Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 9
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með
auglýstar tillögur að nýju deiliskipulagi og að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2022 að auglýsa eftirfarandi
skipulagsáætlanir í Borgarbyggð.
Deiliskipulag – Dílatangi í Borgarnesi
Deiliskipulagið tekur til þegar byggðs íbúðarsvæðis í Borgarnesi, alls 15,9ha að stærð.
Innan þess eru 134 íbúðir, hjúkrunarheimilið Brákarhlíð, heilsugæsla og íbúðarhús fyrir
aldraða auk kirkjugarðs Borgarness. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010-2022.
Breyting á deiliskipulagi – Bjargsland II, svæði 1, Borgarnesi
Breytingin tekur til lóða við Fífuklett og Birkiklett þar sem gert er ráð fyrir par- og fjöl-
býlishúsum í stað eingöngu rað- og einbýlishúsa. Gatan Fífuklettur leggst af en í stað-
inn er gert ráð fyrir tveimur nýjum götum tengdum við fyrirhugaða safngötu norðan og
vestan við svæðið. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Breyting á deiliskipulagi – Íbúðabyggð að Varmalandi, Hótel Varmaland
Breytingin tekur til lóðar Hótels Varmalands þar sem gert er ráð fyrir nýjum byggingar-
reit innan lóðamarka fyrir þjónustubyggingu á 1. hæð, bjórböð. Hámarks byggingar-
magn nýrrar byggingar verður 250fm, hámarks vegg- og mænishæð 4m. Aðrir skil-
málar haldast óbreyttir. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Ofangreindar skipulagsáætlanir eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.
borgarbyggd.is frá 20. maí til og með 2. júlí 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á
ofangreindum áætlunum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemd við auglýstar skipulagsáætlanir og er frestur til að skila inn athugasemd-
um til 2. júlí 2022. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarna-
braut 8, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.
is eða thjonustuver@borgarbyggd.is.
Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulags-
lýsing að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Landbúnaðarkafli – skilmálabreytingar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2022 að auglýsa lýsingu að
breytingu á skilmálum í landbúnaðarkafla Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022.
Fyrirhugað er að einfalda nokkur ákvæði í landbúnaðarkafla aðalskipulagsins sem hafa
reynst frekar íþyngjandi. Einnig að setja fram skýrari stefnu um uppbyggingarheimildir á
landbúnaðar-svæðum til þess að tryggja hagkvæma og skynsama uppbyggingu innan
landbúnaðarsvæða þannig að núverandi innviðir séu nýttir betur, ný mannvirki verði
ekki úr alfaraleið og til að tryggja að gott ræktarland fari ekki til spillis.
Ofangreind lýsing er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is
frá 20. maí til og með 31. maí 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á ofangreindri
skipulagslýsingu þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma
með ábendingar við auglýsta skipulagslýsingu og er frestur til að skila inn ábendingum
til 31. maí 2022. Ábendingum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarnabraut
8, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eða
thjonustuver@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð, 20. maí 2022
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.
SKIPULAGAUGLÝSING
Bæjar og héraðshátíðir verða
haldnar nokkuð víða á Vestur
landi í sumar. Þó er það þannig
að jafnvel þótt komnar séu dag
setningar á þær flestar þá er dag
skráin víðast hvar óklár enda enn
nægur tími til undirbúnings.
Skessuhorn tók saman yfirlit og
dagsetningar yfir þær hátíðir
sem útlit er fyrir að verði haldn
ar á Vesturlandi í sumar.
Varmalandsdagar
4.-5. júní
Varmalandsdagar í Borgarfirði,
Lyst og list, verða haldnir dag
ana 4. og 5. júní 2022. Þetta árið
hittir þetta á Hvítasunnuhelgina.
Tjaldstæðið og sundlaugin
verða opin. Hótelið verður með
spennandi tilboð. Dagskráin er
sömuleiðis spennandi og verður
birt fljótlega, segir í tilkynningu.
Hvalfjarðardagar -
24. til 26. júní
Hvalfjarðardagar hafa fyrir löngu
fest sig í sessi og í ár verður dag
skráin fjölbreytt og skemmtileg.
Ýmislegt verður í boði fyrir alla
aldurshópa og fer dagskráin fer
fram víða um sveitarfélagið.
