Skessuhorn - 18.05.2022, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Í birtu sem skugga
Sannarlega er viðburðarík helgi að baki. Ekki einvörðungu að landsmenn
gengu enn eina ferðina að kjörborðinu, heldur áttum við glæsilega fulltrúa
á evrópsku söngvakeppninni í Torinó á Ítalíu. Fjögur frækin systkin stóðu
sig þar með sóma og ekkert sem skyggði á það. Evrópa kaus svo til stuðn
ings úkraínsku þjóðinni og valdi framlag hinnar stríðshrjáðu þjóðar. Á frið
artímum hefði lagið vissulega ekki komist þetta langt, en þessi niðurstaða
var bara sæt. Það er allt í lagi að Evrópa sýni stuðning með þessum hætti
þegar svona stendur á. En hér eftir gef ég ekki mikið fyrir allt tal um að
keppnin sem slík sé ekki pólitísk. Það er hún vissulega og hefur líklega alltaf
verið. Slík pólitík er í lagi þegar mannúðarsjónarmið liggja að baki.
Eftir að talningunni í sönglagakeppninni var lokið tók alvaran við. Hverj
um hafði nú verið falið að deila út útsvarstekjunum okkar næstu fjögur
árin? Þegar líða tók á kvöldið og framan af nóttu átti eftir að koma í ljós að
víðast hvar hafði orðið græn fylgissveifla. Framsókn sópaði að sér atkvæð
um og er nú endanlega komin með útibú á mölinni. Óvíða var sveiflan
meira afgerandi en í Borgarbyggð þar sem einn flokkur getur nú sleppt því
að fara í einhvern meirihluta debatt. Í öðrum sveitarfélögum hér í kringum
okkur var niðurstaðan meira í takti við úrslitin fyrir fjórum árum. Sömu
meirihlutar en fylgið hnikaðist kannski smávegis til. Einhversstaðar varð
niðurstaðan rannsóknarefni og get ég nefnt tvennt af handahófi. Í fyrsta
lagi að fylgi sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ er komið niður í rétt rúman
helming, ekki lengur þessi afgerandi sextíu prósenta plús forusta. Hins
vegar var niðurstaðan í Grindavík eitthvað sem krefst sérstakrar skoðunar.
Þar vann stórsigur listi Miðflokksins, sem allsstaðar í öðrum hreppum var
rassskelltur svo að hátt kvað við í fjöllunum. Ég skora því á Kára og félaga
hans að rannsaka nú genamengi fólksins á þessum lista, nú eða kannski
pólitískra andstæðinga þeirra.
Svo var á öðrum stöðum sem persónukjör fór fram. Í aðdraganda kosn
inganna náðu Skorrdælingar að setja nýtt Íslandsmet í fólksfjölgun og sam
gleðst ég þeim innilega með árangursríka smölun og rækilega slegið met
í kosningaþátttöku. Sveitafólkið kann þetta. Í fjölmennari sveitarfélögum
þar sem persónukjör var einnig viðhaft gekk þetta dáldið öðruvísi fyrir sig.
Raunar sannaðist það sem ég hef margoft varað við á þessum vettvangi. Það
er að ef íbúafjöldi í sveitarfélagi er yfir 300 íbúar þá eiga menn eftir fremsta
megni að bjóða fram lista. Það útskýri ég með þeim einföldu rökum að ef
íbúafjöldi er kannski sex hundruð manns eða fleiri, er nánast útilokað að
allir þekki alla. Kannski einna helst að landpósturinn eða heimilislæknirinn
búi yfir þekkingu á eiginleikum flestra, en aldrei allra. Því eru tölfræðilega
litlar líkur á að hæfasta fólkið nái kjöri.
Í þessum kosningum voru þess dæmi að svokallaðir skuggalistar fóru af
stað, þar sem kosið var óhlutbundinni kosningu. Skuggalistar hafa venju
lega að geyma nöfn þeirra sem ákveðinn hópur velur að setja á blað og
laumar síðan eintökum af þeim listum í hendur eða fyrir sjónir annarra sem
tilheyra líkum hópi. Sá hópur getur til dæmis verið með svipaðar pólitískar
skoðanir, líkar áherslur eða bara haft hagsmuni af því að í hreppsnefnd velj
ist þetta fólk en ekki eitthvað annað. En, skuggalisar eru hvergi nærri nýir
undir sólinni. Persónukjör hefur verið viðhaft í áratugi og aldir og ekkert
sem bannar að fólk tali saman og ráðfæri sig við nágranna eða aðra sveit
unga áður en gengið er inn í kjörklefann. Gremja vegna þess að einhverjir
skuggalistar hafi farið á flug korteri fyrir kosningar er því ástæðulaus. Kerf
ið einfaldlega bannar það ekki og því ekkert við því að segja.
Allt er þetta ágætis fólk sem valist hefur til forystu á Vesturlandi. Ég óska
nýkjörnu sveitarstjórnarfólki innlega til hamingju með árangurinn og það
traust sem sveitungar þess leggja á herðar þeirra. Megi öllum ganga sem
allra, allra best að gæta hagsmuna íbúanna og gera Vesturland að enn betri
stað til að búa á.
