Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202214
Í ljósi nýafstaðinnar hækkun
ar stýrivaxta hafði blaðamaður
Skessuhorns samband við tvo fast
eignasala á Vesturlandi til að leita
fregna um stöðuna á markaðin
um. Að sögn Þórarins H. Óðins
sonar hjá Fasteignasölunni Nes
í Borgar nesi er engan bilbug að
finna á markaðinum ennþá. Þvert
á móti virðist sem það sé enn mik
il eftirspurn eftir eignum og nóg af
kaupendum. Hann hefur ekki orðið
var við breytingu á markaði í kjöl
far stýrivaxtahækkunar og telur það
sennilega vera vegna þess að fram
boð á markaðinum sé í lágmarki í
dag og hafi verið það frá áramótum.
Þórarinn segir ánægjulegt að sjá að
fólk úr Reykjavík er að sýna svæð
inu aukinn áhuga. Framboð á eign
um á þessu svæði mætti hins vegar
vera meira.
Daníel Rúnar Elíasson hjá Fast
eignasölunni Hákoti á Akranesi
segir að þau hafi ekki orðið vör við
breytingu á markaði hvað varð
ar stýrisvaxtabreytingar og er það
sennilega vegna þess að framboð á
markaðinum er í lágmarki og hefur
verið það allt frá áramótum. Hann
segir að nú séu innan við tíu fast
eignir í sölu á Akranesi fyrir utan
þær nýbyggingar sem eiga eftir að
koma inn á markaðinn á árinu. Þær
eignir gætu komið af stað hreyf
ingu á notuðum fasteignum og þar
með örvað framboð eigna. Daníel
segist hafa fundið mikla eftirspurn
frá fólki á StórReykjavíkursvæðinu
fyrir og eftir áramót eftir eignum
á Akranesi og keyptu þau mikið af
þeim eignum sem seldust á haust
og vetrarmarkaðnum.
gj
Síðasta miðvikudag undirrituðu
eigendur Þróunarfélags Grundar
tanga og fyrirtækin sem starfa á
Grundartangasvæðinu viljayfirlýs
ingu um uppbyggingu græns iðn
garðs með hringrásarhugsun á
Grundartanga og fór undirritunin
fram í sal mötuneytis Norðuráls á
Grundartanga. Í uppbyggingunni
felst að mótuð verði fyrirmynd
ar sjálfbærniumgjörð fyrir svæð
ið og unnið að uppbyggingu
hringrásarhagkerfis með bættri
fjölnýtingu auðlinda og innviða.
Verndari verkefnisins er Guðlaug
ur Þór Þórðarson umhverfis, orku
og loftslagsráðherra.
Ólafur Adolfsson, stj órnarfor
maður Þróunarfélags Grundar
tanga, setti fundinn og kynnti ver
kefnið. „Það er bjartur og fallegur
dagur og það er mjög viðeigandi.
Við erum að innsigla hér gjörn
ing og erum að fara að skrifa hér
undir viljayfirlýsingu um stofnun
á grænum iðngarði. Atvinnusvæð
ið á Grundartanga býr samkvæmt
fjölmörgum greiningum yfir flest
um kostum þess sem grænn iðn
garður þarf að hafa. Niðurstaða
þessa greininga leggja grunninn
að því að eigendur Þróunarfélags
Grundartanga, sveitarfélögin og
Faxaflóahafnir ásamt fyrirtækjum
sem tengjast starfsemi á svæðinu
hafa nú ákveðið að efna til sam
starfs um uppbyggingu græns iðn
garðs með hringrásarhugsun hér á
Grundartanga. Árið 2016 fórum
við í sviðsmyndavinnu sem var ætl
að að opna augu okkar fyrir tæki
færum hér á Tanga og í kjölfarið
var mótuð metnaðarfull stefna sem
tók við af sviðsmyndum. Helstu
áhersluþættir stefnunnar eru eft
irfarandi: Að innviðir Grundar
tanga svæðisins styðji við og laði
að fjölbreytta atvinnustarfsemi
með lágmarks umhverfisáhrif
um, að umhverfismál á Grundar
tanga séu í fremstu röð iðnað
arsvæða og þannig í takt við það
besta sem gerist á heimsvísu,
að ímynd Grundartangasvæðis
