Skessuhorn - 18.05.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20222
Vel gengur
að mála
gangbrautir
AKRANES: Íbúar á Akra
nesi hafa tekið eftir því síð
ustu vikur að vel hefur geng
ið í málun gangbrauta og því
ber að hrósa bæjaryfirvöld
um fyrir vel unnin störf í þess
um málum þetta sumarið.
Þetta er mikið öryggismál fyr
ir íbúa bæjarins og ástæða til
að minna ökumenn á að hægja
á sér þegar þeir nálgast gang
brautir og hraðahindranir og
aka ætíð á löglegum hraða því
öll viljum við komast á leiðar
enda heil á húfi. -vaks
Kosningaskjálfti
í Þrengslunum
HELLISH: Laust fyrir klukk
an 17 á laugardaginn varð
nokkuð snarpur jarðskjálfti
sem átti upptök sín skammt
norðaustan við Þrengslin, eða
austan við Lambafell. Sam
kvæmt staðfestum mælingum
Veðurstofunnar var skjálftinn
4,8 stig og voru upptök hans
á um 8 kílómetra dýpi. Hann
fannst víða á suðvesturhorni
landsins en einnig á Suður og
Vesturlandi. Næstu klukku
stundir og daga á eftir urðu
smærri eftirskjálftar, með
al annars í Eldvörpum. Jarð
skjálftafræðingar búast við
eftir skjálfavirkni í kjölfarið og
útiloka ekki að dregið gæti til
frekari tíðinda og að eldsum
brot verði einhversstaðar á
Reykjaneshryggnum. -mm
Samningi við
ON sagt upp
AKRANES: Á fundi
skipulags og umhverfisráðs
Akraneskaupstaðar 9. maí
síðast liðinn var sagt upp þjón
ustusamningi við Orku nátt
úrunnar frá árinu 2014. Ráð
ið lagði til að eftirfarandi verði
boðið út: Útskipting lampa í
götulýsingu yfir í LED ljós,
viðhald og rekstur gatnalýs
ingar og orkukaup gatna
lýsingar og stofnana Akra
neskaupstaðar. Samið verður
við Liska ehf. um gerð útboðs
gagna og umsjón með útboð
inu á grunni samnings sem nú
er að andvirði um fimm millj
ónir króna. -vaks
Gólf í fjárhúsi
gaf sig
DALIR: Síðasta föstudag varð
það óhapp að gólf í fjárhúsi
gaf sig undan kindum. For
saga málsins er sú að bóndi
hafði tekið inn fé í fjárhús
ið vegna slæmrar veðurspár
en um 40 kindur voru í hólf
inu þegar gólfið hrundi. Níu
kindur drápust í fallinu en
aðrar sluppu. -vaks
Síðustu daga hefur verið hálf-
gerð hitabylgja víða á Vestur-
landi. Þá er ekki vitlaust að skella
sér í stuttbuxur og ermalausan
bol og hreinsa til í garðinum hjá
sér. Slá, rífa upp illgresið hvort
sem það er í beðunum eða á
milli hellnanna og jafnvel taka
það einnig þar sem það liggur
við gangstéttina í götunni þinni.
Eftir á má dást að öllu saman og
hreykja sér af góðu dagsverki
við nágrannann eða bara ein-
hvern allt annan. Sumarið er
tíminn.
Á fimmtudag er gert ráð fyr-
ir norðaustan 8-13 m/s og rign-
ingu norðvestan til, en annars
suðaustan 3-10 og víða skúr-
ir, en súld við austurströndina.
Hiti yfirleitt 7 til 14 stig, en mun
svalara á Vestfjörðum og Strönd-
um. Á föstudag má búast við
austlægri átt, 3-8 m/s, en norð-
austan 5-10 á Vestfjörðum. Rign-
ing með köflum sunnan til, en
stöku skúrir fyrir norðan. Hiti 6
til 15 stig, svalast á Vestfjörð-
um. Á laugardag er útlit fyr-
ir norðankalda og víða dálítilli
vætu en þurrt að mestu sunn-
an- og vestan lands. Hlýtt á
sunnanverðu landinu, en frem-
ur svalt fyrir norðan. Á sunnu-
dag má vænta norðlægrar áttar
og dálítilla skúra eða slydduéls
norðaustan til og svalt í veðri, en
annars yfirleitt bjartviðri og milt
að deginum.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað leynast mörg
sokkapör í skúffunni þinni?“ 33%
sögðu „10 til 20,“ 22% sögðu „20
til 30,“ 18% sögðu „0 til 10,“ 14%
sögðu „30 til 40,“ 7% sögðu „Yfir
50“ og 6% sögðu „Yfir 100.“
Í næstu viku er spurt:
Hvað borðar þú í morgunmat?
