Skessuhorn - 18.05.2022, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20228
Fór holu í höggi
AKRANES: Golfsumarið
fer vel af stað hjá Sveinbirni
Brandssyni, félagsmanni í
golfklúbbnum Leyni. Hann
gerði sér lítið fyrir síðast
liðinn laugardag og fór
holu í höggi þegar hann sló
draumahöggið á þriðju braut
með áttu járni af gulum teig
á Garðavelli. -vaks
Nýr styrktar-
samningur
AKRANES: Síðasta mánu
dag undirrituðu Rakel
Óskars dóttir fyrir hönd
Golfklúbbsins Leynis og
Hannes Marinó Ellertsson
fyrir hönd Landsbankans
undir nýjan styrktarsamn
ing. Landsbankinn hefur
um árabil verið einn af öfl
ugustu styrktaraðilum Golf
klúbbsins Leynis og tekið
virkan þátt í mótahaldi sem
og stutt vel við uppbyggingu
á barna og unglingastarfi í
klúbbnum. -vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
7. – 13. maí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 14 bátar.
Heildarlöndun: 14.075 kg.
Mestur afli: MarAK: 3.477
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi: 45 bátar.
Heildarlöndun: 104.606 kg
Mestur afli: Bárður SH:
38.401 kg í sex róðrum.
Grundarfjörður: 26 bátar.
Heildarlöndun: 799.212 kg.
Mestur afli: Málmey SK:
209.850 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 47 bátar.
Heildarlöndun: 244.301 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarna
son SH: 33.227 kg í tveimur
löndunum.
Rif: 44 bátar.
Heildarlöndun: 540.875 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
83.406 kg í einum róðri.
Stykkishólmur: 13 bátar.
Heildarlöndun: 19.422 kg.
Mestur afli: Signý HU:
7.383 kg í þremur löndun
um.
1. Málmey SK – GRU:
209.850 kg. 10. maí.
2. Drangey SK – GRU:
147.802 kg. 9. maí.
3. Jökull ÞH – GRU:
105.017 kg. 10. maí.
4. Tjaldur SH – RIF:
83.406 kg. 9. maí.
5. Rifsnes SH – RIF: 83.004
kg. 9. maí.
-sþ
Eins og greint var frá í frétt á vef
Skessuhorns í síðustu viku hefur
Haukur Ragnarsson veitingamaður
ákveðið að hætta rekstri Baulunn
ar í Borgarfirði um næstu mánaða
mót. Esjuskálinn á Kjalarnesi hefur
nú tilkynnt á Facebook síðu sinni
að Esjuskálinn verði opnaður innan
tíðar í húsnæði Baulunnar.
Skeljungur keypti Bauluna í sept
ember 2020 og lokaði staðnum í
janúar 2021 í nokkra mánuði, gerði
húsnæðið upp og leigði Hauki sem
var með reksturinn undir nafni
Baulu veitinga ehf í eitt ár. Það er
Orkan dótturfélag Skeljungs sem á
staðinn núna og eldsneytið er selt
undir nafni Orkunnar, sem og er
með rafhleðslustöðvar fyrir bíla.
mm/gj
Í ársbyrjun var ákveðið að rýna og
endurskoða starfsemi Safnahúss
Borgarfjarðar. Sveitarfélagið gerði
samning við fyrirtækið Strateg
íu, sem fékk það verkefni að móta
tillögur að framtíðarfyrirkomu
lagi fyrir Safnahús Borgarfjarðar til
næstu ára og nauðsynlegar aðgerð
ir til að ná fram meginmarkmiðum.
Skýrslan er nú komin út samkvæmt
frétt á þjónustusíðu Borgarbyggðar.
Fyrsti áfangi verkefnisins var
greiningarvinna þar sem Safnhús
Borgarfjarðar var greint með því
að rýna fyrirliggjandi gögn, þ.e.
stefnur, greiningar og skýrslur.
Framkvæmd var SVÓTgreining
með starfsfólki sveitarfélagsins og
byggðarráði og íbúakönnun lögð
fyrir á heimasíðu sveitarfélagsins,
en um 380 svör bárust. Skýrsluna
má lesa í heild sinni á borgarbyggd.
is en í megindráttum er lagt til að
breyta hlutverki Safnahúss Borgar
fjarðar. Tillögur að aðgerðum voru
meðal annars að móta sýn, áhersl
ur og aðgerðir fyrir hvert safn, að
innleiða stafræna tækni héraðs
skjalasafns og auka eftirlit með
skilaskyldum aðilum, nútímavæð
ing bókasafnsins, endurskoðun nýt
ingar núverandi húsnæðis Safna
húss við Bjarnarbraut og varð
veislurýmis og kanna grundvöll
fyrir því að náttúrugripasafn verði
hluti af Landbúnaðarsafni Íslands á
Hvanneyri.
Fyrsta aðgerðin, sem búið er að
samþykkja í byggðarráði, er að aug
lýsa stöðu forstöðumanns menn
ingarmála. Byggðarráð bindir von
ir við að þær breytingar sem gerð
ar verða á forstöðu menningarmála
með þessum hætti muni hafa jákvæð
áhrif á menningarlega upplifun í
sveitarfélaginu í samræmi við efni
skýrslu um framtíðarfyrirkomulag
Safnahúss Borgarfjarðar.
vaks
Ákveðið hefur verið að ríkið styðji
fjárhagslega við þau sveitarfélög
sem hyggjast í sumar auka við frí
stundastarf fyrir börn og ung
linga í viðkvæmri stöðu vegna
áhrifa heimsfaraldurs. „Ljóst er
að heimsfaraldur Covid19 hef
ur haft mikil áhrif á líf flestra
barna og fjölskyldna hér á landi en
ákveðnir hópar barna hafa þó orðið
fyrir meiri áhrifum en aðrir. Það
er mikilvægur hluti viðspyrnu eft
ir samkomutakmarkanir að tryggja
aukinn stuðning við börn í við
kvæmri stöðu og bregðast þannig
sérstaklega við aðstæðum þeirra,“
segir í tilkynningu frá Ásmundi
Einari Daðasyni mennta og barna
málaráðherra. Um er að ræða fram
hald fyrri aðgerða þegar sambæri
legur styrkur var veittur sveitarfé
lögum sumrin 2020 og 2021.
Heildarfjárhæð verkefnisins í
sumar nemur 130 milljónum króna
og hefur þeim peningum verið
skipt milli sveitarfélaga á grund
velli fyrirliggjandi upplýsinga frá
Hagstofu Íslands um fjölda barna
á aldrinum 12 til 16 ára í hverju
sveitarfélagi í janúar 2022.
Líkt og árin 2020 og 2021 eru
sveitarfélög hvött til að horfa sér
staklega til viðbótarverkefna sem
miða að því að virkja hóp 12 til
16 ára barna með fjölbreyttum
úrræðum og áhersla lögð á að ná
til þeirra hópa sem hvað síst sækja
hefðbundið frístundastarf. Líkur
eru á að aldurshópurinn 1216 ára
sé í hvað minnstri virkni yfir sum
artímann og í aukinni áhættu hvað
varðar til dæmis áhættuhegðun og
kvíða.
mm
Esjuskálinn opnar þar
sem Baulan var
Skýrsla um framtíðarfyrirkomulag
Safnahúss Borgarfjarðar
Safnahús Borgarfjarðar og lögreglustöðin. Ljósm. mm.
Stuðningur til að auka
frístundastarf barna í sumar