Magnús Magnússon
Fráfarandi sveitarstjórn Borgar
byggðar samþykkti samhljóða á síð
asta fundi sínum að staðfesta fyrir sitt
leyti umsókn Apóteks Vesturlands
um nýtt lyfsöluleyfi í Borgarnesi.
Ólafur Adolfsson, lyfjafræðing
ur og eigandi Apóteks Vestur lands,
segir í samtali við Skessuhorn að
nú bíði hann einungis eftir form
legri afgreiðslu Lyfjastofnunar á
lyfsöluleyfi fyrir Borgarnes. Hann
kveðst búinn að taka á leigu húsrými
í Bónushúsinu við Digranesgötu 6,
rými sem er milli Geirabakarís og
verslunar Líflands. Hann kveðst
fá húsnæðið afhent í síðasta lagi 1.
ágúst næstkomandi. „Störf verða
auglýst til umsóknar strax og lyf
söluleyfið liggur fyrir. Þarna stefn
um við á að reka apótek sem verður
opið alla daga vikunnar,“ segir Ólaf
ur í samtali við Skessuhorn. Fyrir
rekur fyrirtæki hans apótek á Akra
nesi og í Snæfellsbæ.
Í afgreiðslu sveitarstjórnar seg
ir að ein lyfsala sé í Borgarbyggð
og stutt á milli hennar og staðsetn
ingar áætlaðrar lyfsölu. „Byggðar
ráð leggst ekki gegn veitingu leyfis
Lyfjastofnunar til umsækjanda um
nýtt lyfsöluleyfi,“ segir í fundargerð
sem sveitarstjórn staðfesti. Þarna er
vísað til þess að Lyfja rekur apó
tek í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Nú
mun því samkeppni aukast í lyfsölu
í Borgarnesi. mm
Jón Gunnarsson dómsmálaráð
herra hefur falið sjö lögreglu
embættum á landsbyggðinni að efla
starfslið sitt og auglýsa stöður lög
reglumanna. Lögregluumdæmin
sem um ræðir eru Vesturland, Vest
firðir, Norðurland vestra, Norður
land eystra, Austurland, Suðurland
og Suðurnes. Ekki fylgir tilkynn
ingu þar að lútandi hversu mik
ið stuðningur við embættin verð
ur aukinn. Þá segir: „Markmiðið er
að styrkja embætti lögreglu á lands
byggðinni þannig að hægt verði að
efla útkallsviðbragð lögreglu og
veita sambærilegri þjónustu um
allt land. Eru þessi áform hluti af
stærri endurskoðun á starfsemi lög
reglunnar í landinu þar sem stefnt
er að aukinni skilvirkni, betri nýt
ingu mannafla og þekkingar og að
lögregla sinni fyrst og fremst sínu
meginhlutverki,“ segir í tilkynn
ingu frá ráðuneytinu.
Í samtali við Morgunblaðið á
föstudaginn sagði Gunnar Örn
Jónsson, lögreglustjóri á Vestur
landi, að ekki liggi fyrir hvaða við
bót í fjármunum og mannskap
embættið fái. Tekur hann þó fram
að öll aukning verði kærkomin.
Segir hann að fyrir liggi að styrkja
þurfi hina almennu löggæslu á
Vesturlandi, svo sem á dreifbýlum
og fámennum svæðum, svo sem á
norðanverðu Snæfellsnesi og í Döl
um. mm
Undir lok apríl var undirritaður
samningur milli Akraneskaupstaðar
og Víðsjár verkfræðistofu um verk
fræðihönnun vegna endurbóta og
viðbygginga C álmu Grundaskóla á
Akranesi. Álman er um 2.350 fer
metrar og áætlaðar viðbyggingar
verða um 400 fermetrar. Anddyri
til norðurs og suðurs verða stækk
uð og nýju anddyri bætt við til vest
urs og byggt verður yfir þriðju hæð
hússins. Endurbætur miða að því að
aðlaga húsnæðið að þeim kröfum
sem gerðar eru til skólahúsnæðis í
dag. Jafnframt mun kennarastofa
skólans verða flutt í C álmu sem
skapar rými fyrir kennslustofur í E
álmu skólans þar sem kennarastof
ur eru í dag.
Fram kemur á heimasíðu Akra
neskaupstaðar að eitt tilboð hafi
borist í verkið frá Víðsjá verk
fræðistofu sem hljóðaði upp á rúm
lega 44 milljónir króna. Til stend
ur að bjóða verkframkvæmdina út
í lok þessa árs og að heildarverklok
verði haustið 2024.
vaks
Apótek Vesturlands opnað
síðsumars í Borgarnesi
Samningur við Víðsjá um verk-
fræðihönnun í Grundaskóla
Starfsfólk frá Akraneskaupstað og Víðsjá eftir undirskriftina. Ljósm. akranes.is
Ráðherra hyggst efla lögreglu-
embættin á landsbyggðinni