kórar ætla að koma frá Græn- landi og þetta er í fyrsta skipti sem það gerist. Við erum með persónu- leg sambönd og byrjuðum aðeins að ylja þeim strax fyrir þremur árum. Síðan er einn kór frá Færeyjum, heill kór frá Finnlandi og svo auðvitað íslenskir kórar.“ Kjære nordiske venner Hugmyndin með hátíðinni er að leiða saman kórsöngvara frá öllum Norðurlöndunum til skrafs, ráða- gerða og auðvitað fyrst og fremst að syngja saman. „Þannig að nú verður það bara „kjære nordiske venner“ og við búum til einn sameiginlegan kór úr okkur öllum,“ segir Margrét og áréttar að heilu kórarnir þurfi ekki að skrá sig til leiks heldur geti ein- staka félagar komið í smærri hópum eða einir sér. Nordklang hefst 29. júní en tveimur dögum fyrr byrjar norræn fagráðstefna kórstjóra. „Þannig að við vindum þetta svo skemmtilega saman að þetta er bara heil vika af kórstjórum og svo kórsöngvurum. Við verðum svona rétt um 100 kór- stjórarnir á ráðstefnunni og helm- ingurinn erlendis frá. Síðan verðum við væntanlega eitthvað um 350- 400 á kórahátíðinni.“ Margrét segir stóran hluta kór- söngvaranna koma erlendis frá og hvetur íslenskt kórafólk eindregið til að mæta til leiks þannig að radd- styrkur Íslands verði sem mestur. „Það væri óskandi að sem flestir skrái sig og Íslendingar eru nú frægir fyrir að bregðast mjög skjótt við á síðustu stundu, en við megum eiga það að við gerum það þá líka mjög vel. En það skiptir auðvitað máli bæði að sýna samstöðu og þar sem við erum að taka þetta að okkur viljum að sjálfsögðu sýna að við getum svo sannarlega líka sungið. Við viljum ekki láta okkar eftir liggja og hvetjum þess vegna íslenska kór- söngvara til þess að grípa nú upp tölvuna sína og skrá sig á hátíðina.“ Áhættuatriði Margrét segir Háskólann í Reykjavík í Vatnsmýrinni, sem verður varnar- þing hátíðarhaldanna, vera sann- kallaðan happafeng enda einstak- lega hentugt húsnæði fyrir kórsöng. „Ég var fyrir þremur árum í Svíþjóð og fyrir sex árum í Finnlandi og miðað við þær hátíðir sem ég hef sótt þá erum við með albestu aðstöð- una í HR. Fyrirlestrasalirnir eru til dæmis á pöllum þannig að kórpall- arnir eru innbyggðir í húsinu, sem er nú ekki algengt, en sérdeilis vel fallið fyrir samsöng.“ Níu vinnusmiðjur verða í gangi á hátíðinni og þar verður unnið með ýmiss konar tónlist, æft í hópum og sungið í sex tíma á dag. „Þessu lýkur síðan með stórtónleikum í Hörpu laugardaginn 2. júlí, þar sem allar vinnusmiðjurnar flytja tvö til þrjú lög sem þær hafa æft. Þetta er áhættuatriði, enda spurning hversu góður árangur hefur náðst á þremur dögum,“ segir Margrét. Allar frekari upplýsingar um hátíðina eru á nordklangkorfestival. org. n Norrænn fjöldakórsöngur fyllir Vatnsmýrina Margrét Bóasdóttir, kórstjóri og söngkona, hvetur íslenskt kórafólk til að fjölmenna á norrænu kórahátíðina sem hefst í Háskólanum í Reykjavík í lok mánaðarins í kjölfar ráðstefnu kórstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR odduraevar@frettabladid.is „Enn ein fréttavikan er senn á enda runnin. Sú var viðburðarík. Rétt í kjölfar manndrápsmáls þá erum við „sjanghæuð“ á af hjúpandi blaða- mannafund um skipulagða glæpa- starfsemi,“ segir Margrét Helga um fréttavikuna sem er að líða. Á fimmtudagsmorgun var ég komin áleiðis með útvarpsviðtal mitt við sóttvarnalækni um kórónu- veiruna þegar hann spyr mig af sinni alkunnu yfirvegun hvort ég hefði nokkurn áhuga á að spyrja hann út í apabóluna. Hún væri nefnilega komin til landsins. En það voru ekki aðeins vágestir sem sóttu Ísland heim í vikunni heldur líka mikilsmetnir þjóðhöfð- ingjar. Hæstvirt Netumbo Nandi- Ndaitwah utanríkisráðherra var hér ásamt rannsakendum. Dóms- málaráðherra sá sér reyndar ekki fært að hitta ráðherrann og sendi í sinn stað aðstoðarmann sinn, Brynjar Níelsson. Ég ræddi við héraðssaksóknara, sem á dögunum sat fund með nami- bísku sendinefndinni um Samherja- skjölin. Hann sagði að það væri „góður gangur á rannsókninni“. Þessa setningu hef ég heyrt með reglulegu millibili frá afhjúpuninni 2019. Drago Kos, formaður vinnuhóps OECD gegn mútum, sagði í sama mánuði og afhjúpunin átti sér stað að málið yrði prófsteinn á getu íslenskra lögregluyfirvalda. Það þyrfti að taka á málinu innan skyn- samlegra tímamarka. Ég velti fyrir mér hvað hann segði nú, tveimur og hálfu ári seinna. n Af vágestum og aufúsugestum Margrét Helga Erlingsdóttir frétta- kona. MYND/AÐSEND n Frétt vikunnar Margrét Helga Erlingsdóttir 48 Lífið 11. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.