Skessuhorn - 18.05.2022, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202210
Eins og kom fram í stuttri frétt
í Skessuhorni í síðustu viku eru
jarðvegsskipti hafin vegna stækk
unar Hótels Búða á Snæfellsnesi.
Ritstjórn grennslaðist nánar fyrir
um verkið. Ætlunin er að ljúka við
sökkla og kjallara viðbyggingar nú
fyrri hlutann í júní. Eftir það verð
ur tekið hlé á framkvæmdum enda
hótelið fullbókað í allt sumar. Síð
an verður haldið áfram með verk
ið í haust og vetur. „Við ætlum að
vera búin með stækkun fyrir næsta
vor. Munum þurfa að loka hótelinu
um tíma næsta vetur meðan gamla
og nýja byggingin verða tengd
ar saman,“ segir Örn Andrés son í
samtali við Skessuhorn. Hönnuð
ur að stækkun hótelsins er Kári
Eiríksson arkitekt en hann teikn
aði einnig núverandi hótel.
Samið hefur verið við Smell
inn/BM Vallá um uppsteypu
hússins, gluggaísetningu og frá
gang en byggingin verður reist
úr forsteyptum einingum. Allir
innveggir verða einnig forsteypt
ir. Núverandi hótel var reist úr
einingum frá Smellinn á sínum
tíma. Stafnafell sér um jarðvinnu
og mun einnig útvega þá steypu
sem til þarf. Að sögn Arnar Andr
éssonar verður samið við aðra
undirverktaka sem flestir koma
úr héraði. „Þessi leið við stækkun
hótels ins er farin til að valda sem
minnstri röskun gagnvart gest
um og lágmarka þá vinnu sem þarf
að vinna á staðnum. Ásamt fjölg
un herbergja mun veitingastaður
inn verða stækkaður um helming,
barsvæði og fundaraðstaða mun
stækka og rýmum fjölga,“ segir
Örn.
Þegar þessum framkvæmdum
lýkur mun hótelið tvöfaldast að
stærð og verða tæpir þrjú þúsund
fermetrar. Herbergjafjöldi fer úr
28 í 52. Undir nýja hlutanum verð
ur kjallari og þar verður pláss fyr
ir eldhús, geymslu og kæla, þvotta
hús og fleira.
Aðspurður um stöðuna
framundan segir Örn að nánast
fullbókuð sé á hótelið út septem
ber. „Við erum þegar byrjuð að
bóka inn á sumarið 2023 og reikn
um með að geta farið að taka á
móti gestum í eldri hluta hótels
ins snemma á næsta ári. Ennþá er
óljóst hvaða tíma og hversu lengi
við þurfum að loka hótelinu næsta
vetur,“ segir Örn.
Sérstaða Hótels Búða er einstök
staðsetning og umhverfið hvert
sem litið er; sagan, andrúmsloft
ið og áhersla á gott eldhús. Einnig
hefur hótelið verið mjög vin
sælt fyrir brúðkaup og þá einkum
erlendra gesta.
Meðfylgjandi eru teikningar
sem sýna Hótel Búðir eftir fyrir
hugaðar breytingarnar.
mm
Síðastliðinn laugardag var afhjúp
aður minnisvarði um Magn
ús Jónsson bónda og fræðimann í
Tjaldanesi, en 17. maí voru liðin
eitt hundrað ár frá andláti hans.
Dagurinn var bjartur og rúm
lega 50 manns komin saman til
að minnast Magnúsar, en hann á
nú 599 afkomendur á lífi og stóðu
þeir að því að reisa minnisvarðann.
Helstu hvatamenn að því að minn
ast Magnúsar með þessum hætti
voru þeir Magnús Ólafur Jónsson
(1921 – 2010) frá Stykkishólmi og
Matthew James Driscoll, prófessor.
Magnús Jónsson (1835 1922)
var bóndi í Tjaldanesi 1867 – 1909,
hreppstjóri og fræðimaður. Hann
skrifaði upp ótal handrit, en við
afhjúpun minnisvarðans kom fram
að hann hafi líklega skrifað einar
80 þúsund blaðsíður um ævina. Við
skriftirnar notaði hann álftafjaðr
ir. Á handrit.is er að finna ljósrit af
fjörutíu og þremur bókum Magn
úsar. Auk þess er vitað um þrjár
óskráðar bækur í einkaeign. Kona
Magnúsar var Ólöf Guðlaugsdóttir
(1829 –1904), einnig merk kona, en
hún var ljósmóðir og kunni sitthvað
fyrir sér í grasalækningum.
Minnisvarðinn, er stuðlaberg
úr Tjaldaneshlíð og stendur við
Skarðsstrandarveg, vestan við
afleggjarann að Tjaldanesi. Það
an er útsýni frábært, bæði fög
ur fjallasýn og til sjávar, þar sem
Breiðafjörðurinn opnast mót vestri.
Hönnuður minnisvarðans er Birgir
Jóakimsson og uppsetningu annað
ist Ari Jóhannesson.
Við athöfnina á laugardaginn
flutti Kristjón Sigurðsson ávarp
um Magnús, Ólöf Salmon Guð
mundsdóttir sagði frá Ólöfu og
Boga Kristín Kristinsdóttir, yngsta
langafabarn Magnúsar, afhjúpaði
minnisvarðann. Að því loknu var
kaffisamsæti í Tjarnarlundi. bj
Hótel Búðir verður tvöfaldað að stærð
Minnisvarði afhjúpaður í Tjaldanesi
um Magnús Jónsson
Grjótið er stuðlaberg úr Tjaldaneshlíð, en skjöldurinn sýnir m.a. rithönd Magnús-
ar sem þótti afar falleg.
Það var sólríkt, en kalt þegar minnisvarðinn var afhjúpaður.
Boga Kristín Kristinsdóttir yngsta langafabarn Magnúsar afhjúpaði minnisvarð-
ann.