Skessuhorn - 18.05.2022, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202218
Pálína Jörgensdóttir er húsfreyja
á Hofsstöðum í Stafholtstungum
í Borgarfirði en hún hefur getið
sér gott orðspor á sviði afkasta og
myndarskaps í prjónamennsku.
Þar býr hún ásamt eiginmanni sín
um, Tómasi Inga Tómassyni, og
eiga þau saman þrjú börn og fjög
ur barnabörn. Pálína hóf ævina í
Reykjavík en leiðir hennar lágu svo
í Borgarfjörðinn þar sem hún sett
ist síðan að á Hofsstöðum. Hún
starfar núna sem leikskólastýra á
leikskólanum Hraunborg á Bif
röst og hefur nú starfað þar í 14 ár.
Einnig er hún virkur þátttakandi í
samfélaginu með störfum sínum í
Kvenfélagi Stafholtstungna.
Leiðin til
Stafholtstungna
,,Ég ólst upp í Reykjavík í
Breiðholtinu. Ég var í Fellaskóla
alveg þangað til ég fermdist en þá
flutti ég í Borgarnes. Í raun og veru
er ég líka alin upp hérna í Staf
holtstungunum en mamma mín
var ráðskona á Haugum hjá ömmu
og afa svo ég var mikið þar. Árið
1984 flytja svo mamma og pabbi í
Borgar nes og kaupa hús þar en ári
síðar skilja þau svo og pabbi flytur í
bæinn en ég bý áfram hjá mömmu
í Borgarnesi. Ég útskrifast svo úr
skólanum þar og fer í Hússtjórnar
skólann á Varmalandi sem var bara
það besta sem ég hef gert. Það var
svo geggjað gaman. Ég mæli með
að allt ungt fólk fari í hússtjórnar
skóla því þegar þú ert búin að fara í
slíkan skóla þá geturðu allt! Svo fer
ég út sem Au pair til Danmerkur og
var í eitt ár þar hjá æðislegu fólki
sem ég hélt góðu sambandi við
lengi, en er ekki í miklum samskipt
um við þau í dag, en þetta var rosa
lega góður tími. Þarna var ég orðin
tvítug en á þessum tíma voru ver
tíðir og sveitaböll og maður náði að
upplifa allt þetta sem var æðislegt.
Ég hef búið á Höfn í Hornafirði og
á Ólafsfirði og var þar á vertíðum
og gerði ýmislegt skemmtilegt.“
Vildi ekki verða amma
fyrir fimmtugt
Pálína og Tómas hafa þekkst frá
barnsaldri en leiðir þeirra lágu svo
nánar saman á fullorðinsaldri. ,,Við
Tommi erum náttúrulega búin að
þekkjast síðan við vorum fimm ára
en við erum fjórmenningar og höf
um alltaf verið rosalega góðir vinir.
Við byrjum eiginlega að vera saman
1992 en þá verð ég ólétt af Tómasi,
okkar fyrsta barni. Þá byrjum við að
búa og ég flyt í Stafholtstungurn
ar í Varmaland og við eigum svo
Styrmi árinu eftir. Ég vann þá í
Baulunni og seinna rak ég Bauluna
í hálft ár. Ég bjó þá á Haugum, sem
í dag heitir Borgir, og svo var ég að
vinna í Varmalandsskóla í nokkur
ár eftir það. Ég eignast síðan Bjarn
eyju Sól árið 1998, okkar þriðja og
síðasta barn.“
Pálína byrjaði svo að starfa á
Hraunborg árið 2008 þar sem
hún byrjaði sem kennari, varð síð
an aðstoðarleikskólastjóri og hef
ur verið leikskólastjóri þar síðan
2018 en hún segist elska að vinna
með börnum og segir ömmuhlut
verkið hafa ýtt undir þá tilfinningu.
Pálína varð amma fyrst í janúar
2020 en þegar blaðamaður bank
aði á dyr var fjórða barnabarnið á
leiðinni í heiminn. ,,Þetta er það
besta sem maður getur hugsað sér
að vera amma og fjórða barna
barnið að koma í dag en á tveimur
árum er ég búin að fá fjögur barna
börn. Ég sagði við börnin mín; þið
leyfið okkur nú að verða fimmtug
áður en þið gerið okkur að ömmu
og afa, og þau gerðu það. Við höf
um núna svo mikinn tíma fyrir þau
sem er æðislegt.“
Hamingjusöm í litla
kotinu sínu
Pálína og Tómas voru með stórt
sauðfjárbú hér áður fyrr en segjast
núna vera „hobbý“bændur í sam
starfi við frændfólk sitt sem býr
í næsta húsi en á Hofsstöðum og
í kring eru þrjú íbúðarhús ásamt
fjölda sumarbústaða sem skyld
menni hafa komið sér upp í gegn
um árin. Sjálf upplifir hún mikla
samvinnu og hamingju í kommún
unni á Hofsstöðum. ,,Hér eru
frændfólk í sumarbústöðum í öll
um hornum og sjálf erum við búin
að setja upp gámahús sem börnin
okkar nota þegar þau koma í heim
sókn. Húsið sem við búum í var
byggt af bróður tengdamömmu en
hann var einstæðingur. Við kaup
um svo húsið þegar hann deyr
sumarið 1997. Það er frekar lítið
og ætluðum við alltaf að byggja við
það. Það varð svo aldrei af því og
við vorum alltaf svo hamingjusöm
hérna. Við tókum það hins vegar í
gegn núna fyrir stuttu og hér líður
okkur rosalega vel. Þetta er mjög
passlegt fyrir okkur.“
Kvenfélagið dýrmætt
Pálína er mikil prjónakona og er
yfirleitt með fjögur verkefni í gangi
í einu. Hún segist núna prjóna mest
á barnabörnin og finnst skemmti
legast að fylgja ekki uppskriftum.
,,Ég nota alveg uppskriftir en mér
finnst langskemmtilegast að skapa
eitthvað sjálf. Ég upplifi mína
hvíld í prjónaskapnum og elska
að setjast niður og prjóna í róleg
heitunum.“ Einnig segir Pálína
að fjórhjólaferðir séu eitt áhuga
mál sem þau hjónin sinna saman
og á sumrin elska þau að ferðast
um landið með hjólhýsið og fjór
hjólin. Einnig er hún í Kvenfélagi
Stafholtstungna og er búin að vera
í því síðan 1996 en hún var ritari
félagsins í tólf ár. ,,Kvenfélag er
eitthvað sem mér finnst að konur
í sveit þyrftu allar að vera í. Kon
urnar eru kannski að vinna á öllum
stöðum en þarna hittast þær svo og
geta farið yfir hvað sé að frétta og
gert eitthvað saman. Sama hvort
konurnar eru sjötugar eða tvítugar
þá er þetta bara svo gaman og
skemmtilegt hvernig samræðurnar
verða. Við lærum af yngri konun
um og þær vonandi af okkur,“ segir
Pálína að lokum.
sþ
Handverk eftir Pálínu á ömmu, afa og barnabörnin.
„Það besta sem maður getur hugsað
sér að vera amma“
Pálína er hússtjórnarskólagengin húsfreyja á Hofsstöðum sem elskar að prjóna á barnabörnin
Pálína á notalega heimilinu sínu að Hofsstöðum í peysu sem hún prjónaði sjálf.
Pálína og Tómas með barnabörnin í prjónuðum jólafötum eftir Pálínu.