Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 7
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Sunnudagur 22. maí
AKRANESKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11
Bænastöðvar
Miðvikudagur 25. maí
Bænastund kl. 12:15
Uppstigningardagur 26. maí
Hallgrímskirkja Saurbæ
Guðsþjónusta kl. 11.
Hljómur, kór FEBAN, leiðir söng.
Fermingarguðsþjónusta kl. 14
Fermd verður Íris Björg Sigurðardóttir
Vorferð eldri borgara starfsins í
Hvalfjörð, brottför frá Vinaminni
kl. 10, farið í guðsþjónustu í Saurbæ,
snædd súpa á Hótel Glym og endað á
Hernámssetrinu. Skráning og nánari
upplýsingar í síma 433 1500 eða á
olof@akraneskirkja.is. Verð kr. 3000.
Aðalsafnaðarfundir vorið 2022
Innra-Hólmskirkja – 30. maí kl. 17.30
Hallgrímskirkja í Saurbæ 1. júní kl. 20
Garðasel sýnir
Nú stendur yfir sýning barna af leikskólanum Garðasel á Bókasafn-
inu. Sýningin er opin alla daga á opnunartíma safnsins, frá 10 – 18,
og stendur yfir til 27. maí. Endilega komið og skoðið þessa flottu
sýningu hjá ungum og upprennandi listamönnum.
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200
bokasafnakraness.is • bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Á fimmta tímanum á sunnudaginn
var Slökkvilið Snæfellsbæjar kall
að út vegna elds í báti sem bund
inn var við bryggju í Ólafsvík. Mik
inn reyk lagði þá frá bátnum Rán
SH. Magnús Emanúelsson eigandi
Ránarinnar var ásamt áhöfn sinni
hættur grásleppuveiðum og var fyr
irhugað að fara þrjá línuróðra áður
en báturinn færi í slipp.
Magnús segir mestu mildi að
ekki fór verr. Sonur hans Emanú
el var með nýlega keyptan Sómabát
sem lá utan á Rán og var Emanúel
á leið um borð í sinn bát og kíkti þá
inn í stýrishús Ránarinnar. Var þá
allt í himna lagi en þegar Emanú
el hafði lokið erindi um borð í sín
um báti heyrði hann í eldvarnatæki
Ránar og sá þá að allt var fullt af
reyk og tók slökkvitækið og bunaði
úr því inn í stýrishúsið. „Það mun
aði því ekki miklu að báðir bátarn
ir yrðu alelda,“ sagði Magnús, og
bætti við að sennilega hafi kviknað
í AIS tækinu um borð. Töluverðar
skemmdir urðu á tækjum í stýris
húsi bátsins.
af
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam
þykkti á fundi sínum 12. maí síðast
liðinn tillögu til auglýsingar vegna
deiliskipulags við Dílatanga og
nærsvæði í Borgarnesi. Tillagan er
unnin af Einari Ingimarssyni arki
tekt og nær yfir göturnar Dílahæð,
Þórðargötu, Kveldúlfsgötu, Ána
hlíð og hluta Borgarbrautar. Svæð
ið er að mestu íbúðahverfi þar sem
eru fyrir 134 íbúðir.
Við Kveldúlfsgötu er gert ráð
fyrir nýju fjölbýlishúsi, þar sem nú
er opið svæði við enda götunnar
uppi við Þórðargötu. Fallið verð
ur hins vegar frá skipulagi sem gert
var árið 2007 um fjölbýlishús að
Kveldúlfsgötu 29. Þar verður þess
í stað áfram opið svæði að sjávar
máli, með útsýni að kirkjustaðn
um Borg á Mýrum og um það mun
liggja hluti samgöngustígs með
fram strönd. Við Þórðargötu eru
tvær nýjar lóðir teiknaðar, við enda
götunnar Borgarbrautarmegin.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að
lóðirnar Borgarbraut 61 og Kveld
úlfsgata 2B verði sameinaðar.
Reiknað er með að núverandi hús á
Kveldúlfsgötu 2B (fyrrum kartöflu
geymsla og aðstaða fyrir félagsstarf)
verði fjarlægt og í stað þess byggt
fjölbýlishús, sem tengist húsinu á
Borgarbraut 61, sem heimilt verð
ur að stækka. Lóðin Borgarbraut
63 verður stækkuð, núverandi hús
fjarlægt og í stað þess gert ráð fyrir
fjölbýlishúsi.
gj
Þyrla Landhelgisgæslunnar var síð
degis á laugardaginn kölluð út til að
sækja einstakling sem slasast hafði
á mótorhjóli á norðanverðu Snæ
fellsnesi. Það var lögreglan á Vest
urlandi sem óskaði eftir aðkomu
Gæslunnar að flutningi manns
ins. Þyrlan lenti á bryggjunni í
Grundarfirði og tók á loft þaðan
á sjöunda tímanum um kvöldið og
flaug með hinn slasaða til Reykja
víkur. tfk
Leikhópur nemenda Mennta
skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi,
auk hóps nemenda úr tíunda bekk
Grunnskóla Borgarness, frumsýndi
á þriðjudaginn í síðustu viku leik
ritið Mean girls í Hjálmakletti, sal
skólans. Leikstjórar voru þau Agn
ar Jón Egilsson og Ylfa Ösp Áskels
dóttir. Var önnur sýning á verk
inu á miðvikudag og lokasýning
á föstudaginn. Á annað hund
rað áhorfenda nutu sýningarinnar
sem blaðamaður Skessuhorns sá og
uppskáru leikendur mikið lófaklapp
fyrir frammistöðuna.
gj
Efir þetta útkall gengu slökkviliðsmenn til baka á slökkvistöðina. Grínuðust með
að verð á olíu væri svo hátt að þeir væru að spara fyrir Snæfellbæ.
Eldur í báti við bryggju í Ólafsvík
Slökkvilið Snæfellsbæjar á vettvangi.
Skipuleggja þéttingu byggðar
í Borgarnesi
Borgarnes, en á myndinni má sjá hluta þess svæðis sem um ræðir.
Sótti slasaðan mótorhjólamann
Sýndu Mean girls í Menntaskóla Borgarfjarðar