Skessuhorn - 18.05.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202212
Úrtaka fyrir Landsmót hesta
manna, sem haldið verður á Hellu
3.10. júlí í sumar, verður sameigin
lega haldin fyrir öll hestamannafé
lögin á Vesturlandi, þ.e. Dreyra,
Glað, Borgfirðing og Snæfelling.
Fer úrtakan fram laugardaginn
4. júní og sunnudaginn 5. júní á
félagssvæði Borgfirðings, við Vind
ás í Borgarnesi. Keppni hefst báða
dagana klukkan 10. Keppt verður
í A flokki gæðinga, B flokki gæð
inga, Barnaflokki, Unglingaflokki
og Ungmennaflokki. Einungis
verður um forkeppni að ræða og
því ekki riðið til úrslita.
Fyrri keppnisdaginn verður röð
keppnisgreina þessi: Ungmenna
flokkur, unglingaflokkur, barna
flokkur, Bflokkur og Aflokkur.
Seinni daginn verður röð keppnis
greina þessi: Aflokkur, Bflokkur,
barnaflokkur, unglingaflokkur og
ungmennaflokkur.
Skráning fer fram um skrán
ingarkerfið Sportfeng.com en
skráningu þarf að vera lokið fyr
ir miðnætti miðvikudaginn 31.
maí næstkomandi. Skráningar
gjöld þarf að greiða innan sama
tímafrests. Nánari upplýsingar
um úrtökumótið má finna á síðum
hestamannafélaganna sem í hlut
eiga, en nánari upplýsingar um
mótið gefa þau Eyþór Gíslason,
Ása Hólmarsdóttir, Valberg Sig
fússon og Herborg Sigurðardóttir.
mm
Í mars árið 2021 var haldinn kynn
ingarfundur um skýrslu Verk
ís um úttekt á húsnæði Grunda
skóla á Akranesi en hún var unn
in vegna grunsemda um ónóg loft
gæði í skólanum. Helstu niður
stöður úttektarinnar voru að raka
skemmdir höfðu fundist í húsnæði
skólans og sumstaðar höfðu þær
leitt til myglu. Þá var gömul glerull
ásamt ágöllum á rakavarnarlagi stór
orsakavaldur að lélegri loftgæðum
en rykagnir bárust frá glerullinni
þar sem húsnæðið var óþétt.
Sigurður Arnar Sigurðsson
skólastjóri Grundaskóla fór á fund
inum yfir ástæður þess að óskað var
eftir úttektinni og rakti í ítarlegu
máli viðbrögð skólans. Grunsemd
ir vöknuðu fyrst á haustdögum
vegna ítrekaðra athugasemda frá
starfsmönnum og nemendum. Í
nóvember og desember var úttektin
undirbúin og hún fór svo fram dag
ana 10. til 16. febrúar. Það var svo í
byrjun mars að aðgerðaáætlun skól
ans var virkjuð og tekin ákvörðun
um að loka stórum hlutum skól
ans og stokka upp skólastarfið með
tilliti til þess. Alls þurfti að flytja
stóran hluta nemenda í húsnæði
utan skólans, svo sem í Þorpið og
Arnardal, frístundamiðstöðina við
Garðavöll, tónlistarskólann og fjöl
brautaskólann. Alls hefur skólinn
þurft að loka 22 skólastofum eða
um tveimur þriðju af því rými sem
hann hefur yfir að ráða.
Uppbyggingin er hafin
Blaðamaður Skessuhorn leit inn
hjá Sigurði Arnari í byrjun vik
unnar til að athuga stöðu stækkun
ar skólans og endurbóta í Grunda
skóla. Sigurður Arnar segir að þau
séu í hálfgerðri krísu núna því það
sé verið að tæma og rýma þessa
dagana Eálmuna eða stjórnarálm
una gömlu: „Við verðum að flytja
níunda bekkinn í Fjölbrautaskólann
og verðum þar með bæði 9. og 10.
bekk út úr húsi og þau verða þar út
þetta skólaár. Í haust verðum við að
finna rými fyrir 9. bekk því nýr 1.
bekkur kemur inn en þessum fram
kvæmdum verður ekki lokið fyrr
en í byrjun október þannig að við
verðum í góðan mánuð í einhverj
um reddingum hér. Tíundi kemst
ekki aftur hingað inn fyrr en endur
byggingum verður að fullu lok
ið. Við fáum Garðasel líklega um
næstu áramót og þá eigum við eftir
að fara í einhverjar lagfæringar en
á þeim tíma verðum við komin út
með allar listgreinar því Cbygging
list og verkgreina verður öll farin.