ins endurspeglist að metnaðar
fullri og blómlegri atvinnustarf
semi þess, að Grundartangasvæð
ið verði þekkt fyrir nýsköpun og
þróun á þeim sviðum sem tengj
ast atvinnustarfsemi svæðisins, að
öryggismál séu alltaf til fyrirmynd
ar á Grundartanga og á athafna
svæði Grundartanga verði starf
ræktir samstarfsklasar fyrirtækja,
stofnana og sveitarfélaga til að efla
sérþekkingu og þróun á sérsvið
um svæðisins. Okkar markmið er
að Grundartangi sem grænn iðn
garður verði leiðandi á heimsvísu
með áherslu á fyrirmyndar sjálf
bærni umgjörð og bætta fjölnýt
ingu auðlinda og innviða í gegn
um hringrásarhagkerfið. Þannig
munum við minnka áhrif loftslags
breytinga, auka skynsama hráefna
notkun, koma á fjölnýtingaverk
efnum og bæta enn frekar endur
heimt auðlinda. Næstu skref okk
ar verða stofnun samstarfsklasans,
hann mun fylgja eftir fjölnýtinga
verkefnum eins og hitaveitu og
raforkuframleiðslu úr glatvarma
frá svæðinu, skógrækt og nýsköp
unarsetri á Grundaranga svo dæmi
séu nefnd. Tækifærin eru ótal
mörg og nú er það bara okkar að
nýta þau.“
Guðlaugur Þór velti upp í sinni
ræðu hvað væri verið að gera á
Grundartanga með grænum iðn
garði? „Þið eruð í raun að gera
það sem öll áherslumál ríkisstjórn
arinnar hverfast um og við erum
að stíga hér mjög mikilvægt skref
til að ná þessu markmiði sem ekki
bara við Íslendingar höfum held
ur einnig allir jarðarbúar. Við
erum að sjá hér orkuskipti og hrin
rásarhagkerfi og erum að byggja á
grunni sem við erum mjög góð í
þegar kemur að grænni orkuöflun.
Það sem við erum ekki jafngóð í er
hringrásarhagkerfið en við ætlum
einnig að vera afskaplega góð í því,
það er verkefnið. Er einhver stað
ur á Íslandi betri til þess að fara í
þetta verkefni? Ég efast um það
en aftur, það gerist ekkert af sjálfu
sér og nú er það þannig að ég hef
aðeins fylgst með þessu úr fjarlægð
og vil nota tækifærið og þakka ykk
ur fyrir að sýna þessa forystu því
það gerist ekkert af sjálfu sér. Þegar
kemur að okkur í ríkisstjórninni
og ráðuneytinu þá eru skilaboðin
mjög skýr, við þökkum ykkur fyrir
það sem þið eruð búin að gera og
við ætlum að styðja ykkur í því sem
framundan er. Það er bara þannig
með okkur Íslendinga að við erum
búin að setja okkur mjög metnað
arfull markmið og metnaðarfyllri
markmið en aðrir þegar kemur að
loftslagsmálum en við verðum ekki
dæmd af því sem við segjum held
ur af því sem við gerum.“
Þá tóku einnig til máls Sigrún
Helgadóttir forstjóri Norðuráls á
Grundartanga, Sædís Alexía Sig
urmundsdóttir frá Elkem, Sævar
Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akra
ness, Linda Björk Pálsdóttir sveit
arstjóri Hvalfjarðarsveitar og Þor
steinn Gunnarsson borgarritari.
Á Grundartanga er góð hafnar
aðstaða og þar er langstærsta
iðnaðarsvæði Vesturlands þar sem
starfa um ellefu hundruð manns
auk þess sem rekja má um þúsund
afleidd störf til starfsemi á svæð
inu. vaks
Frá Akranesi.
Mikið líf á fasteignamarkaði þrátt fyrir vaxtahækkun
Frá Borgarnesi.
Ólafur og Guðlaugur Þór eru gamlir andstæðingar í boltanum en eru núna saman
í liði.
Viljalýsing undirrituð um uppbyggingu
græns iðngarðs á Grundartanga
Fulltrúar sveitarfélaganna og fyrirtækjanna sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna.
Fyrsta umferð í undirskriftum.