Skessuhorn - 18.05.2022, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202220
Síðastliðinn laugardag gengu landsmenn að kjörborðinu og
kusu sveitarstjórnir til næstu fjögurra ára. Veðrið var prýði
legt á kjördag sem þó varð ekki til þess að glæða kjörsókn
neitt sérstaklega. Á landsvísu ákváðu 62,7% kjósenda að
nýta atkvæðisrétt sinn. Slökust varð kjörsóknin í Reykjanes
bæ þar sem einungis 47,4% kusu en mest var kjörsóknin í
Skorradalshreppi, eða 87,2%. Hér á Vesturlandi má segja
að víðast hafi kosningar farið á svipaða lund og fyrir fjór
um árum sem þýðir að sömu meirihlutar geta halda áfram.
Þó var undantekning í Borgarbyggð þar sem meirihlut
inn féll og Framsóknarflokkur náði hreinum meirihluta í
sveitarstjórn. Í fjórum sveitarfélögum fór fram persónu
kjör; Skorradal, Eyja og Miklaholtshreppi, Dalabyggð og
Hvalfjarðarsveit. Í Reykhólasveit var sami háttur hafður, en
athygli vekur að þar var kjörsókn einungis 53,8%. mm
Úrslit úr sveitarstjórnakosningunum á Vesturlandi
Talningu atkvæða var lokið í Eyja
og Miklaholtshreppi snemma á
laugardagskvöldið. Þar var kos
ið persónukosningu líkt og undan
farin ár. Á kjörskrá voru 86 og kusu
67, eða 77,9%.
Í hreppsnefnd voru kosin: Herdís
Þórðardóttir sem fékk 42 atkvæði,
Veronika G. Sigurvinsdóttir 37
atkv., Valgarð S. Halldórsson 36
atkv., Gísli Guðmundsson 28 atkv.
og Sigurbjörg Ellen Ottesen hlaut
27 atkvæði.
Varamenn:
Fyrsti varamaður:
Þröstur Aðalbjarnarson
Annar varamaður:
Sonja Marinósdóttir
Þriðji varamaður:
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Fjörði varamaður:
Áslaug Sigvaldadóttir
Fimmti varamaður:
Katharina Kotschote.
Könnun um
sameiningarkosti
Samhliða sveitarstjórnarkosn
ingunum í Eyja og Miklaholts
hreppi var lögð fram skoðana
könnun meðal íbúa um hug þeirra
til sameiningar við önnur sveitar
félög. Eins og kunnugt er höfnuðu
íbúar í kosningu í vetur samein
ingu við Snæfellsbæ. Var könnun
in nú gerð í samræmi við samþykkt
í sveitarstjórn 28. apríl síðastliðinn.
Spurt var: „Ef ný sveitar stjórn tek
ur upp sameiningaviðræður við
nágrannasveitarfélag, hvaða sam
einingu viltu þá að sveitarstjórn
in leggi áherslu á?“ Valkostirnir
voru a) Allt Snæfellsnes, b) Stykk
ishólmsbæ / Helgafellssveit /
Grundarfjörður, c) Stykkishólms
bæ / Helgafellssveit og d) Borgar
byggð.
Niðurstaðan varð sú að lang
flestir íbúar kusu með sameiningu
við allt Snæfellsnes, eða 28. Næst
flestir, eða 9, kusu með sameiningu
við Stykkishólm/ Helgafellssveit,
átta völdu sameiningu við Borgar
byggð og fjórir völdu sameiningu
við Grundarfjörð og Stykkishólm/
Helgafellssveit. Auðir seðlar, ógild
ir og vafaatkvæði voru níu.
mm
Í Reykhólahreppi var sveitarstjórn
að þessu sinni kosin í persónukosn
ingu þar sem engir framboðslistar
bárust. Á kjörskrá voru 184, en alls
greiddu atkvæði 99, þannig að kjör
sókn var einungis 53,8%. Auðir og
ógildir seðlar voru sex.
Í sveitarstjórn voru kjörin:
Árný Huld Haraldsdóttir, 58 atkv.
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, 53 atkv.
Hrefna Jónsdóttir, 52 atkv.
Vilberg Þráinsson, 30 atkv.
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir,
28 atkv.
Varamenn í sveitarstjórn:
Fyrsti varamaður:
Arnþór Sigurðsson
Annar varamaður:
Rebekka Eiríksdóttir
Þriðji varamaður:
Eggert Ólafsson
Fjórði varamaður:
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Fimmti varamaður: Kolfinna Ýr
Ingólfsdóttir.
mm
Talningu lauk snemma á Akranesi.
Laust eftir miðnætti lá niðurstaðan
fyrir. Á kjörskrá voru 5.691. Kjör
sókn reyndist 62,8%, en greidd
atkvæði voru 3.563 og féllu þannig:
B listi Framsóknarflokks og frjálsra
1.208 atkvæði, eða 33,9% og 3
bæjar fulltrúar
D listi Sjálfstæðisflokks 1.223
atkvæði, eða 34,32% og 3 bæjar
fulltrúar
S listi Samfylkingar 959 atkvæði,
eða 26,91% og 3 bæjarfulltrúar.
Auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru
174, eða 4,9% greiddra atkvæða.
Framsókn og frjálsir vinna sam
kvæmt þessu einn mann frá síðustu
kosningum á kostnað Sjálfstæðis
flokksins, sem þó er enn stærsti
flokkurinn í bæjarstjórn. Meirihluti
Samfylkingar og Framsóknar
flokks með frjálsum styrkir þannig
meirihluta sinn, kjósi flokkarnir að
mynda aftur meirihluta.
mm
Árný Huld hlaut flest
atkvæði í hreppsnefnd
Félagsheimilið Breiðablik þar sem jafnframt er gestastofa.
Herdís hlaut flest atkvæði í Eyja-
og Miklaholtshreppi
Þrír flokkar með jafn marga fulltrúa í bæjarstjórn
Fjögur efstu á lista Samfylkingarinnar á kjördag. F.v. Valgarður, Jónína, Anna
Sólveig og Kristinn. Ljósm. vaks.
Þessir fulltrúar af lista Sjálfstæðisflokksins kíktu við á ritstjórn Skessuhorns
vikuna fyrir stóra daginn. F.v. Sigríður Elín, Einar og Líf. Ljósm. mm.
Framsókn og frjálsir á Akranesi voru sigurvegarar kosninganna þar í bæ, bættu
við sig einum bæjarfulltrúa á kostnað Sjálfstæðisflokks. Samfylking hélt sínum
þremur fulltrúum. Þessi mynd var tekin á kosningadaginn og sýnir fjóra efstu á
lista FF. F.v. Magni (varabæjarfulltrúi), Ragnar, Sædís og Liv. Ljósm. vaks.
Kjörstjórn í Kjör-
deild II á Akranesi
að störfum; þær
Vilborg Þórunn,
Lára Dóra og Inga
Þóra. Ljósm. mm.