Það er hægt að segja að Grunda
skóli hafi farið í gegnum gríðarleg
húsnæðisvandræði undanfarið ár
en við höfum kosið að líta framhjá
vandamálunum og horfa frekar á að
uppbyggingin sé hafin. Árið í fyrra
var verra því þá vorum við í sjö
byggingum þegar mest lét út í bæ
þegar við vorum að glíma á sama
tíma við myglu og rakaskemmdir.“
Á annarri hæðinni þar sem yngsta
stigið var til húsa er búið að rífa og
hreinsa allt út en það var gert í mars
á síðasta ári og nú er verið að gera
það sama á neðri hæðinni. Það er
gert ráð fyrir að allt verkið verði
boðið út í september og vonast er
til að byggingaframkvæmdir hefjist
um næstu áramót. Gert er ráð fyr
ir því að nýtt húsnæði Grundaskóla
verði ekki tilbúið fyrr en í lok árs
2024 og fullbúið haustið 2025.
Mikil þrengsli
en samt plan
En komið þið öllum þessum nem
endum fyrir á þessum tíma? „Það
verður stórt verkefni, við komum
öllum nemendum í 1. til 9. bekk
fyrir þegar stjórnunarálman verð
ur tilbúin. Tíundi bekkur kemst
ekki inn fyrr en öll skólabyggingin
verður tilbúin en útskriftarár
gangar skólans hefur verið í Fjöl
braut síðustu tvö ár. Nýlega komu
þrjár lausar kennslustofur hingað
sem hafa breytt miklu en þær eru
sjö alls. Frístundin fer í Garðasel
í byrjun árs 2023 því frístundin í
Grundaskóla er ennþá inni í skól
anum og hefur aldrei farið út eins
og í öðrum skólum og er skólinn
því enn á vissan hátt tvísetinn.
Nýjar og ferskar hugmyndir eru
uppi um að í Garðaseli/Grunda
seli verði einskonar lýðskóli eða
skóli með óhefðbundnu námi eins
og listnámi, kvikmyndagerð ásamt
fleiru sem verður boðið upp á. Það
eru mikil þrengsli en það er samt
plan, við vinnum eftir áætlun sem
við erum mjög ánægð með. Það er
búið að hreinsa út úr skólanum allt
skemmt efni en það á enn eftir að
klára viðgerðir á ytri klæðningunni.
Vandi okkar er að keyra fullan skóla
á fullri ferð á sama tíma og við
stöndum í botnlausum bygginga
framkvæmdum. Það er kúnst, það
er mjög þröngt um alla starfsmenn
og í rauninni nemendur einnig þó
þeir séu í forgangi.“
Sigurður Arnar segir að lokum
að þrátt fyrir allt séu þau bjartsýn:
„Það er bjart framundan í skóla
starfi Grundaskóla, þetta verður
mjög spennandi þegar þessu lýk
ur. Það væru sennilega allir orðn
ir kolvitlausir hérna ef þeir litu
ekki bjartsýnum augum á málin því
þetta er búið að vera svakalegt rask
síðustu tvö ár. Faraldurinn truflaði
okkur ekki svo mikið því húsnæðis
vandræðin voru svo mikil að það
skyggði á allt annað. Við hefðum
alveg átt nóg með húsnæðismálin
ein og sér.“
vaks
Mynd úr safni Skessuhorns fyrir athygli. Hér sýnir Jakob S Sigurðsson Loga frá Oddsstöðum.
Landsmótsúrtaka
verður í Borgarnesi
í byrjun júní
„Vinnum eftir áætlun sem við erum
mjög ánægð með“
Rætt við Sigurð Arnar skólastjóra um stöðuna í Grundaskóla
Séð inn í húsnæði yngsta stigsins á 2. hæð skólans.
Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri Grundaskóla. Þessi veggur við innganginn verður rifinn niður.