Skessuhorn - 18.05.2022, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20226
Dauður lundi í
Krókalóni
AKRANES: Vegfarandi
fann dauðan lunda í Króka
lónsfjöru við Vesturgötu í
vikunni og hafði samband
við lögreglu. Lögreglan
kom á staðinn og sótti
fuglinn en ákveðið verklag
er á þessu vegna mögulegr
ar fuglaflensu. Lögreglan
vill ítreka fyrir fólki að
snerta alls ekki dauða fugla
ef þeir verða á þeirra vegi
en láta hana vita um mál
ið svo hægt sé að senda þá í
rannsókn til Matvælastofn
unar. -vaks
Styrkir fyrir
varmadælur
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar hef
ur, að tillögu mannvirkja
og framkvæmdanefnd
ar, samþykkt reglur um
styrki vegna varmadælna
í Hvalfjarðarsveit. Í kjöl
far samnings sveitarfé
lagsins við Hagvarma ehf.
um mat á hagkvæmni þess
að setja upp varmadælu
kerfi til hitunar á rafkyntu
íbúðarhúsnæði (með lög
heimilisskráningu), þar
sem vilji væri til uppsetn
ingar varmadælu, hafa
ofangreindar styrkregl
ur nú verið samþykkt
ar. Vinna Hagvarma er nú
langt komin og hefur þátt
taka í verkefninu verið góð
en rúm 63% þáðu boð um
þátttöku. -vaks
Skagamenn
skora mörkin á
Spotify
AKRANES: Geisladisk
urinn Skagamenn skora
mörkin var gefinn út árið
2007 til minningar um
Sturlaug H. Böðvarsson
en 90 ár voru þá liðin frá
fæðingu hans. Diskurinn
inniheldur alls konar tón
list tengd Akranesi og var
framleiddur í tvö þúsund
eintökum til styrktar ÍA.
Á disknum má finna lög
með flytjendum eins og
Tíbrá, Dúmbó og Steina,
Orra Harðarsyni, Tic Tac
og mörgum fleirum. Um
helgina kom hann inn á
tónlistarveituna Spotify
og því geta Skagamenn og
aðrir sett hann núna í botn
í græjunum. -vaks
Eldisafurðir
15% útflutnings-
verðmætis
LANDIÐ: Á fyrstu fjórum
mánuðum ársins hafa verið
fluttar út fiskeldisafurðir fyr
ir 17,2 milljarða króna. Það
er veruleg aukning frá sama
tímabili í fyrra, eða sem nem
ur rúmum 32% í krónum talið.
“Þar sem gengi krónunnar var
að jafnaði tæplega 5% sterkara
á fyrstu fjórum mánuðum
ársins en á sama tímabili í fyrra
er aukningin nokkuð meiri í
erlendri mynt eða sem nem
ur 38%. Útflutningsverðmæti
eldis afurða hefur aldrei áður
verið meira á fyrsta þriðjungi
ársins. Verðmætin eru tæplega
15% af útflutningsverðmæti
sjávarafurða á tímabilinu og það
hlutfall hefur sömuleiðis aldrei
áður verið hærra,” segir í frétt á
Radarnum, mælaborði sjávarút
vegsins. -mm
Ók ölvaður á
ofsahraða
HVALFJ:SV: Aðfararnótt
laugardagsins mældist öku
maður í hraðamyndavél við
Melahverfi á Vesturlandsvegi
á 162 kílómetra hraða. Stuttu
síðar hafði bifreiðin hafn
að utan vegar við afleggjarann
inn í Hvalfjörð en löng hemla
för voru á vettvangi. Í mynda
vélinni sást að ökumaður hafði
keyrt á miðjum veginum áður
en hann beygði og þykir mik
il mildi að ekki hafi farið verr.
Ökumaðurinn var síðan hand
tekinn og viðurkenndi fyrir
lögreglu að vera undir áhrifum
áfengis en hann var síðan fluttur
á bráðamóttökuna í Fossvogi
til nánari skoðunar. Bíllinn var
óökuhæfur og þá á ökumaður
inn von á himinhárri sekt fyrir
athæfið. -vaks
Íbúum í Dalabyggð bauðst á laugar
daginn að taka þátt í könnun sam
hliða kosningum í sveitarstjórn um
vænlega sameiningarkosti sveitar
félagsins. Á vef Dalabyggðar kem
ur fram að 304 hafi tekið þátt í
könnuninni. 240 svöruðu játandi
spurningunni hvort Dalabyggð
ætti að hefja sameiningarviðræð
ur. „Nei“ sögðu 22, en 26 merktu
við að þeir hefðu ekki skoðun á því.
Fimmtán seðlar voru auðir og einn
ógildur.
Svör við spurningunni um hvaða
sameiningarvalkostur væri æskileg
astur voru eftirfarandi:
• Húnaþing vestra 71
• Sameinað sveitarfélag
Helgafellssveitar og Stykkis
hólms 88
• Annað 94
Af þeim sem merktu við „annað“
var skiptingin þannig:
• 25 Reykhólahreppur og/eða
sveitarfélög á Ströndum.
• 23 Húnaþing vestra ásamt
Reykhólahreppi og/eða
sveitarfélögum á Ströndum.
• 19 Borgarbyggð.
• 12 Stykkishólmur og
Helgafellssveit ásamt Reyk
hólahrepp og/eða sveitarfé
lögum á Snæfellsnesi.
• Annað (færri en fimm á hvert)
voru 15.
• Auðir seðlar voru 50 og einn
ógildur.
mm/ Ljósm. sm.
Seglskútan Ópal frá Húsavík hafði
viðkomu í Grundarfjarðarhöfn í síð
ustu viku. Þar lá hún við bryggju á
meðan norðan kaldi lá yfir landinu.
Þegar lægði voru landfestar leystar og
haldið áfram. Skipið er frá Húsavík
og hefur verið gert út þar til hvala
skoðunar og í aðrar skoðunarferðir á
Skjálfandaflóa. tfk
Dalamenn kusu um sameiningar-
kosti á laugardaginn
Ópal í Grundarfjarðarhöfn