Skessuhorn - 18.05.2022, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 15
www.blikkgh.is
blikkgh@blikkgh.is
Akursbraut 11b • Akranes
Málmiðnaðarmenn
óskast
Vegna aukinna verkefna
óskum við eftir vönum málmiðnaðarmönnum
Áhugasamir hafi samband við
Emil Sævarsson, framkvæmdastjóra í síma 690-1729
Umsóknir berist á
netfangið blikkgh@blikkgh.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Síðasta miðvikudag voru þang
sláttumenn, þeir Jóhannes Har
aldsson og Björgvin Matthí
as Hallgrímsson, að dóla um veg
inn í Kollafirði í Reykhólahreppi
og ergja sig á norðaustan áttinni
sem gerir þeim ómögulegt að
athafna sig við sláttinn. Fram kem
ur á heimasíðu Reykhólahrepps að
þá hafi þeir komið auga á fjárhóp í
túninu í Múla, sex fullorðnar kind
ur og tvö lömb. Þeim fannst frem
ur ólíklegt að bændur væru búnir
að sleppa lambfé í þessu tíðarfari,
svo þeir kölluðu eftir aðstoð til að
handsama féð.
Eftir nokkurn eltingaleik náð
ist að reka kindurnar inn í skila
réttina á Eyri, fullorðna féð hálfu
ári of seint, en lömbin misseri fyrr
en vant er. Féð reyndist vera frá
Fremri Gufudal og Skálanesi, þrí
lemba með dætur og tveir hrútar.
Kindurnar eru í góðu ásigkomulagi
þrátt fyrir að hafa gengið úti frekar
leiðinlegan vetur.
vaks
Tveir fulltrúar frá öllum framboð
um sem buðu fram lista í Borgar
byggð fyrir kosningarnar síðast
liðinn laugardag komu saman á
leiðtogafundi að kvöldi síðasta
miðvikudags. Fundurinn var tek
inn upp og sýndur í beinu streymi á
kvikborg.is en var auk þess aðgengi
legur á vef Skessuhorns. Leiðtoga
fundurinn var skipulagður af Kvik
myndafjelagi Borgarfjarðar sem
sá auk þess um alla tæknivinnu og
útsendingu. Límtré Vírnet lagði til
húsnæðið sem vissulega var óvenju
legt myndver, en þátturinn var tek
inn upp í blikksmiðju fyrirtækis
ins. Spyrlar voru gömlu fréttahauk
arnir Gísli Einarsson og Magnús
Magnús son.
Fyrirkomulag fundarins var
þannig að fulltrúar flokkanna
fjögurra svöruðu ýmsum spurn
ingum sem brunnu á kjósendum í
sveitarfélaginu. Í tveimur innslög
um í þættinum sögðu kjósendur
á förnum vegi frá hvað brennur á
þeim og hvað væri það besta við
að búa í Borgarbyggð. Alls bar um
tuttugu mál á góma, en fyrirferðar
mest í umræðunni voru skipulags
mál en sitthvað fleira einnig. Hægt
er að skoða upptöku af fundinum á
kvikborg.is
vaks/ Ljósm. mm.
Á síðastliðnum vikum fór fram
nýsköpunarhraðall á vegum
Academy for Women Entreprene
urs og er hann haldinn á veg
um Háskóla Íslands og bandaríska
sendiráðsins. Veitt voru verðlaun
fyrr nýsköpunarverkefni kvenna. Í
þriðja sæti varð Michelle Bird lista
kona sem býr í Borgarnesi. Verkefn
in eru öll sprottin úr frumkvöðla
starfsemi í hinum ýmsu greinum og
nam heildarupphæð verðlauna um
2,2 milljónum króna. Peningafjár
hæðina geta þátttakendur nýtt til að
koma verkefni sínu á framfæri eða
til áframhaldandi þróunar verkefn
isins. Við verðlaunaafhendinguna
voru stödd þau Áslaug Arna Sigur
björnsdóttir, iðnaðar og nýsköp
unarráðherra, Michelle Yerkin,
sendiherra Bandaríkjanna, og Jón
Atli Benediktsson, rektor Háskóla
Íslands. Michelle vann ásamt Birnu
Sigurbjörnsdóttur að verkefninu
WAM eða Women Art Market
eers. Verkefnið er markaðstorg fyr
ir skapandi konur þar sem kennd er
listin að markaðssetja sig og koma
vörum sínum á framfæri. Hlutu
þær 200.000 krónur í verðlaun fyrir
verkefnið sitt.
sþ
Verðlaunahafar. Michelle Bird er fyrir
miðri mynd.
Verðlaunaafhending á nýsköpunarverkefnum kvenna
Fjárhópurinn kominn inn í réttina. Ljósm. Jóhannes Haraldsson
Fundu útigenginn fjárhóp í Múla
Leiðtogaspjall í Borgarbyggð