Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 19
Borgarbyggð auglýsir lausar lóðir til úthlutunar í sveitarfélaginu. Um er að
ræða einbýlishúsalóðir við Rjúpuflöt nr. 1, 2, 3, 4, 5 og 6. Lóðirnar eru
staðsettar á Hvanneyri.
Lóðunum verður úthlutað á fundi byggðarráðs 2. júní nk. Berist fleiri en ein
umsókn um hverja lóð verður dregið á milli umsækjenda að viðstöddum
fulltrúa sýslumanns.
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda úthlutunarreglur Borgarbyggðar frá árinu
2021.
Ef frekari upplýsingar er óskað skal hafa samband við þjónustuver
sveitarfélagsins í síma 433-7100 alla virka daga frá kl. 09:30 - 15:00.
Sótt er um lóðirnar inni á þjónustugátt Borgarbyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2022.
LAUSAR LÓÐIR TIL ÚTHLUTUNAR
Sími 431 1201 I rafstodin@rafstodin.is
Nýlagnir
Endurnýjun lagna
Netlagnir
Ljósleiðaratengingar
Öll almenn
raflagnavinna
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Fornbíladaginn er haldið upp á
árlega á mismunandi stöðum á
landinu en að þessu sinni verður
hann haldinn hátíðlegur í Reyk
holti í Borgarfirði. Daginn ber upp
laugardaginn 4. júní næstkomandi
og verður dagskrá í tilefni dagsins
haldin í Snorrastofu. Haldið verð
ur málþing inni en bílasýning utan
húss. Á málþinginu verður með
al annars kynning á sögu bílsins
á Íslandi, farið verður yfir varð
veislu og verkkunnáttu við viðgerð
eldri bifreiða auk þess sem kynning
verður á Fornbílafjelagi Borgar
fjarðar og Landbúnaðarsafnsins á
Hvanneyri, ásamt fleiri dagskrárat
riðum. Á bílastæði Reykholtskirkju
munu gamlir bílar verða til sýnis
fyrir gesti og gangandi. sþ
Miðvikudaginn 25. maí næstkom
andi mun Hanna Ágústa Olgeirs
dóttir sópransöngkona úr Borgar
nesi stíga á svið með Sinfóníu
hljómsveit Íslands ásamt tveim
ur öðrum sigurvegurum úr keppn
inni Ungir einleikarar. Keppn
in er haldin af Sinfóníuhljómsveit
Íslands og Listaháskóla Íslands ár
hvert en í henni takast á íslenskir
hljóðfæraleikarar og söngvarar sem
stunda háskólanám í tónlist, bæði
hérlendis og erlendis. Keppnin
fór fram síðastliðið haust en verð
laun í keppninni eru að koma fram
sem einleikari/ einsöngvari með
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Upp
haflega áttu þeir tónleikar að vera
haldnir í janúar en vegna Covid
faraldursins þurfti að fresta tónleik
unum þar til nú. Tónleikarnir fara
fram í Eldborgarsal Hörpu.
Fjórði Borgfirðingurinn
til að sigra í keppninni
Hanna Ágústa er uppalin í Borgar
nesi og stundaði nám við Tón
listarskóla Borgarfjarðar alla sína
barnæsku. Í dag lærir hún klassísk
an söng við Tónlistarháskólann í
Leipzig undir handleiðslu Prófess
orsins Carolu Guber. Námið hef
ur hún stundað frá 2017. Í sumar
mun hún útskrifast frá skólanum
og hyggst flytjast aftur búferlum til
Íslands en hún hefur mikinn áhuga
á söngkennslu og hefur einnig
numið óperuleikstjórn. Hanna
Ágústa er fjórði Borgfirðingurinn
til að vinna nefnda keppni en áður
hafa hana unnið þau Eygló Dóra
Davíðsdóttir, Birgir Þórisson og
Anna Þorvaldsdóttir. Keppnin er
mikils metin og vegur mikið hjá
íslenskum tónlistarnemum. Hanna
Ágústa segir sigurinn mikinn heið
ur og hlakkar til að fá að láta ljós sitt
skína í Eldborgarsal.
sþ
Hanna Ágústa bar sigur úr býtum í keppninni Ungir einleikarar
Hanna Ágústa lærir klassískan söng við Tónlistarháskólann í Leipzig, Þýskalandi.
Ljósm. Gunnlöð Jóna.
Hross Guðlaugs og Plymouth Concord Tryggva Konráðssonar í Reykholti. Farar-
skjótar í fortíð og nútíð. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Fornbíladagurinn
haldinn í Reykholti í ár