Skessuhorn - 18.05.2022, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 5
�
�
�
�
����������������������������������������������������������������������������
�
�
���������������������������������������������������������������������� ������������������������
�����������������������������������������������������������
��������������������������� ����������������������������������������������������
�������������–��������������������������������
�
Háskólalest Háskóla Íslands er
nú á ferð um landið og kemur
fram á nokkrum stöðum. Í boði
er fjölbreytt dagskrá fyrir fólk
á öllum aldri. Haldnar eru m.a.
kennarasmiðjur og námskeið fyr
ir grunnskólanemendur. Hér á
Vestur landi mun lestin að þessu
sinni verða í Ólafsvík dagana 26.
28. maí.
Megináherslan í starfi Háskóla
lestarinnar er lögð á að kynna vís
indi á lifandi og fjölbreyttan hátt
fyrir ungu fólki, styðja við starf
grunnskólanna og efla tengsl við
landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn
lestarinnar eru kennarar og nem
endur við Háskóla Íslands, sem
flestir hverjir eru líka leiðbeinend
ur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla
unga fólksins.
mm
Dagana 4. og 5. júní næstkom
andi verða Varmalandsdagar haldn
ir í annað sinn á Varmalandi í Staf
holtstungum. Hátíðin á rætur sínar
að rekja til Hollvinafélags Varma
lands sem stofnað var árið 2020.
Vilhjálmur Hjörleifsson er einn
þeirra sem stendur fyrir hátíðinni
og segir hann að í upphafi hafi hug
myndin verið að halda hátíð til að
kynna Varmaland betur og fá gesti
til að njóta þess sem staðurinn hef
ur upp á að bjóða. Litið var til þeirr
ar sérstöðu sem staðurinn hefur og
þar skipa skólarnir tveir, starfandi
grunnskóli og gamli hússtjórnar
skólinn sem í dag er orðið hót
el, stóran sess. Þó að hússtjórnar
skólinn sé ekki enn starfræktur hef
ur saga hans haft mikil áhrif á stað
inn sem og þá sem þar numu.
Undirtitill hátíðarinnar er list og
lyst, með vísan í þá miklu listsköp
un er fram fór í skólunum báðum
um árabil. Þar er átt við handgerða
list og jafnframt matarlyst, sem ekki
síst var hluti af námi í Hússtjórnar
skólanum. Vígþór Jörundsson fyrr
um skólastjóri barnaskólans (1975
1990) er mjög listhneigður og setti
t.d. upp nokkurs konar listasmiðju
þar sem nemendur fengu að kynn
ast list og handverki af ýmsu tagi.
Allt frá járni og tré til málverka og
annarra listaverka. Telur Vilhjálm
ur að mikið af iðnaðarmönnum,
lista og handverksfólki, hafi feng
ið mikilvæga hvatningu í þessari
smiðju. Hússtjórnarskólinn á þar
stóran þátt með allri þeirri góðu
handverks og listkennslu sem þar
var, að ógleymdri matarlystinni.
„Lagt var upp með að Varma
landsdagar / List og Lyst yrði
ekki enn ein bæjarhátíðin með
hoppukastala og kandíflossi, þó
það sé ekki neitt slæmt,“ segir Vil
hjálmur og hlær, heldur segir hann
að staðurinn og hátíðin hafi sér
stöðu sem haldið er á lofti með öðr
um hætti. Þessi ákvörðun stjórnar
Hollvinafélags Varmalands féll líka
vel í kramið hjá Uppbyggingarsjóði
Vesturlands, sem styrkir verkefnið.
Listamenn af ýmsu tagi verða
með sýningar á hátíðinni. Þar má
t.d. nefna Louise Harris sem er
bresk listakona en búsett hér á
landi. Hún sýnir verk sín á Hótel
Varmalandi, bæði stórar vatnslita
myndir og verk úr þæfðri ull, þar
sem áhersla er á samband okkar
við náttúruna. Þá verður listakon
an Anna Björk Bjarnadóttir, ætt
uð frá Fljótstungu, með listsýn
ingu í félagsheimilinu Þinghamri.
Anna Björk málar vatnslitamynd
ir með sterkri tengingu við hér
aðið en þetta er önnur einkasýn
ing hennar. Fjöldi annarra lista
manna bæði lærðra og leikinna
verða á Varmalandi þessa helgi.
Matarlystinni verða gerð góð skil
með kynningum og framboði á
allskyns mat. Tónlist og afþreying
af ýmsu tagi verður í boði úti og
inni ásamt fleiru spennandi, að
sögn Vilhjálms. „Dagskráin er að
verða fullmótuð og verður kynnt
fljótlega. Það má segja að það verði
forvitnilegt að skreppa í heimsókn
í Varmaland um Hvítasunnuna,“
segir Vilhjálmur.
sþ
Varmaland verður undirlagt af list og lyst um hvítasunnuhelgina.
Varmalandsdagar
haldnir í annað sinn
um hvítasunnuna
Grillað verður í skóginum.
Háskólalestin er væntanleg
til Ólafsvíkur