Bragi Þór Svavarsson er skóla-
meistari Menntaskóla Borgar-
fjarðar þar sem verið er að inn-
leiða spennandi nýjungar í
skólastarfi. Lesa má um það á
miðopnu í blaðinu í dag. Bragi
Þór er Vestlendingur vikunnar
að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Eins og kunnugt er var styttu af Guð
ríði Þorbjarnardóttur eftir Ásmund
Sveinsson stolið fyrir nokkru af stalli
sínum við Laugarbrekku á Helln
um á Snæfellsnesi. Tvær listakonur
frömdu verknaðinn og komu stytt
unni fyrir í nokkurs konar eldflaug
sem þær stilltu upp fyrir framan
Nýlistasafnið í Reykjavík.
Fljótlega eftir að upp komst um
stuldinn var styttunni komið í vörslu
Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar
stóð til að losa hana úr eldflauginni
og var málið lagt fyrir Héraðsdóm
Vesturlands vegna mögulegs höf
undarréttar listakvennanna á eigin
verki, þ.e.a.s. eldflauginni. Héraðs
dómur Vesturlands hafnaði beiðn
inni og taldi að ekki væri nauðsyn
legt að ná styttunni út til að upp
Guðríður á leið heim á Laugarbrekku
lýsa hver hefði stolið henni. Ekki
væru því fyrir hendi brýnir rann
sóknarhagsmunir sem réttlættu
að eyðileggja listaverk kvennanna
tveggja. Málið fór þá fyrir Landsrétt,
sem úrskurðaði að lögreglunni væri
þrátt fyrir allt heimilt að logskera gat
á eldflaugina, eiginlega til að leita að
þýfi, þ.e. styttunni, inni í henni.
Frelsuð úr tunnunni
Á mánudaginn var botninn því tek
inn úr eldflauginni með logskurði
til að ná styttunni út og síðan lok
að aftur. Þetta var gert af fagmanni
hjá vélsmiðjunni Steðja á Akranesi
að viðstöddum lögreglumönnum og
höfundum eldflaugarinnar. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar
og verndari styttunnar mætti á stað
inn til að sækja listaverk Ásmundar.
Hann gladdist mjög yfir endurheimt
styttunnar og sagði hana óskemmda,
en kannski yrði vandasamt að festa
hana aftur því festingar höfðu verið
skemmdar við verknaðinn.
Guðríður hin víðförla
Það var þáverandi forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson sem
afhjúpaði styttuna af Guðríði á
Laugarbrekku á Hellnum árið 2000.
Guðríður var fædd á Laugarbrekku
fyrir rúmlega þúsund árum og ólst
upp þar og á Arnarstapa uns hún
fluttist til Grænlands með foreldrum
sínum. Þar giftist hún Þorsteini, syni
Eiríks rauða. Á Vínlandi fæddi hún
þeim son, Snorra Þorfinnsson, sem
Ásmundur Sveinsson lætur standa á
öxl hennar í verki sínu. Frá Vínlandi
lá leið Guðríðar til Grænlands, síðar
Noregs og svo aftur til Íslands. Síð
ar ferðaðist hún svo suður til Róm
ar, en kom að lokum aftur til Íslands.
Síðast bjó hún í Glaumbæ í Skaga
firði.
Guðríður Þorbjarnardóttir var
líklega víðförlasta kona heims á sín
um tíma og enn lendir hún í ævin
týrum.
gj/ Ljósm. gj/vaks
Tóm tunna..
Eldflaugin með innihaldinu dýrmæta kemur í Steðja á Akranesi.
Helgi Pétur Ottesen rannsóknarlögreglumaður á Akranesi ræðir við
listakonurnar.
Styttan í prísundinni.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri ánægður með endurheimt styttunnar.