Brákarhátíð -
24. til 26. júní
Brákarhátíð er fjölskylduhátíð
í Borgarnesi til heiðurs Brák,
kvenhetjunni miklu frá víkinga
tímum. Brákarhátíð er sumarhá
tíð Borgarness og verður nú
sömu helgi og Landsmót UMFÍ
50+ sem verður haldið í Borg
arnesi í sumar.
Írskir dagar -
30. júní til 3. júlí
Í byrjun júlí ár hvert halda Skaga
menn bæjarhátíð til að minn
ast arfleifðar sinnar og gera sér
glaðan dag. Þetta er fjölskyldu
hátíð með fjölbreyttri skemmt
un; íþróttum, markaði, götu
grilli, dorgveiði, sandkastala
keppni og keppni um rauðhærð
asta Íslendinginn.
Heim í Búðardal -
1. júlí til 3. júlí
Bæjarhátíðin „Heim í Búðardal“
er haldin í júlíbyrjun annað hvort
ár, á sléttri tölu. Hátíðin er vel
sótt af heimamönnum og gestum
þeirra, þar á meðal brottflutt
um Dalamönnum. Vestfjarðavík
ingurinn hefur verið fastur lið
ur í hátíðinni undanfarin ár og
er ekki undantekning árið 2022.
Sóli Hólm verður með sýn
inguna sína „Loksins eftirherm
ur“ á föstudagskvöldinu og svo
verður stórviðburður á laugar
dagskvöldinu með Stjórninni og
sérstökum gesti: Bríet. Heima
menn, félagasamtök og fyrir
tæki taka einnig þátt í hátíðinni
með viðburðum, opnunum, til
boðum og fleiru. Dagskráin sem
sagt uppfull af skemmtun fyr
ir alla aldurshópa og sumargleði
við völd.
Sandara- og Rifsara-
gleði - 8. til 10. júlí
Sandara og Rifsaragleði er
haldin annað hvert ár á móti
Ólafsvíkurvöku. Mikið er lagt
upp úr fjölbreyttri og vandaðri
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Á góðri stund í
Grundarfirði -
21. til 23. júlí
Hátíðin er vinaleg fjölskyldu
hátíð sem hugsuð er fyrir Grund
firðinga, innfædda, aðflutta og
brottflutta, vini þeirra og vanda
menn og aðra gesti sem eiga leið
í bæjarfélagið.
Hinsegin Vesturland -
22. til 24. júlí
Hinseginhátíð Vesturlands verð
ur haldin í Snæfellsbæ að þessu
sinni og er hápunktur hátíðar
innar Gleðigangan sem fram
fer á laugardeginum. Í tilefni
hátíðarinnar verður allt Vestur
land skreytt í regnbogalitunum
og bjóða aðstandendur fólki að
eignast regnbogafána og styrkja
gott málefni í leiðinni.
Reykholtshátíð -
22. til 24. júlí
Reykholtshátíð er ein elsta og
virtasta tónlistarhátíð lands
ins og er haldin í júlí, ár hvert,
í Reykholti í Borgarfirði. Reyk
holtshátíð var stofnuð árið 1997
og telst því til elstu tónlist
arhátíða landsins. Hátíðin hef
ur ávallt verið haldin í kring
um vígsluafmæli Reykholtskirkju
sem ber upp á síðasta sunnudag
júlímánaðar.
Reykhóladagar -
12. til 14. ágúst
Reykhóladagar verða haldnir um
miðjan ágúst í sumar og í ár er
þemað menning og styrkleikar
Reykhólahrepps. Erlendir gestir
hátíðarinnar verða að þessu sinni
víóluleikarinn Rita Porfiris og
fiðluleikarinn Anton Miller en
saman skipa þau MillerPorfir
is Duo.
Að lokum má nefna Hvann
eyrardaga sem verða haldnir í ár.
Ekki er komin dagsetning á þá
en þeir verða ekki í sömu mynd
og áður og með smærra sniði.
Danskir dagar verða ekki í ár en
þeir eru haldnir annað hvort ár.
vaks
Dagsetning komin á
flestar bæjar- og
héraðshátíðir á
Vesturlandi í sumar
Frá hátíðinni Á góðri stund í Grundarfirði í fyrra. Ljósm. úr safni/tfk.